Nesfréttir - 01.11.2014, Blaðsíða 13
Nes frétt ir 13
Um næstu mánaðamót mun ég
og fjölskylda mín flytja af Nesinu
og ég þar með láta af störfum
í bæjarstjórn eins og lög gera
ráð fyrir.
Staða bæjarfélagsins er góð,
en nýverið var Seltjarnarnesbær
útnefndur draumasveitarfélagið
á Íslandi af Vísbendingu. Bærinn
hefur á að skipa frábæru starfsfólki
og fjárhagurinn er afar traustur.
Seltjarnarnesbær hefur fjarhagslega
burði til að veita áfram framúr-
skarandi þjónustu til bæjarbúa og
halda jafnframt álögum í lágmarki.
Við megum öll vera stolt af þeirri
þjónustu sem við veitum á sviði
skólamála, tónlistarnáms, íþrótta-
og forvarnarstarfs og í málefnum
aldraðra, en önnur sveitafélög
horfa til okkar sem fyrirmyndar
um hvernig standa eigi að málum.
Það er því bjart framundan á
Seltjarnarnesi.
Það hefur verið einstaklega
gefandi að fá að vinna fyrir og þjóna
bæjarbúum þau fimm ár sem ég
hef setið í bæjarstjórn. Eftir efna-
hagshrunið gengum við Sjálfstæðis-
menn af krafti í að hagræða og
nýta skattfé bæjarbúa af virðingu
og varfærni án þess að gefa eftir í
þjónustu við bæjarbúa. Ég er ákaf-
lega stoltur og ánægður hvernig
til tókst í þeim efnum. Stundum
gustar um menn á pólítíska sviðinu.
Við höfum mismuandi skoðanir á
því hversu mikið hið opinbera á að
skattleggja einstaklinga og hvernig
almanna fé best
sé varið. Þá er
nauðsynlegt að
menn standi
með skoðunum
sínum og lífs-
gildum eftir að
kjósendur hafa
valið þá sem
sína fulltrúa.
Af mörgum
áhugaverðum og góðum verke-
fnum sem ég hef fengið að taka
þátt í á síðustu árum má segja að
bygging hjúkrunarheimilisins sé
það mál sem ég er hvað stoltastur
af. Það verkefni hefur verið lengi í
undirbúningi en nú er búið er að
taka skólflustungu að heimilinu,
hönnun á lokastigi og ekkert því til
fyrirstöðu að hefja framkvæmdir.
Við Lisbeth höfum notið þess
að búa á Nesinu s.l. 22 ár og ala
upp börnin okkar í þessu frábæra
umhverfi og við þessar frábæru
aðstæður. Um leið og ég þakka
fyrir að hafa fengið að gegna
ábyrgðarstöðu við stjórn bæjarfé-
lagsins um fimm áran skeið, langar
mig að þakka öllum þeim góðu
samferðarmönnum sem ég og fjöl-
skylda mín höfum kynnst á þessum
góða og eftirminnilega tíma.
Kærar kveðjur,
Guðmundur Magnússon forseti
bæjarstjórnar og formaður
bæjarráðs.
Bestu þakkir fyrir
síðast liðin 22 ár
Guðmundur
Magnússon.
Nú færðu
fríar litaprufur
við val á nyrri málningu
Borgartún 22 Dugguvogur 4
Dalshraun 11 Furuvellir 7, Akureyri
www.slippfelagid.is
Að hámarki 3 prufur á mann
Líkt og undanfarin ár tekur
Mýrarhúsaskóli þátt í verkefninu
„Jól í skókassa“. Það felst í því að
fá börn og fullorðna til þess að
gleðja börn í Úkraínu.
Þessi börn lifa við fátækt, sjúk-
dóma og erfiðleika með því að gefa
þeim jólagjafir sem eru sett-ar í
skókassa. Nemendur skólans hafa
alltaf verið mjög duglegir við að
útbúa jólapakka fyrir fátæk börn
og í fyrra söfnuðust 110 jólagjafir.
Vonandi verður þetta eitthvað
svipað í ár.
Jól í skókassa