Valsblaðið - 01.05.2015, Síða 93

Valsblaðið - 01.05.2015, Síða 93
Valsblaðið 2015 93 náði ég Bobby Fischer við Loftleiðahót- elið þegar hann hafði sigrað Spassky og var á leið á sigurhátíðina í Laugardals- höllinni. Endurfundir í Brummunddal Þessir atburðir rifjuðust upp nú í sumar er leið þegar ég gerði mér ferð til Brum- munddal fjörutíu og þremur árum eftir hina eftirminnilegu ferð. Björn Brend- lien, sem var gestur okkar fjölskyldunnar hér heima árið 1971, tók á móti mér ásamt syni sínum og sýndi mér fornar slóðir. Þó margt hefði breyst létti mér þegar ég sá að allt var með líku sniði í Brummunddal og árið 1972. Ég reyndi að upplifa eitthvað af þeim skemmtilegu stundum sem við áttum þarna fyrir fjöru- tíu og þremur árum, kalla fram gamlar minningar, en annar flokkur Vals var löngu horfinn á braut úr bænum og minningarnar farnar að dofna. Eftir að ég kom heim úr ferðinni í sumar hef ég hitt nokkra af þessum gömlu félögum mínum á förnum vegi. Það lyftist á þeim brúnin þegar ég segi þeim frá ferð minni til Brummunddal. Þeir ljóma og spyrja … „Jón, hittir þú nokkuð einhverjar stelpn- anna?“ Ekki urðu þær nú á vegi mínum mér vitanlega. Það væri nú reyndar gaman að vita hvar þær skyldu vera niðurkomnar í dag … jú víst væri það gaman … svo ekki sé nú talað um 100 kallana sem ég kom heilu og höldnu yfir sjó og land í hendur eigenda sinna við komuna heim. Við vit- um hins vegar hvað varð af Bobby Fischer. Sennilega hef ég haft orð á mér fyrir að ganga hægt um gleðinnar dyr og notið trausts meðal félaga minna því mér voru fengnir 100 kallarnir til varðveislu á meðan á ferðinni stæði. Ef ég man rétt, tók einn þeirra fram að ef hann yrði blankur í ferðinni og vantaði nauðsyn- lega peninga, mætti ég samt alls ekki undir nokkrum kringumstæðum láta hann hafa 100 kallinn. Ég áttaði mig þegar á því trausti sem mér var sýnt, tók varðveisluna mjög alvarlega og geymdi þennan fjársjóð vel alla ferðina. Þegar heim kom hvarflaði að mér að stæla eig- inhandaráritun Fischers, halda eftir upp- haflegu seðlunum og láta félaga mína fá falsaðar eiginhandaráritanir. Freistingin var mikil því ég var þá þegar búinn að fá eiginhandaráritun Spasskys en Fischer rann mér alltaf úr greipum. Nei, strákarnir fengu sína 100 kalla með réttri áritun og eftir margar tilraunir ir. Maðurinn sem stóð upp í hárinu á sjálfum Sovétríkjunum ætti sennilega ekki í vandkvæðum með að slá annan flokk Vals út af laginu. Bobby Fisher gerði hins vegar hlé á morgunverðinum og skrifaði nafn sitt á 100 kallana án vandræða. Okkur létti og kátir voru strákar sem höfðu nælt sér í eiginhandaráritun frægasta manns heims. Við hinir kannski svolítið spældir að hafa ekki þorað. En 100 kall hefur sennilega verði ein- hvers virði í þá daga því þeir sem áttu núna áritaðan 100 kall og það af sjálfum Bobby Fischer stóðu frammi fyrir því að hugsanlega myndu þeir nú þrátt fyrir allt freistast til að nota 100 kallinn, ja til dæmis í Fríhöfninni. Þetta voru mikil mistök. Venjulegur pappír hefði dugað og hundraðkallar voru nú ekki í vöndlum í vösum Valsaranna. Ferðin var dýr og ýmsar freistingar framundan í Brum- munddal og Osló. Það voru því full not fyrir alla þá hundraðkalla sem menn höfðu nurlað saman fyrir ferðina . Við vorum þó allir sammála um það, að áritaður 100 kall væri talsvert verðmætari en bara venjulegur 100 kall og því væri nú ýmislegt á sig leggjandi til að halda honum utan seilingarfjarlægðar buxna- vasa og seðlaveskja. Nú lá við að hugsa hratt svo peningunum yrði ekki eytt. Handhafar hundraðkallanna sem senni- lega voru nú framhleypnustu meðlimir hópsins og veikir fyrir lystisemdum lífs- ins, áttu í miklum vanda hvernig geyma skyldi verðmætin. Eftir þó nokkrar bolla- lengingar kom loks lausnin – Jón! Endurfundir í Brummunddal eftir 43 ár. Jón Guðmundsson (t.h.) við fótboltavöllinn í Brummunddal með Björn Brendlien, en þeir hafa haldið sambandi frá því að 2. flokkur Vals fór í æfingaferð þangað. Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár Garðar Vilhjálmsson Gísli Arnar Gunnarsson Grímur Karl Sæmundsen Guðjón Harðarson Guðlaugur Björgvinsson Guðmundur Hansson Guðni Bergsson Hafrún Kristjánsdóttir Hanna Katrín Friðriksson Hans B. Guðmundsson Helgi Magnússon Helgi Rúnar Magnússon
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.