Valsblaðið - 01.05.2014, Page 57

Valsblaðið - 01.05.2014, Page 57
Framkvæmdir við 600 íbúða hverfi hefjast að Hlíð- arenda að öllum líkindum innan tíðar. Uppbygging á svæðinu hefur verið í bígerð frá árinu 2005. Samhliða uppbyggingunni verður ráðist í breytingar á íþrótta- svæði Vals að Hlíðarenda, með tilfærslu á gervigras- velli, fjölgun æfingavalla og byggingu knatthúss í hálfri stærð. Byggt á vinningstillögu Graeme Massie Útfærsla deiliskipulags Hlíðarenda byggir á vinningstillögu Graeme Massie í samkeppni um nýtt skipulag fyrir Vatnsmýr- ina frá árinu 2008. Markmið skipulagsins er að skapa hverfi með borgarbrag, með randbyggð, stórum sameiginlegum inngörðum og iðandi mannlífi. Fjölbreytni ríkir í byggingarstílnum, hvergi verða tvö eins hús hlið við hlið. Jafnframt eru húsin misjafnlega há, frá þremur upp í fimm hæðir. Skilyrði er sett um að gróður þeki 80% af inngörðum. Verslun og þjónusta verða á jarðhæð við breiðgötur. Við húsagötur verða neðstu íbúðirnar hálfri hæð yfir götu til að tryggja næði. Bílageymslur fyrir íbúa verða undir húsum og inn- görðum. Bílageymslur atvinnuhúsnæðis verða fyrir aftan það, til að auðvelda lestun og losun og koma í veg fyrir truflun af völd- um starfseminnar. Notast við blágrænar lausnir Hlíðarendi, líkt og Vatnsmýrin öll, er á vatnasvæði Reykjavík- urtjarnar. Kvöð er um að ofanvatni – regni og snjó – sé skilað ómenguðu út í jarðveginn til að koma í veg fyrir að Tjörnin og vatnasvæði hennar hverfi. Á svæðinu verður notast við svokall- aðar blágrænar lausnir. Gróðurþök húsa í Hlíðarenda taka við fanvatninu, sem rennur síðan beint út í jarðveginn en ekki í nið- urföll. Grænu þökin leiða einnig til orkusparnaðar vegna mikillar einangrunar og minnka þar með útlosun koltvísýrings. Fjórir Hlíðarendareitir Byggt verður á fjórum meginbyggingarreitum og tveimur minni. Áformað er að byggja fyrst á tveimur meginreitunum sem liggja að íþróttasvæði Vals og því næst á tveimur minni reitunum. Á síðarnefndu reitunum er gert ráð fyrir stúdentaíbúðum og hót- elíbúðum auk atvinnu- og þjónustuhúsnæðis. Í deiliskipulaginu er gengið út frá miklu samstarfi hagsmunaaðila á svæðinu. Til að tryggja öryggi íþróttaiðkenda og gesta á svæði Vals verður byggingarsvæðið ekki aðeins girt af, heldur verður sér- stakur afgirtur vegur lagður fyrir umferð þungavinnutækja. Þessi vegur verður síðan ein af húsagötunum þegar fram- kvæmdum lýkur. Gert er ráð fyrir allt að 16 flokkunarstöðvum fyrir sorp á svæðinu. Stórir flokkunargámar neðanjarðar taka við úrgangin- um og eru losaðir reglulega með því móti að þeim er lyft upp úr jörðinni í heilu lagi. Þannig má einfalda alla sorplosun og sorp- hirðu og draga úr kostnaði og ónæði sem fylgir þessum nauð- synlega hluta af lífi nútímamannsins. Hugmyndir eru uppi um að leikskóli verði í forbyggingu knatt- hússins og geti notað það þegar ekki viðrar til útiveru, svo og þakgarð sem verður á milli forbyggingarinnar og knatthússins. Gert er ráð fyrir að gervigrasvöllur af hálfri stærð verði í knatt- húsinu. Aðspurður um fyrirhugaða uppbyggingu á Hlíðarenda seg- ir Hörður Gunnarsson fyrrverandi formaður Vals: „Valur er eitt sigursælasta íþróttafélag landsins og það sigursælasta þeg- ar tekið er tillit til Íslands- og bikarmeistaratitla í meistaraflokki karla og kvenna í þremur vinsælustu íþróttagreinum landsins eða handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu. Á undanförn- um áratugum hefur félagið einbeitt sér að starfi í þessum þrem- ur íþróttagreinum með öflugu starfi. Valur er félag með ríka hefð fyrir sigurvilja, aga, dugnað og heilbrigði. Að Hlíðarenda vinna allir að sama marki, þ.e. að halda merki Vals hátt á lofti um ókomna framtíð með einkunnarorð séra Friðriks Friðrikssonar að leiðarljósi: „Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði.“ Félagið býður upp á góða aðstöðu til íþróttaiðkunar og afþreyingar sem á eftir að eflast enn frekar á næstu árum með byggingu nýrra íþróttamannvirkja í samræmi við hugmyndir Vals og Reykjavík- urborgar. Þegar þeim framkvæmdum verður lokið verður aðstað- an ein hin glæsilegasta á Norðurlöndunum.“ Kynning á Hlíðarendabyggð – Borgarsýn Í nýlegu hefti af Borgarsýn sem Reykjavíkurborg gefur út eru kynnt áform um uppbyggingu á Hlíðarenda og svokallaða Hlíðarendabyggð. Í þessari umfjöllun er stuðst við þá umföllun sem þar er birt Hörður Gunnarsson og Brynjar Harðarson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.