Nesfréttir - 01.10.2014, Qupperneq 7
Nes frétt ir 7
Ellefu starfsviðurkenningar veittar
Ellefu starfsmenn Seltjarnarnesbæjar hlutu
starfsviðurkenningar bæjarfélagsins á árshátíð
starfsmanna sem haldin var 11. október
síðastliðinn. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri
veitti þá starfsmönnum viðurkenningar sem
starfað hafa hjá bænum í 15 og 25 ár starfs-
viðurkenningu samkvæmt reglum bæjarins um
starfsafmæli og starfslok.
Fyrir 15 ára starf hlutu viðurkenningar: Rakel
Óskarsdóttir, Fanney Rúnarsdóttir, Hafsteinn
Jónsson, Kristín Lárusdóttir og Ólína Erla
Erlendsdóttir sem öll starfa hjá Grunnskóla
Seltjarnarness, Auður Daníelsdóttir sem starfar
hjá bæjarskrifstofu , Helga Þórarinsdóttir, Lovísa
Fjeldsted sem starfa hjá Tónlistarskóla Seltjarnar-
ness og Ingólfur Klausen sem starfar hjá sundlaug
Seltjarnarness. Fyrir 25 ára starf hlutu viðurken-
ningar þau Ágúst Ingi Ágústsson sem starfar hjá
Íþróttamiðstöð Seltjarnarness og Sonja Jónasdót-
tir sem starfar hjá Leikskóla Seltjarnarness.
Aldrei hafa eins margir starfsmenn mætt á
árshátíðna en þeir voru tæp fjögurhundruð
með mökum. Árshátíðin gekk vel fyrir sig, Páll
Óskar var með dansatriði og þeytti skífum en
veislustjórn var í höndum fyrrum Seltirningsins
Atla Þórs Albertssonar. Bæjarlistamaðurinn Ari
Bragi Kárason sá um lifandi tónlistarflutning í
upphafi hátíðarinnar. Að þessu sinni leitaði Selt-
jarnarnesbær eftir samstarfi við Gróttu vegna
uppsetningar árshátíðarinnar og þótti hún hep-
pnast með eindæmum vel.
SUÐURSTRÖND 10, SELTJARNARNESI
Fyrir neðan sundlaugina og World Class.
www.facebook.com/Systrasamlagid
Sími: 511 6367
Systrasamlagið
kafar dýpra!
AFGREIÐSLUTÍMI:
Virkir dagar 8 - 18
Laugardagar 10 - 16
Aðeins í Systrasamlaginu:
LÍFRÆNT KAFFI með
LÍFRÆNNI BÍÓBÚMJÓLK!
Eða viltu þeyting, croissant,
samloku, skot, chiagraut,
kökur, kaffi með smjöri?
Bragðgæðin eru okkar megin!
MANDUKA JÓGADÝNUR
– NÝ SENDING
4. tegundir og
allskonar fylgihlutir.
Verð á dýnum frá
12.500 kr.
FlOTHETTAN SLÆR Í
GEGN!
Ómótstæðilega notaleg.
Flotahetta og fótaflot:
17.900 kr
MÁ BJÓÐA ÞÉR
BÆNAKLÚT?
Hlýr, notalegur, djúpur,
trendí og fallegur!
Verð: 2.900 kr.
Á meðfylgjandi mynd, sem tekin er undir bleiku ljósi á
árshátíðarsviðinu, er hluti þeirra starfsmanna sem hlaut
starfsviðurkenningu. Páll Óskar sá um að skemmta gestum á árshátíðinni.