Valsblaðið - 01.05.2012, Page 116
116 Valsblaðið2012
Starfiðermargt
Helstu Valsarar í fjölskyldunni? „Ég er
eini Valsarinn í fjölskyldunni sko. Annars
er pabbi mjög góður boxari og mamma
var ansi efnileg í sundinu. Foreldrar mín-
ir hafa alltaf hvatt mig áfram og eru góð í
því. Stuðningur frá þeim er lykilatriði.“
Hvernig finnst þér að eigi að efla starf
ið í yngri flokkunum hjá Val í körfu
bolta? „Það þarf að reyna að fá fleiri
krakka til þess að æfa körfu. Og hafa smá
félagslíf í kringum það. Það þarf að
leggja meiri metnað í körfuna hjá Val,
jafn mikið og lagt er í handboltann og
fótboltann. Og krakkar þurfa að hætta að
fara í önnur lið ef að það gengur ekki
nógu og vel hjá liðinu. Þá þurfa þeir bara
að gera liðið betra í staðinn.“
Framtíðardraumar í körfubolta? „Ég
sé mig ekki endilega í atvinnumennsku í
körfunni eftir 10 ár. En ég mun samt
aldrei hætta að spila körfu. Nema ég
missi hendurnar eða eitthvað.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik, 1911.“
Ernesto er búinn að æfa körfubolta í 6 ár
og byrjaði í Val því Valur er heimaliðið
hans og besti vinur hans dró hann á æf-
ingu. Ernesto hefur þrisvar verið valinn
leikmaður flokksins og þykir mjög efni-
legur í körfubolta. Fyrirmyndir hans í
körfubolta eru Kobe Bryant og T-mac.
Hvernig gekk ykkur síðastliðinn vet
ur? „Okkur gekk alveg ágætlega, við
vorum allan veturinn í b-riðli í okkar
flokki, en svo spiluðum við líka upp fyrir
okkur með drengjaflokki og vorum flest-
ir yngri en hin liðin, við litum á þá leiki
sem góða æfingu fyrir okkur. Ég myndi
halda að flestir unglingar hætta að æfa
íþróttir annaðhvort vegna þess að þeir
hafa sterkari áhuga á einhverju öðru eða
af því að þeir geta ekkert í íþróttinni og
nenna því ekki lengur.“
Hvernig er hópurinn í körfunni núna í
vetur? „Hópurinn í ár er frábær. Við
erum allir góðir vinir. Ég spila helst með
drengjaflokki og ég er búinn að spila 3
leiki með unglingaflokki. Okkur gengur
aðeins betur en drengjaflokknum gekk í
fyrra. Við erum alveg á uppleið. Þjálfar-
inn er líka mjög góður.“
Skemmtileg atvik úr boltanum? „Það
var drullufyndið þegar allt liðið okkar
var rekið úr sundlauginni í Keflavík fyrir
að vera með fíflalæti. Síðan fannst öllum
rosa fyndið þegar ég ældi öllum innyfl-
unum út úr mér fyrir framan alla í flug-
vélinni á leiðinni til Egilsstaða. Besta at-
vikið samt innan vallar var þegar við vor-
um einu stigi undir og Guðjón „legend“
setti buzzer til að vinna leikinn í smettið
á einhverjum gæja.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Til að ná langt í íþróttum þarf aukaæf-
inguna. Hún skapar meistarann. Ég þarf
að bæta körfubolta iq-ið mitt og þriggja
stiga skotin frekar mikið.“
Hvers vegna körfubolti? „Mér finnst
körfubolti bara langskemmtilegasta
íþróttin. Ég hef líka æft fótbolta og
sund.“
Þaðþarfaðleggja
meirimetnaðí
körfunahjáVal
Ernesto Emil Ortiz er 17 ára og leikur
körfubolta með drengjaflokki
Íþróttaskóli Vals haustið 2012 fór fram í
þremur sölum í Vodafonehöllinni. Alls
voru fimmtíu krakkar fæddir 2007–2010
skráðir og stóðu sig vel. Krökkunum var
skipti í eldri og yngri hópa sem voru fyrri
hluta í mismunandi þrautum en samein-
uðust í stórri þrautabraut í lok hvers tíma.
Einn tími var kenndur úti og tókst vel. Í
lokatímanum fengu krakkarnir Valsbol,
buff og kaldan drykk í verðlaun fyrir
góða frammistöðu í skólanum.
Skóla stjóri Íþróttaskólans var Ragnar
Vignir, meðstjórnandi Sigrún Brynjólfs-
dóttir og aðstoðarkonur komu úr meist-
araflokki kvenna í handknattleik.
50krakkarííþróttaskólaVals