Són - 01.01.2004, Page 24

Són - 01.01.2004, Page 24
VALGERÐUR ERNA ÞORVALDSDÓTTIR24 Gamansemi Sighvats nær hámarki í sjöundu vísu: Fórk at finna báru, fríðs vættak mér, síðan brjót, þanns bragnar létu, bliks, vildastan miklu. Grefs leit við mér gætir gerstr. Þá es illr enn versti, lítt reiðik þó lýða lÄst, ef sjá es enn bazti. Fórk síðan at finna báru bliks brjót, þanns bragnar létu miklu vildastan; vættak mér fríðs. Grefs gætir leit gerstr við mér. Þá es enn versti illr, ef sjá es enn bazti; lítt reiðik þó lÄst lýða. Sjónarhornið er enn hjá Sighvati. Í fyrri vísuhelmingi lýsir hann því þegar hann fer til fundar við enn einn bóndann. Sá er að sögn mikill höfðingi heim að sækja svo að Sighvatur þykist viss um að fá góðar móttökur. Væntingar hins vegmóða ferðalangs kristallast í kenning- unni báru bliks brjótr; báru blik er gull og brjótr þess er örlátur maður. Skáldið hefur varla vænst þess að þiggja gull og gersemar af hús- bóndanum heldur langþráð húsaskjól og veitingar. Í síðari vísu- helmingi er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn. Báru bliks brjótr- inn reynist heimalningslegur bóndadurgur, grefs gætir, og síst gest- risnari en grannar hans. Sighvatur dregur upp kostulega mynd af búralegum kotbóndanum sem gætir graftóla sinna eins og sjáaldurs auga síns. Stofnorðið gætir er sérlega vel valið. Það kemur oft fyrir í kenningum um hermenn, konunga og aðra höfðingja og síðar er það algengt í kristilegum kvæðum í kenningum um Guð, Krist og kirkj- unnar menn.48 Þeir sem þekktu til skáldamálsins hafa strax sett orðið í sambandi við eitthvað háleitt og verðmætt, ekki skóflur og rekur smábónda. IV Sighvatur er alls ekki eina dróttkvæðaskáldið sem hæðist að bændum og búaliði. Hirðskáld konunga litu stórt á sig enda höfðu þau ákveðna sérstöðu við hirðina; sum voru ráðgjafar eða jafnvel nánir 48 Lexicon poeticum (1931:212).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.