Valsblaðið - 01.05.2015, Page 76

Valsblaðið - 01.05.2015, Page 76
76 Valsblaðið 2015 ari voru eitt sinn fjórtán leikmenn af sextán manna hópi sem höfðu notið leið- sagnar Lárusar. Sjálfur tók hann þátt í undirbúningi á 150 landsleikjum sem þjálfari eða aðstoðarmaður og ferðaðist til 26 landa. Lárus vann t.d. með Youri Ilitchev rússneska þjálfaranum, sem gerði Val að stórveldi og sennilega einu besta félagsliði á Íslandi, þýska lands- liðsmanninum Sigfried Held og Svíanum Bo Johansson. Lárus hvernig var Youri? „Hann var ekki þessi týpíski landsliðs- þjálfari. Teor ían var of mikil. Þegar þú ert landsliðsþjálfri og hefur hópinn í stuttan tíma þá þarftu að vera með skarpa áætlun og sýn.“ En hvernig var Bo? „Miðað við það sem ég hef séð af vinnubrögðum Lars Lagerbeck þá eru þeir Bo ákaflega líkir. Þeir fóru í gegnum sama skóla í Svíþjóð. Bo kom bara hing- að á þeim tíma þegar okkar bestu menn voru að hætta, leikmenn eins og Atli Eð- valdsson og Arnór Guðjónsen, Pétur Pét- ursson og allir þessir stólpar. Bo náði ágætis árangri en var óheppinn að því leyti að hann var ekki með hóp eins og þann sem skipar landsliðið í dag, unga menn sem eru að hefja sinn feril. Bo gerði síðan Silkiborg að Danmerkur- meisturum og varð síðar landsliðsþjálfari Dana og kom þeim í 16-liða úrslit á Evr- ópumóti. Hann var þarna eiginlega á há- tindi ferilsins. Við Bo höldum alltaf sam- bandi.“ Landsliðsþjálfari býr um rúm og kokkar í Múlakaffi Lárus og félagar hans sem störfuðu með drengja- og unglingalandsliðið þurftu að Lárus rær á ný mið Árið 1972 fer annar flokur Vals í keppn- isferð til Brummundal í Noregi með Lárus í broddi fylkingar. Valur lék þar við félög í nágrenni bæjarins m.a. við hið þekkta félag HamKam í Hamar. Árangur Valsmanna var með miklum ágætum og því voru menn baráttuglaðir og sigur- vissir þegar þeir héldu til Osló í sömu ferð til að taka þátt í Norway Cup mótinu sem þá var haldin í fyrsta skipti. Valur komst í 16 liða úrslit. Norway Cup hefur verið árviss viðburður allar götur síðan, eða í 43 ár. Þessi keppni kveikti áhuga Lárusar á frekari landvinningum sem þjálfari og nokkrum árum síðar tók hann við þjálfun unglingalandsliðsins. „Ég var fenginn til að taka við ung- lingalandsliðinu. Fyrsta landsliðsnefndin sem ég starfaði með var auk mín skipuð KR-ingnum Theodóri Guðmundssyni og Gissuri Guðmundssyni úr Breiðabliki. Við vorum allt í öllu. Þetta var liður í áætlun KSÍ í að veita strákunum reynslu og skila eins mörgum drengja- og ung- linglandsliðsmönnum upp í A-landsliðið og hægt var. Það tókst mjög vel. Í fyrsta unglingalandsliðinu voru Atli Eðvaldsson, Pétur Ormslev, Guðmundur Þorbjörnsson, Sigurður Björgvinsson úr Keflavík, Hálfdán Örlygsson úr KR og fleiri og fleiri sem sem stóðu sig svo síð- ar mjög vel með sínum félagsliðum og landsliðum. Þarna voru líka strákar eins og Pétur Pétursson og Arnór Guðjohnsen sem auk Atla áttu mjög farsælan feril sem atvinnumenn.“ Þó að nú sé farið að fenna í spor frum- herjanna þá náðu landslið undir stjórn Lárusar mjög góðum árangri. Ísland sló t.d. Dani, Norðmenn, Luxemborg og Wales út úr undankeppnum Evrópumóta. Sigurinn á Dönum var fyrsti sigur ís- lensks landsliðs á þeirri ágætu þjóð. „Þetta var mikið afrek.“ segir Lárus. Í liði Dana var t.d. sá frægi Brian Laudrup. „Svo sigruðum við einu sinni Englend- inga sem voru gestir á Norðurlandamóti. Ég gleymi því aldrei“ segir Lárus, enda Englendingar stórveldi í knattspyrnu. „Englendingarnir voru með David Sex- ton sem var frægur þjálfari og með alveg svaklegt lið aðstoðarmanna. Við unnum þá. Nefndarmenn frá enska knattspyrnu- sambandinu komu þá til okkar og spurðu hvernig okkar starfi væri háttað. Þessir ensku strákar voru búnir að fara í gegn- um rosalegan skóla en töpuðu svo fyrir Íslandi.“ Þegar Tony Knapp var landsliðsþjálf- Að þjálfa upp forystumenn Lárus hefur alla tíð haft mjög skýra sýn á hlutverk þjálfunar barna og unglinga, ekki einungis á íþróttasviðinu heldur ekki síður því félagslega. „ Við lögðum mikla áherslu á að gera strákana að góð- um Valsmönnum sem gætu nýst félaginu seinna meir. Þarna fóru í gegn strákar sem urðu formenn Vals og stjórnarmenn í deildum félagsins. Þetta er ekkert síður mikilvægt heldur en að leika á vellinum sjálfum.“ Hvernig aflaðir þú þér þekkingar sem þjálfari? „Fyrst þjálfaði ég bara eins og ég hafði verið þjálfaður. En árið 1970 fór ég á þjálfaranámskeið til Vejle í Danmörku. Það var fyrsta skrefið sem ég tók til að mennta mig sem þjálfari. Þá var ég búinn að sjá að þetta var eitthvað sem ég hafði áhuga á og gæti gert. Ég var samfellt við þjálfun í 30 ár með fullri vinnu. Þegar ég fór til Vejle fetaði ég í fótspor vinar míns Róberts Jónssonar sem hafði farið þang- að á námskeið árið áður. Þó að ýmsir hafi þjálfað hjá Val á þessum árum, t.d. eins og Helgi bróðir vorum við Róbert stólparnir í barna- og unglingaþjálfun hjá Val í langan tíma.“ Hver er munurinn á þjálfun á þessum árum og í dag? „Munurinn er kannski ekki svo mikill nema að þetta er orðið miklu skipulagð- ara í dag. Það er t.d. ekki lögð eins mikil áhersla á þol.“ Það var mikið hlaupið á æfingum hjá yngri flokkum Vals, hring eftir hring á malarvellinum. Sprettir með mann á bak- inu, boðhlaup og ýmis afbrigði af þrek- æfingum. Lárus stjórnaði þessu með harðri hendi og flautunni og hvatti menn til dáða. „Eftir að þessi knattspyrnuhús komu til sögunnar er ef til vill lögð meiri áhersla á tækni – og þó ekki.“ segir Lárus og verður hugsi. „Við lögðum reyndar mikla áherslu á tækni í gamla daga. Við kenndum strák- unum að „drepa“ bolta, taka á brjóstið og taka á móti boltanum. Annars finnst mér tækni í dag ábótavant. Þú sérð það til dæmis ef þú ferð á meistaraflokksleik hvað móttakan er slæm. Boltinn límist ekki við mennina. Annars er það mikil- vægast í yngri flokkunum að skapa áhuga og halda krökkunum við efnið því það eru mörg dæmi þess að krakkar sem ekki bar mikið á í yngri flokkunum sprungu út þegar í meistaraflokk kom.“ Lárus í veislu hjá enska knattspyrnusam- bandinu á Wembley. Sessunautur hans er Bobby Robson sem m.a. var um tíma landsliðsþjálfari Englendinga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.