Nesfréttir - 01.10.2014, Blaðsíða 2
Ungmenni eru nú í öllum
nefndum hjá Seltjarnarnesbæ.
Aðdragandi þess er að á
sínum tíma fór Ungmennaráð
Seltjarnarnesbæjar fram á það
við Ásgerði Halldórsdóttur
bæjarstjóra að fulltrúar þess fengju
að taka virkari þátt í nefndarstarfi
bæjarins. Vel var brugðist við þeirri
málaleitan og í fyrra var stigið fyrsta
skrefið í þá veru með samþykki
allra kjörinna fulltrúa bæjarins.
Ungmennaráð Seltjarnarnesbæjar
hefur nú nýlega skipað fulltrúa í
allar stærstu nefndir bæjarins
þar sem það hefur málfrelsi og
tillögurétt.
Fulltrúar ungmennaráðsins eru
þau Anna Lilja Björnsdóttir og
Victor Levi Ferrua Teitsson í íþrótta-
og tómstundanefnd, Lillý Óladóttir
og Tómas Helgi Kristjánsson í
menningarnefnd, Kristján Hilmir
Baldursson og Ísak Arnar Kolbeinsson
í skipulags- og mannvirkjanefnd,
Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir og
Benedikt Bjarnason í skólanefnd og
Victor Levi Ferrua Teitsson og Geir
Zoëga í umhverfisnefnd. Að sögn
Ásgerðar er mikil ánægja meðal
bæjarstjórnarmanna með setu unga
fólksins á Nesinu í nefndunum og
afar mikilvægt að sjónarmið þeirra
komist milliliðalaust til skila. Það
styður einnig við áherslu bæjarins
um lýðræðislega þátttöku bæjarbúa
um málefni bæjarins. Á fundunum fá
fulltrúar Ungmennaráðsins tækifæri
til að ræða og meta stöðu sína í eigin
samfélagi og grundvöll til að eiga
samtal við aðra nefndarmenn sem
starfa í stjórnsýslunni. Ungmennaráð
Seltjarnarness er afar öflugur
félagsskapur sem leggur áherslu á
samveru og fagnaðarfundi með eldri
borgurum auk þess að starfa ötullega
að jafningjafræðslu. Seltjarnarnesbær
er eitt fárra bæjarfélaga á landinu
sem hefur stigið þetta skref í því skyni
að efla þátttöku og virkni ungmenna
bæjarins en ávinningurinn skilar sér
í gagnsærri stjórnun þar sem frjó og
opin skoðanaskipti eru ríkjandi.
ÚT GEF ANDI:Borgarblö›,Eiðistorgi13-15,170Seltjarnarnes,Pósthólf172.S: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
RITSTJÓRI:KristjánJóhannsson•ÁBYRG‹ AR MA‹ UR:KristjánJóhannsson•BLAÐAMAÐUR: ÞórðurIngimarsson
UM BROT:ValurKristjánsson•NETFANG:borgarblod@simnet.is•HEIMASÍ‹A:borgarblod.is
Nesfréttir koma út mána›arlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi
2 Nes frétt ir
www.borgarblod.is
Nesið hefur margt
að bjóða
Leið ari
Er ekki kominn tími til að breyta
Nesstofutúninu í útivistarsvæði?
Nesbúinn
Ferðaþjónusta er yngsti atvinnuvegur landsmanna. Fjölgun ferða-manna og vöxtur og þjónustu við þá er mun meiri en nokkurn gat órað fyrir sé farið nokkur ár aftur í tímann. Sú uppbygging sem
hefur náðst eftir hrunið 2008 er að hluta til fjölgun ferðafólks að þakka
og því hvernig landsmenn hafa nýtt sér þá möguleika sem henni fylga.
Víða um land hafa bæjar- og sveitarfélög tekið þessum nýju
atvinnumöguleikum fengins hendi og stutt við þá með þeim hætti sem
þeim er fært. Að öllu jöfnu kemur það þeim sjálfum og fyrirtækjum
og verslunum sem eiga viðskipti við ferðamennina til góða. Engu er
líkara en íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi ekki veitt þessum nýju
atvinnumöguleikum athygli utan þeirra sem búa eða starfa í miðborg
Reykjavíkur – títt nefndum 101um. Lítið er um ferðaþjónustu á öðrum
stöðum þótt finna megi einstaka gististaði utan miðborgarinnar.
Að þessu leyti er Seltjarnarnes engin undantekning. Að því er virðist
er enga starfsemi þar að finna sem tengjast þessum atvinnuvegi. Mögu-
leikarnir eru þó fyrir hendi. Seltjarnarnes er um margt sögufrægur
staður þar sem bjóða mætti skemmtilegar ferðir fyrir útlendinga.
För um Nesið gæti hafist á Eiðinu, haldið norður með ströndinni út á
Snoppu og að Gróttu. En Grótta slitnaði frá landi í ofsaveðri árið 1799
en hægt er að ganga út í hana á fjöru, einnig er hægt að bjóða upp á
bátsferðir út í eyna á öðrum tímum. Svo er það Nesstofa og söfnin
sem henni tengjast. Saga lækninga í landi þar sem ekkert þéttbýli var
til og samgöngur voru aðeins af sjó eða á hestum. Suðursvæðin hafa
einnig margt að bjóða. Leiðarmerkið og síðan smábátahöfnin sem er
illa nýtt en tilvalin til smábátaferða og sjóstangveiði. Og síðan íþrótta-
og heilsusvæðið við Suðurströndina, þar sem ferðamenn gætu fengið
sér hressingu og endað síðan í sundi.
Neshringurinn hefur uppá margt að bjóða sem fólk myndi hafa
áhuga á og ánægju af ef kynnt væri. Og eflaust myndu einhverjir efna til
atvinnustarfsemi og má þar nefna veitingaþjónustu í fallegu umhverfi,
heilsustarfsemi bátsferðir, sjóstangveiði og fleira og fleira. Bæjaryfir-
völd eiga ekki að annast rekstur af þessu tagi en þurfa að vekja áhuga
og styðja við bak áhugasamra. Hugmyndir mega ekki drukkna í umróti
þeirra sem vilja að Seltjarnarnes verði aðeins eyland fyrir einhverja
útvalda. Seltjarnarnes á að fá sinn hlut af kökunni. Það hefur upp á svo
margt að bjóða.
Ungmenni í
öllum nefndum
Geri við allar tegundir startara, alternatora, beinar
innspýtingar, rafmagn í bílum og bátum.
Sævar
Bíla- og bátarafmagn
Sími 561-1466 - Kirkjubraut 13, Seltjarnarnesi
ra
fm
ag
n@
m
i.i
s