Valsblaðið - 01.05.2014, Page 98

Valsblaðið - 01.05.2014, Page 98
98 Valsblaðið 2014 Jón Freyr hefur æft fótbolta í 9 ár. Hann segir að Valur standi næst sér bæði and- lega og líkamlega og að á síðustu hafi Hlíðarendi orðið að hans öðru heimili og að ekkert annað lið hafi komið til greina. Hvers vegna fótbolti? „Flest allir vinir mínir byrjuðu í fótbolta snemma og það var alltaf spilaður fótbolti í öllum frímín- útum í skólanum svo það var lítið annað en fótbolti. Með fótboltanum æfi ég líka handbolta með 4. flokki Vals. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að hafa fengið Friðriksbikarinn? „Það kom mér á óvart þegar nafnið mitt var kallað. Það var virkilega skemmtilegt að fá Friðriksbikarinn og það hvetur mig áfram til dáða.“ Hvernig gekk ykkur á þessu ári? „Undirbúningstímabilið gekk ágætlega fyrir sig en sjálft tímabilið hefðum við getað gert miklu miklu betur og við vit- um það flestallir. Við tókum þátt í Reykj- arvíkurmótinu, Íslandsmótinu, bikar- keppninni og Rey Cup. Einnig fórum við í æfingaferð til Albir snemma sumars.“ Hvernig eru þjálfarar þínir? „Matthías og Valur eru virkilega skemmtilegir en vilja samt hafa aga og kunna vel að kenna. Einnig frétti ég að Fjalar verði með markmannsæfingar í vetur og bind ég miklar vonir um að læra af honum. Mér finnst Matti og Valur vera kjörið dæmi um góða þjálfara.“ Skemmtileg atvik úr boltanum. „Þegar við fórum til Albir á í sumar var HM að hefjast og fyrsti leikur Spánar í riðlinum var á móti Hollandi. Við strákarnir vor- um saman ásamt ófáum heimamönnum og horfðum á leikinn af skjávarpa. Það var gríðarleg stemning. Strákarnir fögn- uðu fimm mörkum Hollendinga og fóru heimamenn virkilega súrir og sumir tár- votir heim. Í sömu ferð var karoke kvöld á hótelinu sem við gistum á en þá tók Hrói eftirminnilega lagið Don’t Stop Be- lievin’. En það var nú einungis upphitun fyrir það sem koma skal því Dagur, Steinn og Jóhann tóku sig til og sungu Louder við gífurlegar undirtektir við- staddra.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót- boltanum? „Hjá Val er Andri Fannar fyrirmynd mín sem og Anton Ari. Har- aldur Björnsson hjá Sarpsborg, Kasper Schmeichel hjá Leicester og Claudio Bravo hjá Barcelona. Svo hefur Jack Wilshere líka alltaf verið í uppáhaldi.“ Hvað þarf til að ná langt? „Hugarfar, metnað og hæfileika. Hjá sjálfum mér þarf ég helst að bæta tæknina.“ Framtíðardraumar? „Að fá að spila með meistaraflokki Vals, fara kannski út í atvinnumennsku og að mennta mig vel. Eftir 10 ár sé ég mig fyrir mér spila með Val.“ Frægasti Valsarinn í fjölskyldunni? „Ætli ég sé ekki svarið, enda er fjöl- skylda mín meira í áhorfinu heldur en að iðka íþróttir.“ Stuðningur fjölskyldu? „Foreldarar mínir hafa alltaf hvatt mig áfram, þau horfa á marga leiki sem ég spila og eru alltaf til í að skutla mér á æfingar. Það er virkilega mikilvægt að hafa einhvern sem styður þig alltaf og er þér nærri.“ Hvað finnst þér mikilvægtast að gera hjá Val til að efla starfið í yngri flokk- unum? „Ég og nokkrir strákar í flokkn- um mínum hafa tekið sig til og byrjað að hjálpa til við að þjálfa. Einnig fannst mér þegar ég var yngri að fá leikmenn og/eða þjálfara úr meistaraflokki til að koma og kíkja á eina og eina æfingu virkilega hvetjandi.“ Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda til að æfa fótbolta? „Aðstaðan á Hlíðar- enda er fín en það er alltaf hægt að gera betur. Innanhúsgervigrasvöllur finnst mér ætti að vera efst á lista meðal fram- kvæmda því að gervigrasvöllurinn sem nú er til staðar er ekki upphitaður og frýs því oft á veturna. En framkvæmdirnar sem á að hrinda af stað í vetur líst mér mjög vel á.“ Hvað finnst þér að Valur geti gert til að stuðla að jafnrétti í íþróttum? „Sjálfur er ég aðstoðarþjálfari hjá 5. fl. karla og oft á föstudögum spila strákarnir með og á móti stelpunum í 5. fl kvenna. Þetta finnst mér frábært og væri til að sjá meira af.“ Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra Friðrik stofnaði Val 11. maí 1911.“ Hver eru þín einkunnarorð? „Áfram, hærra.“ Ungir Valsarar Maður þarf hugar- far, metnað og hæfi- leika til að ná langt Jón Freyr Eyþórsson er 15 ára og lekur með 3. flokki í knattspyrnu og er hand- hafi Friðriksbikarsins í ár
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.