Öldrun - 01.05.2007, Blaðsíða 29
2
ÖLDRUN – 25. árg. 1. tbl. 2007 www.oldrun.net
ýmsu stöðum eins og Landlæknisembættinu, Háskóla Ís
lands og heilbrigðisstofnunum auk fastráðinna kennara
við skólann.
Námið hefur þann tilgang að auka færni og þekkingu
sjúkraliða til að hjúkra öldruðum í samræmi við mark
mið hjúkrunar og nýjar hugmyndir í öldrunarfræðum.
Hlutverk námsins er einnig að auka sjálfstæði og ábyrgð
sjúkraliða í störfum sínum innan og utan stofnana. Nám
ið hentar vel þeim sjúkraliðum sem hafa mikinn metnað,
áhuga og vilja til að starfa við hjúkrun aldraðra og með
þeim.
Námið
Eftir sjúkraliðanám frá viðurkenndum skóla og fjög
urra ára starfsreynslu sem sjúkraliði er hægt að hefja eins
árs framhaldsnám í hjúkrun aldraðra við Heilbrigðisskól
ann við Ármúla. Námið er 43 einingar og hefst á vorönn
sem lýkur með prófum. Þá tekur við átta vikna starfsnám
á öldrunarstofnun undir leiðsögn hjúkrunarfræðinga.
Seinni önnin hefst að hausti og eru nemendur brautskráð
ir í desember ár hvert. Fjarnám er nú í boði á vorönn í ann
að sinn. Samkvæmt námsskrá menntamálaráðuneytisins
frá 2002 er markmiðið með náminu út frá námsskránni að
þeir sjúkraliðar sem lokið hafa sérnámi í hjúkrun aldraðra
séu færir um að standast kröfur öldrunarþjónustunnar um
nákvæmni, áreiðanleika og fagleg vinnubrögð.
Námið byggist m.a. á eftirfarandi liðum:
Hjúkrun: Er fjórir áfangar, þar er lögð áhersla á að þekkja
eðlilegar öldrunarbreytingar og öldrunarsjúkdóma.
Kennd eru hjúkrunarskráningarform, farið er í RAI mat,
hugmyndafræði öldrunar og fjölskylduhjúkrunar út frá
heildrænni mynd og mikilvægi hennar við hjúkrun aldr
aðra. Þjóðfélagsleg viðhorf til aldraðra, sögu hjúkrunar og
gildi hennar í starfi.
Sálfræði: Er tveir áfangar þar sem farið er í tjáningar og
samskiptaform ásamt viðtalstækni. Kenndar eru leiðir við
lausn árekstra í samskiptum, gildi samræðunnar í sam
skiptum og áhrif eigin viðhorfa á túlkun umræðuefnis. Að
nemandi þekki sorgar og áfallaviðbrögð og viti hvað felst
í áfallahjálp.
Umfjöllun um viðhorfamyndanir og fordóma. Mis
munandi hefðir ólíkra menningarheima skoðaðar. Skoð
að er hvað átt er við með starfsánægju og góðu vinnu
umhverfi og hvað hver einstakur starfsmaður getur lagt
af mörkum til að bæta þessa þætti. Áhersla er lögð á vinnu
út frá reynsluheimi nemanda. Nemendur vinna og kynna
verkefni um ýmsar geðraskanir t.d. fælni og áráttu/þrá
hyggju.
Upplýsingatækni: Þar eru tveir áfangar, sem byggjast á
upplýsingaleit og helstu formum skráninga á vefrænu
formi. Markmiðið er að öðlast færni í almennri tölvunotk
un, þjálfun í notkun algengasta notendahugbúnaðar ásamt
skjalavörslu í tölvum.
Að nemandi geti sett fram og túlkað upplýsingar í töflu
reikni. Að kynna sér skráningu persónuupplýsinga í skrán
ingakerfi sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnana.
Kennslufræði: Er einn áfangi, áhersla er lögð á þjálfun í
að leiðbeina og að fræða skjólstæðinga, aðstandendur og
samstarfsfólk.
Lyfhrifafræði: Er áfangi þar sem lögð er áhersla á að þekkja
þær breytingar sem eiga sér stað hjá öldruðum hvað varð
ar skömmtun, verkun, aukaverkanir og milliverkanir lyfja.
Jafnframt að öðlast grunnþekkingu á nokkrum lyfjaflokk
um sem tengjast öldrun og öldrunarsjúkdómum.
Lífeðlisfræði: Fjallar um helstu líffræðilegu breytingar sem
verða á starfsemi líkamans við öldrun.
Stjórnun: Áhersla er lögð á þekkingu og skilning á upp
byggingu íslenska heilbrigðiskerfisins, gæðastjórnun,
stjórnunarferlinu og ýmsum grunnhugtökum í stjórnun
ásamt notagildi þeirra í starfi.
Heilbrigðisfræði: Að þekka helstu áhrifaþætti heilbrigðrar
öldrunar og hvernig hægt er að hafa áhrif á þá með heilsu
eflingu og forvörnum. Gera sér grein fyrir áhrifum vinnu
staðar á heilsu og líðan starfsmanna. Að þekkja helstu
lagalegu og félagslegu réttindi aldraðra.
Verknám: Fer fram á öldrunarstofnunum í átta vikur und
ir leiðsögn leiðbeinanda sem er hjúkrunarfræðingur. Þar
fær nemandinn þjálfun í að nýta aðferðir og þekkingu við
raunverulegar aðstæður, t.d. að nota hjúkrunaráætlanir á
markvissan hátt. Að axla aukna ábyrgð við hjúkrun út frá
heildrænni nálgun. Taka þátt í þverfaglegri vinnu í hjúkr
un aldraðra.
Hér hefur verið stiklað á stóru varðandi námsgreinar
og námstilhögun. Nánari upplýsingar er að finna í Heil
brigðisskólanum við Ármúla og hjá Menntamálaráðuneyt
inu.
Starfsumhverfi
Þess má geta að umhverfið var ekki tilbúið að taka á
móti þessum vel menntuðu sjúkraliðum og voru margir
vannýttur starfskraftur í mislangan tíma. Það heyrir nú til
undantekninga. Starfssvið sjúkraliða með sérnám í hjúkr
un aldraðra er mjög víðtækt og í samræmi við kröfur um
fjölbreytt úrræði í öldrunarþjónustunni sem fjölgar stöð
ugt í samtímanum. Þar má nefna hjúkrunarheimili, heilsu
gæslustöðvar, heimahjúkrun, dagdvöl, sambýli aldraðra,
félagsþjónustu aldraðra, sjúkrahúsin, öldrunardeildir og
nú síðast á lyflækningasviði. Á þessum stöðum eru starf
andi sjúkraliðar með sérnám ýmist sem forstöðumenn,
deildarstjórar, verkefnastjórar o.fl.
Verkefni
Verkefni sjúkraliða með sérnám í hjúkrun aldraðra
samkvæmt námsskrá er að geta:
• Staðið sjálfstæðar vaktir og skipulagt vinnu sam
starfsmanna á vakt í samráði við yfirmann og gef
ið skýrslu um vaktina að henni lokinni
• Sinnt sjúklingum og skjólstæðingum í samræmi
við hjúkrunaráætlun og tekið ákvörðun um hve
nær kalla skuli út aðstoð