Valsblaðið - 01.05.2015, Síða 97

Valsblaðið - 01.05.2015, Síða 97
Valsblaðið 2015 97 Starfið er margt unni þinni? „Ætli það sé ekki Eva Hall- dórsdóttir frænka mín, sem spilaði með Val á sínum tíma. Annars held ég að pabbi minn, Þormóður Egilsson sé besti íþróttamaður fjölskyldunnar.“ Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú fengið frá foreldrum þínum og fjöl­ skyldu í sambandi við fótboltann, hversu mikilvægur er stuðningur for­ eldra að þínu mati? „Fjölskyldan mín styður mig í öllu því sem ég geri, hvort sem það er innan eða utan vallar. Ég tel það vera fyrir öllu að njóta stuðnings heima fyrir og hjálpar, því það auðveldar svo sannarlega leiðina að árangri.“ Hvað finnst þér mikilvægast að gera hjá Val til að efla starfið í yngri flokk­ um félagsins? „Mér finnst það aðallega vera aðstaðan sem mætti betur fara, en undanfarin ár hef ég stundum þurft að fara t.d. á Framvöllinn á æfingar vegna þess að gervigrasið á Hlíðarenda var ónothæft. Mér finnst aðstaðan núna fín og ég tel hana hafa batnað töluvert með tilkomu nýja gervigrassins. Þrátt fyrir það þætti mér ekkert verra að stækka grassvæði og æfingasvæði eða jafnvel byggja innihöll þar sem eldra gervigrasið stendur nú.“ Hvað finnst þér að Valur geti gert til að vinna gegn einelti í íþróttum? „Mér finnst mikilvægt að það sé næg forvarn- arfræðsla og að hana eigi að vera hægt að nálgast hjá félaginu. Þar að auki finnst mér að Valur ætti að leggja ríka áherslu á að iðkendur komi vel fram hver við ann- an og láti ekki kappið bera fegurðina ofur liði.“ Hver stofnaði Val og hvenær? „Sr. Friðrik Friðriksson árið 1911.“ Hver eru þín einkunnarorð? „Þú upp- skerð eins og þú sáir.“ Mist hefur æft fótbolta með Val í fjögur ár, frá því í 4. flokki. Hún gekk í Val vegna þess að hún vildi ná árangri í fót- bolta og vissi að í Val væri mjög öflugt lið og skemmtilegar stelpur. Hvers vegna fótbolti? „Ég æfði fim- leika síðan ég var sex ára þangað til ég varð 13 ára. Þar að auki æfði ég hand- bolta undanfarin tvö ár. Ég ákvað að velja fótboltann af því mér þykir svo gaman og mig langar að ná árangri í greininni.“ Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að hafa fengið Friðriksbikarinn? „Fyrir mig hefur það mjög mikla þýðingu að hafa fengið þessi verðlaun þar sem ég reyni alltaf að koma vel fram við aðra, vera góður liðsfélagi og standa mig vel. Tilfinningin var að sjálfsögðu frábær.“ Hvernig gekk ykkur á þessu ári? „Þetta ár var það skemmtilegasta sem ég hef upplifað í fótboltanum. Við tókum þátt í Reykjavíkurmótinu, ReyCup, Ís- landsmótinu og bikarkeppni og stóðum uppi sem sigurvegarar á öllum mótum fyrir utan bikarkeppnina þar sem við vor- um slegnar út. Hópurinn er frábær í alla staði og er ekki hægt að biðja um betri liðsfélaga. Þar að auki er tengingin inni á vellinum ótrúleg og ég hef sjaldan séð annan eins karakter í einu liði. Að spila með þessum stelpum eru forréttindi og ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að vera hluti af þessu liði.“ Hvernig eru þjálfarar þínir? „Þjálfar- inn minn í ár og þjálfararnir sem ég hef verið með hér í Val eru allir frábærir. Þeir eru með mikinn metnað fyrir því sem þeir gera og mikla þekkingu á sínu sviði sem þeir kunna að miðla til okkar leik- mannanna á skiljanlegan hátt. Þar að auki eru þeir mjög skemmtilegir og alltaf til í að hjálpa manni ef þörf er á. Án þessara þjálfara hefðum við aldrei náð þeim árangri sem við höfum náð á síð- ustu árum.“ Skemmtileg atvik úr boltanum. „Á ár- unum mínum í Val hef ég upplifað mjög margt skemmtilegt. Þar má kannski helst nefna ferðinar sem við förum farið sam- an í eins og á Akranes, Akureyri, til Sví- þjóðar og á Selfoss. Síðan á ég líka enda- lausar minningar um skemmtileg atvik á æfingum, sem eru mjög mörg. Mér fannst til dæmis mjög skemmtilegt þegar við fórum í ferðir og vorum tímunum saman að halda á lofti, spjalla saman og fara í leiki. Þannig kynnist maður liðs- félögunum betur og skemmtir sér vel í leiðinni. Fyrsta atvikið sem kemur upp í hugann á mér er þó þegar við vorum að keppa á Gothia Cup og Rosalie Rut tókst að klessa á ljósastaur á miklum hraða. Það var mjög fyndið og eftirminnilegt at- vik atvik og sem betur fer var allt í lagi með Rósu.“ Fyrirmyndir þínar í fótboltanum? „Ég lít mikið upp til Lionel Messi og Steven Gerrard en pabbi minn er mín helsta fyr- irmynd.“ (Þormóður Egilsson KR). Hvað þarf til að ná langt í fótbolta eða íþróttum almennt? „Dugnaður, þolin- mæði og að hafa gaman af því sem mað- ur gerir er að mínu mati það mikilvæg- asta. Persónulega mætti ég stundum til- einka mér hið síðasta og leggja keppnisskapið til hliðar um stund.“ Hverjir eru þínir framtíðardraumar í fótbolta og lífinu almennt? „Í framtíð- inni dreymir mig um að flytja til Banda- ríkjanna og fara í háskóla þar, þar sem ég get spilað fótbolta í leiðinni. Síðan lang- ar mig að læra fjölmiðlafræði og ferðast um heiminn. Ég veit ekki enn hvar ég sé mig eftir 10 ár, en ég vona að ég verði að gera það sem mér finnst skemmtilegast.“ Hver er frægasti Valsarinn í fjölskyld­ Gekk í Val því ég vildi ná árangri í fótbolta Mist Þormóðsdóttir er 16 ára og leik- ur knattspyrnu með 2. flokki og hlaut Friðriksbikarinn á uppskeruhátíðinni í haust
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.