Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 15.07.2002, Blaðsíða 1
25. tbl. /02
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 25. tbl. 10. árg. nr. 308 15. júlí 2002
Leiðrétting
Síðasta tölublað var ranglega dagsett 1. júní.
Rétt dagsetning var 1. júlí 2002.
Auglýsingar útboða
Hringvegur (1) um Hnausakvísl,
vegtengingar 2002 - 2003 02-007
Vegagerðin, Norðurlandi vestra, óskar eftir tilboðum í
verkið Hringvegur (1) um Hnausakvísl, vegtengingar
2002 - 2003. Verkið er fólgið í gerð 220 m langs bráða-
birgðavegar og tengingu nýrrar brúar á Hnausakvísl á um
560 m löngum kafla.
Helstu magntölur: fyllingar og fláafleygar 8.500 m3,
burðarlög 2.600 m3, malarslitlag 160 m3,
tvöföld klæðing 4.200 m2, grjótvörn 300 m3,
frágangur fláa 6.700 m2.
Verki skal að fullu lokið 1. júní 2003.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Sauðárkróki
og í Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka), frá og með mánu-
deginum 15. júlí 2002. Verð útboðsgagna er 1.500 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 mánu-
daginn 29. júlí 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14:15
þann dag.
Votmúlavegur (310) 2002,
styrking og klæðing 02-075
Vegagerðin, Suðurlandsumdæmi, óskar eftir tilboðum í
gerð Votmúlavegar (310) frá Eyði-Sandvík að Jórvík, um
1,2 km.
Helstu magntölur eru: fyllingar 2.760 m3,
fláafleygar 750 m3, neðra burðarlag 4.210 m3,
efra burðarlag, unnið efni 865 m3, ræsi 18 m,
tvöföld klæðing 7.700 m2, frágangur fláa 7.785 m2.
Verki skal að fullu lokið 20. september 2002.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Selfossi og í
Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka), frá og með mánudegin-
um 15. júlí 2002. Verð útboðsgagna er 1.500 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 mánu-
daginn 29. júlí 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14:15
þann dag.
Tilboð Hlutfall Frávik
nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.)
15
14
13
12
---
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
Hringvegur (1), vegur um Þjórsá
Tilboð opnuð 8. júlí 2002. Suðurlandsumdæmi.
Nýbygging 4 km vegar beggja vegna Þjórsár, auk teng-
inga. Þessi vegagerð er vegna fyrirhugaðrar brúar á Þjórsá.
Verkið er boðið út á evrópska efnahagssvæðinu.
Helstu magntölur: fyllingar og fláafleygar 201.300 m3,
bergskeringar 108.400 m3, neðra burðarlag 33.300 m3, efra
burðarlag 8.700 m3, axlarefni 3000 m3, klæðing 34.200 m2.
Verki skal lokið 15. september 2003.
Strókur ehf., Reykjavík 277.568.000 122,4 127.721
Klæðning ehf., Kópav. 258.234.500 113,9 108.388
Borgarverk ehf., Borgn. 243.183.000 107,2 93.336
Jarðvélar ehf., Rvk. 239.453.500 105,6 89.606
Áætlaður
verktakakostnaður 226.818.990 100,0 76.972
Berglín ehf.,
Stykkishólmi 223.385.000 98,5 73.538
Norðurtak ehf.,
Sauðárkróki 206.372.900 91,0 56.526
Ístak hf., Reykjavík 202.300.439 89,2 52.453
Nesey ehf., Skeiða-
og Gnúpverjahreppi 199.384.000 87,9 49.537
Vörubílstjórafélagið
Mjölnir, Selfossi 190.000.000 83,8 40.153
Héraðsverk ehf.,
Egilsstöðum 188.314.107 83,0 38.467
RSB Flóa og Skeiða,
Selfossi 188.000.000 82,9 38.153
Ingileifur Jónsson ehf.,
Svínavatni 173.906.000 76,7 24.059
Suðurverk hf.,
Hafnarfirði 167.452.000 73,8 17.605
Íslenskir aðalverktakar,
Reykjavík 157.861.000 69,6 8.014
Háfell ehf., Reykjavík 149.847.000 66,1 0
Niðurstöður útboða
Framkvæmdafréttir á netið
Nú er farið að birta Framkvæmdafréttir á vegagerdin.is
sem pdf skjöl (lesin með Acrobat reader). Auglýsingar
og niðurstöður útboða eru einnig birt á hefðbundnum
vefsíðum um leið og upplýsingar liggja fyrir.