Valsblaðið - 01.05.2012, Síða 92
92 Valsblaðið2012
Fögnum fjölbreytileikanum
Ég kem heim úr skólanum, mér líður ekki vel
lít í spegilinn og átta mig ekki á því hver ég er.
Ég er ekki eins og hinir, ég lít öðruvísi út,
hegða mér á annan hátt, en samt er staðreyndin þó sú
að ég er bara ég, þarf ég að breyta hver ég er?
til þess eins að fitta inn og fá að vera með.
Hvað sem ég geri sjá þau flísina í auga mínu
en ekkert þeirra tekur eftir bjálkanum í sínu.
Það er til tvenns konar fólk, þeir sem hífa þig upp
og þeir sem rífa þig niður.
Þeir reyna að rífa þig niður til að hífa sig upp
og þeir sem hífa þig upp eru alvöru vinir.
Ég læt þetta ekki á mig fá.
Ég er sterkari en það, stend upp fyrir sjáfri mér.
Það dýrmætasta sem ég á
er þetta líf og ég mun lifa því eins og ég er.
Þegar á endann er kominn vinna þeir sem breyta rétt.
Þú sérð samt fljótt að þessi leið er ekki alltaf létt.
Sá sem ranglæti mætir ekki, fylgir alltaf hinum.
Hjálpar ekk‘ og stendur ekki upp á móti vinum.
Mótlæti myndar manninn, sýnir úr hverju hann er gerður.
Ekki gefast upp þó heimurinn sé stundum harður.
Bítt‘í skjaldarrendur og treystu eigin hjarta
fyrr en varir muntu sjá að þú átt framtíðina bjarta.
Það er til tvenns konar fólk, þeir sem hífa þig upp
og þeir sem rífa þig niður.
Þeir reyna að rífa þig niður til að hífa sig upp
og þeir sem hífa þig upp eru alvöru vinir.
Ég læt þetta ekki á mig fá.
Ég er sterkari en það, stend upp fyrir sjáfri mér.
Það dýrmætasta sem ég á
er þetta líf og ég mun lifa því eins og ég er.
Lag flutt af Mist Edvardsdóttur og Rakel Hönnudóttur.
Mennta- og menningarmálaráðherra,
Katrín Jakobsdóttir afhenti
kvennalandsliðinu viðurkenningu
í Þjóðmenningarhúsinu 8. nóv. sl.
fyrir myndband með skilaboðum
gegn einelti í samfélaginu
Kvennalandsliðið fékk á baráttudegi gegn einelti afhenta viður-
kenningu stjórnvalda vegna jákvæðra skilaboða gegn einelti til
samfélagsins. Viðurkenninguna fengu þær afhenta við athöfn í
tilefni af baráttudegi gegn einelti. Tilefnið er myndband sem
stelpurnar í landsliðinu gerðu til að vekja fólk til umhugsunar
um afleiðingar eineltis. Myndbandið var við lag sem Katrín
Ómarsdóttir samdi en lagið sungu þær Rakel Hönnudóttir og
Mist Edvardsdóttir og tóku þær tvær síðarnefndu við viðurkenn-
ingunni fyrir hönd kvennalandsliðsins. Hugmyndin af þessu
framtaki stelpnanna kemur frá Katrínu og útskýrir kveikjuna af
þessari hugmynd á eftirfarandi hátt:
„Í tilefni eineltisdagsins langar mig að nota tækifærið og út-
skýra hvers vegna íslenska kvennalandsliðið ákvað að gera
myndband sem sett var á youtube undir nafninu „Fögnum fjöl-
breytileikanum“. Það hafa komið margar spurningar um hvað-
an hugmyndin er komin og af hverju við ákváðum að láta okkur
þetta varða. Eftirfarandi texti útskýrir af hverju.
Hugmyndin að framtakinu kemur frá
þessari færslu á facebook frá stelpu á
Egilsstöðum: „Þó ég sé feit, ljót og
strákaleg hvað á ég að gera í þessu? Ég
á allavega ekki að vera lögð í einelti
vegna þess að einelti lagar ekkert.
Sorry ákvað að koma þessu hingað en
ef ykkur finnst þetta asnalegt þá má
ykkur finnast það mér er alveg sama.
:´( Plízz hættiði að leggja mig í einelti
er komin með nóg. :´(„
Það er sama hvaða stöðu manneskj-
an gegnir í samfélaginu þá hefur hún
ákveðna ábyrgð–ábyrgð til að láta gott
af sér leiða. Því áhrifameiri stöðu sem
manneskjan gegnir því meiri sam-
félagsábyrgð þarf hún að sýna. Sem
partur af íslenska kvennalandsliðinu,
hópur af flottum konum og fyrirmyndum á Íslandi, fannst mér
við geta haft jákvæð áhrif á samfélagið með einhverjum hætti.
Allar stelpurnar tóku vel í hugmyndina og úr varð myndbandið.
Það er frábært að það skuli vera dagur til að vekja athygli á
einelti, en munum líka að baráttan á sér stað alla daga. Fögn-
um fjölbreytileikanum alltaf.“
Kvennalandsliðiðíknattspyrnufékk
viðurkenninguábaráttudegigegneinelti
Dóra María Lárusdóttir er
fastamaður í kvennalands-
liðinu.