Valsblaðið - 01.05.2014, Page 43
Valsblaðið 2014 43
Starfið er margt
Besta ástundun: Agnes Edda Guðlaugs-
dóttir
Mestu framfarir: Kristín Ýr Jónsdóttir
Leikmaður flokksins: Harpa Karen
Antonsdóttir
Friðriksbikarinn: Snædís Logadóttir
8. flokkur karla
Í flokknum voru á bilinu 30–35 strákar
og æfðu þeir tvisvar í viku af mjög mikl-
um áhuga. Strákarnir tóku þátt í tveimur
mótum á árinu en það eru Vís-mót Þrótt-
ar og Arionbankamót Víkings. Á báðum
mótum stóðu strákarnir sig eins og hetjur
og voru flottir fulltrúar Vals. Á hverri
einustu æfingu mátti sjá áhuga, vilja,
leikgleði og kappsemi hjá þessum strák-
um og var einstaklega gaman að sjá
framfarirnar hjá þeim öllum.
Þjálfari er Aníta Lísa Svansdóttir og
henni til aðstoðar eru Nína Kolbrún
Gylfadóttir og Embla Hallfríðardóttir.
7. flokkur karla
Það var mikið að gera hjá 7. flokki karla
í ár. Þeir tóku mánaðarlega þátt í mótum
þar sem strákarnir stöðu sig vel og voru
félaginu til mikils sóma.
Hápunkturinn var Norðurálsmótið á
Akranesi en á það fóru 53 strákar sem
stóðu sig afar vel. Gaman var að fylgjast
3. flokkur kvenna
Í flokknum voru 21 iðkandi í árgöngum
1998 og 1999. Strax í upphafi var ljóst
að mikill metnaður og vilji einkenndi
hópinn og stefndu leikmenn hátt. Helstu
verkefni þessa tímabils voru Reykjavík-
urmótið, bikarkeppni KSÍ, Íslandsmótið
og utanlandsferð flokksins til Svíþjóðar á
Gothia Cup. Töluverð meiðsli hrjáðu
hópinn framan af tímabili og þess vegna
var tekin ákvörðun að tefla aðeins fram
einu liði í Íslandsmótinu. Ferðin á Gothia
Cup var hápunktur sumarins. Stelpurnar
og foreldrar þeirra höfðu skipulagt ferð-
ina og unnið að fjáröflun allt tímabilið.
Ferðin var frábær í alla staði og stóðu
stelpurnar sig mjög vel bæði innan sem
utan vallar. Gaman var að sjá stelpurnar
eiga í fullu tréi við „Elítu“ lið víðs vegar
úr heiminum.
Í þessum árgöngum eru margir leik-
menn sem við gætum séð inn á Voda-
fonevellinum á komandi árum. Til að
mynda voru tvær stelpur á bekknum í
síðasta heimaleik meistaraflokks kvenna
og vonandi eiga fleiri eftir að komast
þangað áður en langt um líður. Þessar
stelpur sýna okkur það að efniviðurinn er
mikill á Hlíðarenda og margir mjög efni-
legir leikmenn að koma upp úr yngri
flokka starfi félagsins.
undir 100% mætingu yfir allt tímabilið.
Stelpurnar æfðu 4 sinnum í viku allt
tímabilið.
4. flokkur sendi tvö lið til leiks í Ís-
landsmótinu og hafa bæði lið staðið sig
mjög vel. A-liðið var hársbreidd frá því
að fara í úrslitaleikinn eftir dramatík. B-
lið flokksins endaði í 2. sæti á Íslands-
mótinu.
Eins og áður hefur komið fram þá
mættu stelpurnar í 4. flokk mjög vel á
æfingar þetta tímabilið og einbeiting og
áhugi þeirra var alfarið í boltanum. Þess
vegna hafa margir leikmenn í flokknum
bætt getu sína inni á knattspyrnuvellin-
um gríðarlegar mikið þetta tímabilið.
Stelpurnar hafa líka bætt sig mikið sem
lið og hópur. Stelpurnar eiga því mikið
hrós skilið fyrir þá vinnu sem þær lögðu
á sig á þessu tímabili. Framtíðin er þeirra
ef þær halda áfram að leggja sig fram
innan sem utan vallar.
Þjálfarar settu það í hendurnar á leik-
mönnum flokksins að skipuleggja félags-
lega viðburði yfir tímabilið. Stelpurnar
skipulögðu þessa viðburði einu sinni í
mánuði og gerðu allt á milli himins og
jarðar.
Þjálfarar vilja koma þökkum á þá for-
eldra sem lögðu starfinu lið á líðandi
tímabili.
Besta ástundun: Diljá Hilmarsdóttir
Mestu framfarir: Katla Garðarsdóttir
Leikmaður flokksins: Hlín Eiríksdóttir