Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2010, Blaðsíða 45
45Að undirbúa nám í nýjum skóla
Tímarit um menntarannsóknir, 7. árgangur 2010
nemendur geta náð góðum námsárangri án
þess að hægt sé að rekja það beint til starfsins í
skólanum, t.d. fyrir eigin burði eða með stuðn -
ingi frá fjölskyldu (macgilchrist, myers og
reed, 2004). schein (2004) telur áhrif stjórn -
anda á störf og sérkenni stofnunar hvað mest á
fyrstu árum hennar því sú stefna og sýn sem
lagt er upp með í upphafi eigi gjarnan ræt ur að
rekja til hans og hann geti valið fólk til að fylgja
henni.
mannaráðningar eru taldar lykilatriði fyrir
faglega þróun skóla og því mikilvægt að skóla -
stjóri sé virkur í ráðningarferlinu. Þaulhugsuð
áætlun og skipulag ráðninga er grundvöllur þess
að ráða skilvirka kennara til skóla (schaefers og
Terhart, 2006).
í 1. mynd eru sett fram tengsl þátta í starfi
skólans og sérstaklega þeirra sem þarf að huga
að í nýjum skóla. skólinn sem er til athugunar í
þessari rannsókn stefnir að því að stofna náms -
samfélag og tileinka sér einstakl ings miðaða
kennslu í viðleitni sinni til að auka og efla
námsárangur innan skólans. sumir þessara þátta
eru teknir til umræðu hér á eftir.
Forysta til náms
áherslur í skólastjórnunarfræðum snúast gjarn -
an um tvær leiðir í forystu. annars vegar er það
sú sem hefur verið kölluð valdaforysta (e.
transactional) og leggur áherslu á sterka mið -
stýringu og stjórn á skólakerfinu og formgerð
þess. Hins vegar er um að ræða svokallaða
áhrifaforystu eða framsækna forystu (e. trans -
formational) þar sem lögð er áhersla á að dreifa
valdi og áhrifum meðal starfsfólks. Þeir sem
beita framsækinni forystu leggja áherslu á sam -
eiginlega ákvarðanatöku, hafa væntingar um
góða frammistöðu nemenda og eru opnari fyrir
menningarlegum breytingum en þeir sem að -
hyllast þá fyrrnefndu (anna kristín sigurðar -
dóttir, 2006; sergiovanni, 2006).
Framsækin forysta virðist hafa bein áhrif á
skuldbindingu kennara til umbóta í skólastarfi
og þá vinnu sem þeir eru tilbúnir að leggja á sig
til slíkra umbóta. Þetta leiðir svo af sér aukinn
innri hvata hjá kennurum og hefur áhrif á
kennsl una og framkomu við nemendur sem síð -
an skilar sér í auknum árangri nemenda (geijsel,
sleegers, Leithwood og Jantzi, 2003). skóla -
stjórnendur sem vinna í anda framsæk innar
1. mynd. Forysta til náms í nýjum skóla.
Tímarit um menntarannsóknir_Layout 1 1/17/11 5:18 PM Page 45