Nesfréttir - 01.10.2014, Síða 5
Nes frétt ir 5
Hrein lífræn næring
-sem gefur hreysti, orku og einbeitingu
he i l subúð
Heilsuráðgjöf og heilsumælingar. Opið 10-18, virka daga - Ægisíða 121 - Sími: 551 1777
Nýtt frá Lifestream
Meira en 40 næringarík
lífræn fæðuefni og jurtir.
Valinn bragðbesti græni
drykkurinn.
Þekkt vörumerki,
margverðlaunuð og viðurkennd
Eingöngu náttúruleg hrein bætiefni.
Lífrænar húðvörur. Hjúkrunarvörur
og græn sáralækning.
Kvenfélagið Seltjörn verður
með kökusölu á Eiðistorgi, lau-
gardaginn 25. október sem er
fyrsti vetrardagur og verður
salan á milli kl. 11 og 14 en
nú er að hefjast fertugasta og
sjöunda starfsár Seltjarnar.
Félagið heldur fimm félagsfundi
yfir veturinn auk léttra prjóna-
funda og eru fundir haldnir á
neðri hæð Seltjarnarneskirkju.
Í kirkjunni hefur kvenfélagið
haft aðsetur síðustu tvö árin og
líkar mjög vel. Fundir hefjast kl.
20:00 nema annað sé auglýst.
Fyrsti félagsfundurinn var
þriðjudaginn 21. október
kl. 20:00. Október er mánuður
bleiku slaufunnar og munum við
fá góða gesti til okkar frá Ljó-
sinu, einnig eru konur hvattar
til að klæðast bleiku. Nóvember
fundurinn verður þriðjudaginn
þann 18. og jólafundurinn þriðju-
daginn 9. desember. Aðalfundur
verður þriðjudaginn 17. febrúar
2015 og vorfundurinn þriðju-
daginn 17. mars 2015. Birna E.
Óskarsdóttir ritari Seltjarnar
segir að alltaf sé gott að fá góðar
konur í hópinn og eru allar konur
velkomnar á fundi til félagsins
auk þess sem konurnar séu all-
taf tilbúnar að taka á móti nýjum
konum í félagið. Hafi konur
áhuga á að ganga til liðs við kven-
félagið geta þær haft samband
við stjórnarkonur.
Seltjörn
með
kökusölu