Valsblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 23

Valsblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 23
Valsblaðið 2014 23 Starfið er margt Stjórn handknattleiksdeildar Stjórn handknattleiksdeildar vill koma á fram þakklæti til allra þeirra sjálfboða- liða sem hafa lagt hönd á plóg við um- gjörð leikja og fjáraflana. Valkyrjum undir styrkri stjórn Svölu fyrir sína ómetanlegu aðstoð í Lollastúku fyrir og eftir leiki. Miðasöluskvísunum Möllu, Helenu og Dagnýju. Sigurði Ás- björnssyni fyrir skemmtilega pistla um leiki vetrarins og auðvitað heimaleikja- ráði undir forystu Gísla fyrir þá flottu umgjörð leikja sem við höfum. Starfs- fólki Vals er þakkað fyrir ómetanlega að- stoð við að leysa hin ýmsu verkefni sem upp komu á tímabilinu. Styrktaraðilum fyrir að standa þétt við bakið á okkur og auðvitað öllum þeim sem að starfi félagsins koma. Stjórn handknattleiksdeildar Ómar Ómarsson formaður Sveinn Stefánsson varaformaður Gísli Gunnlaugsson gjaldkeri Magnús Guðmundsson meðstjórnandi Þorgeir Símonarson meðstjórnandi Áfram hærra, áfram Valur, Ómar Ómarsson, formaður handknattleiksdeildar Vals Kristján línumaður og Ómar Ingi Magn- ússon h-skytta. Frá okkur fóru Daði Lax- dal, Júlíus Stefánsson og bræðurnir geð- þekku úr Grafarvoginum, Þorgrímur Smári Ólafsson og Lárus Ólafsson, þeim er þakkað fyrir ánægjulegt samstarf. Þeg- ar þetta er ritað er komið jólafrí í Olís- deildinni og Valur í efsta sæti. Eins og áður er getið hætti Stefán Arn- arsson með mfl.kvenna og við liðinu tók Óskar Bjarni Óskarsson, honum til að- stoðar eru Arnar Daði Arnarson og Krist- ín Guðmundsdóttir sem einnig er spil- andi leikmaður. Frá okkur fóru eftir tímabilið: Anna Úrsula, Karólína Bæ- hrenz, Guðný Jenny, Sigríður Arnfjörð, Ragnhildur Rósa, Rebekka Rut og Hrafnhildur Skúladóttir. Ljóst er að þetta var mikil blóðtaka fyrir liðið og mikið starf er nú fyrir höndum hjá þjálfurum að byggja upp nýtt meistaralið. Öllum þess- um frábæru leikmönnum er þakkað fyrir góðan tíma hjá Val. Einnig viljum við þakka sérstaklega Berglindi Írisi Hans- dóttur fyrir að taka fram skóna og hlaupa í skarðið þegar Jenný meiddist, Begga stóð sig frábærlega og átti stóran þátt í Íslandsmeistaratitlinum 2014. Þjálfarar 2. flokks voru þeir Ragnar Óskarsson og Heimir Ríkarðsson og þeim til aðstoðar voru Maksim Akbac- hev, Ólafur I Stefánsson og Óskar Bjarni Óskarsson. Umtalað var að betur mann- aður bekkur af þjálfurum hafi ekki sést áður í 2. flokki. Nokkrir leikmenn brutu 50–100–150– 200–250 leikja múrinn og voru heiðr- aðir á lokahófi handknattleiksdeildar fyrir spilaða leiki í mfl. í Íslandsmóti en þeir eru: 50 + leikir: Þorgrímur Smári Ólafsson Lárus Helgi Ólafsson Vignir Stefánsson Aðalheiður Hreinsdóttir 100 + leikir: Hlynur Morthens Ægir Hrafn Jónsson Anna Úrsúla Guðmundsdóttir Karólína Bæhrenz Lárudóttir 150 + leikir: Orri Freyr Gíslason Elvar Friðriksson Rebekka Rut Skúladóttir Íris Ásta Pétursdóttir 200 + leikir: Sigurlaug Rúnarsdóttir 250 + Leikir: Berglind Íris Hansdóttir Breytingar haustið 2014 Af persónulegum ástæðum fékk Ólafur Stefánsson frí frá þjálfun mfl. karla til áramóta og við liðinu tóku þeir Jón Kristjánsson og Óskar Bjarni Óskarsson. Jón er óþarfi að kynna en hann er sá leik- maður og þjálfari sem hefur unnið flesta titla á sínum ferli í Val í sögu félagsins og því mikill fengur að fá hann til að hlaupa í skarðið fyrir Óla. Til liðs við Val komu Stephen Nielsen markmaður, Kári Svanur Gestsson og Evert Evertsson standa vaktina sem sjálfboðaleiðar á handboltaleikjum. Jón Kristjánsson hefur þjálfað meistara­ flokks lið karla í handbolta í haust með Óskari Bjarna Óskarssyni. Íslandsmeistarar í 5. flokki karla í handknattleik A liða 2014. Efri röð frá vinstri: Tjörvi Gíslason, Eiríkur Guðni Þórarinsson, Viktor Andri Jónsson, Arnór Snær Óskarsson, Sveinn Óli Guðnason, Orri Heiðarsson, þjálfari Maksim Akbchev. Neðri röð frá vinstri: Birgir Rafn Gunnarsson, Stiven Tobar, Úlfar Páll Monsi Þórðarson og Tumi Steinn Rúnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.