Nesfréttir - 01.10.2014, Page 6
6 Nes frétt ir
Valhúsaskóli 40 ára
Einn skóli- tvær starfsstöðvar
Skólahald hófst í Valhúsaskóla
haustið 1974. Fram að því hafði
kennsla elstu deilda grunnskólans
farið fram í Mýrarhúsaskóla. Allt
fram til ársins 2004 voru skólarnir,
Valhúsaskóli og Mýrarhúsaskóli,
reknir sem tvær aðskildar stofnanir
en árið 2004 voru þeir samein-
aðir í Grunnskóla Seltjarnarness.
Starfsstöðvarnar hafa þrátt fyrir það
haldið fyrri nöfnum sínum. Fyrsti
skólastjóri Valhúsaskóla var Ólafur
H. Óskarsson. Hann vann fyrst sem
ráðgjafi skólanefndar Seltjarnarness
við hönnun skólans og vann náið
með Vilhjálmi Hjálmarssyni arki-
tekt hússins. Árið 1997 lét Ólafur af
störfum fyrir aldurs sakir en þá tók
Sigfús Grétarsson við stöðunni og
stýrði hann skólanum til ársins 2007
er núverandi skólastjóri Guðlaug
Sturlaugsdóttir tók við starfinu.
Myndirnar voru teknar á
samkomunni.
Eru tryggingarnar þínar í lagi?
Kristinn Rúnar Kjartansson
kristinnk@vis.is
Sími 560 5155 | GSM 820 0762
VÍS – þar sem tryggingar snúast um fólk
Býð faglega tryggingaráðgjöf og tilboð í tryggingar fyrir
bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Það er mikilvægt að tryggingarnar séu í takt við þarfir
þínar eða fyrirtækis þíns hverju sinni.
Hafðu samband og ég fer yfir málin með þér.