STARA - 16.04.2015, Page 25
S
T
A
R
A
n
o
.3
1.T
B
L
2
0
15
25
Framþróun framsækinnar fagurfræðilegrar
ljósmyndunar á Íslandi og aukin virðing og
skilningur á ljósmyndamiðlinum hafa verið
markmið Félags íslenskra samtímaljósmyndara,
FÍSL, frá stofnun þess árið 2007. Félagið er
vettvangur til að ræða og kanna ljósmyndina
sem listform.
FÍSL var stofnað árið 2007 af átta ljósmyndurum
með það fyrir augum að auka vegsemd ljósmynda-
miðilsins og vinna að því að ljósmyndurum á
Íslandi takist að vinna að list sinni. Síðan þá
hefur félagið staðið fyrir sýningum og viðburð-
um, meðal annars á Þjóðminjasafni Íslands,
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, í Norræna húsinu
og Gallery Hippolyte í Helsinki þar sem sýning-
in Frontiers of Another Nature opnaði árið 2013.
Auk þess hefur félagið átt í samstarfi við erlend
ljósmyndafélög og stofnanir. European Border-
lines var samstarfsverkefni milli fjögurra
Evrópulanda þar sem ungir ljósmyndarar fengu
tækifæri til að ferðast til annars þátttökulands
og vinna þar ljósmyndaverk sem sýnd voru í
viðkomandi löndum; Portúgal, Tyrklandi,
Lettlandi og Íslandi.
Sýningin Endurkast opnaði árið 2008 í Þjóðminja-
safninu með verkum eftir stofnmeðlimi FÍSL.
Samhliða sýningunni kom út bókin Endurkast
– íslensk samtímaljósmyndun með viðtölum
Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur við ljósmynd-
arana auk heimspekilegra hugleiðinga Hjálmars
Sveinssonar um verkin.
Ljósmyndahátíðin Ljósmyndadagar var
haldin í fyrsta sinn í febrúar 2012 í samstarfi
við Ljósmyndasafn Reykjavíkur og fer hún nú
fram á tveggja ára fresti. Hátíðin hefur það
að markmiði að stuðla að metnaðarfullum
ljósmyndasýningum fyrir almenning og ljós-
myndaáhugafólk og einnig að gefa íslenskum
ljósmyndurum tækifæri til að kynna verk sín
fyrir erlendum og innlendum sýningarstjórum
og fagfólki í greininni í svokallaðri ljós-
myndarýni (e. portfolio review).
Veturinn 2012-2013 stóð félagið fyrir fyrir-
lestraröð í Þjóðminjasafni Íslands þar sem
fræðimönnum og listamönnum var boðið að
spjalla saman um ljósmyndaverk. Sköpuðust þar
fræðandi og skemmtilegar umræður um ljós-
myndina sem listmiðil.
Í dag eru tæplega 30 meðlimir í félaginu og
ýmislegt á döfinni. Í maí næstkomandi mun
FÍSL taka þátt í pólsku ljósmyndahátíðinni
WFFA í Varsjá og í júní mun félagið standa
fyrir ljósmyndasýningunni ÍSÓ á Ísafirði þar
sem meðlimir félagsins sýna ný verk. Sýningin
verður með óformlegu sniði og verður eins
konar uppskeruhátíð með viðburðum og
almennum skemmtilegheitum.
„Í dag eru tæplega 30 meðlimir í
félaginu og ýmislegt á döfinni. Í
maí næstkomandi mun FÍSL taka
þátt í pólsku ljósmyndahátíðinni
WFFA í Varsjá og í júní mun
félagið standa fyrir ljósmynda-
sýningunni ÍSÓ á Ísafirði“