Fréttablaðið - 01.03.2016, Blaðsíða 13
Nú hefur verið kynnt niðurstaða stjórnarskrárnefndar um þrjú ný ákvæði í stjórnar
skrá Íslands.
Stóra spurningin sem við þurfum að
spyrja okkur er ekki hvort við hefðum
viljað sjá aðrar og fleiri breytingar á
stjórnarskrá. Henni getum við líklega
flest svarað játandi. Stóra spurningin
er frekar hvort þessi þrjú ákvæði sem
nú standa til boða, séu til góðs eða til
tjóns. Ég tel hafið yfir vafa að þau séu
til góðs og marki stærstu skrefin í lýð
ræðisumbótum í rúmlega 70 ára sögu
lýðveldis á Íslandi.
Náttúruvernd
Það skiptir miklu að fá í stjórnarskrá
ákvæði um að ábyrgð á vernd nátt
úru og um hverf is hvíli sam eig in lega á
öll um og sú vernd grund vall ast á var
úðar og lang tíma sjón ar miðum með
sjálf bæra þróun að leiðarljósi. Kveðið
er á um rétt allra til heil næms um hverf
is, al manna rétt og upp lýs inga og þátt
töku rétt al menn ings.
Á mörg þessi atriði hefur reynt,
þegar farið hefur verið af stað með
stórkarlaleg atvinnuuppbyggingar
áform á undanförnum áratugum og
náttúruverndarsjónarmið of oft farið
halloka vegna þess að áherslan hefur
öll verið í hina áttina. Það verða tíma
mót þegar ágreiningur rís í framtíðinni
að geta vísað í að varúðarsjónarmið og
rök sjálfbærrar þróunar liggi til grund
vallar náttúruverndarákvæði í stjórn
arskrá. Það hefði þótt kraftaverki líkast
fyrir fáeinum árum.
Þjóðaratkvæðagreiðslur
Það skiptir lykilmáli að 15% lands
manna geti fengið að kalla lög í þjóð
aratkvæðagreiðslu (og sumar þings
ályktanir) og fengið þannig úrslitavald
um ákvarðanir, án þess að eiga það
undir mati forseta á hverjum tíma
hvort þjóðin fái að fara með þetta vald.
Þetta hlutfall, 15%, er mjög eðlilegt í
ljósi nýlegrar reynslu af undirskriftar
söfnunum. Þá er gert ráð fyrir því að
25% kosningabærra manna þurfi til
að snúa við ákvörðun Alþingis.
Almennt eru þátttökuþröskuldar
af þeim toga ekki góðir og rétt að hafa
þá sem lægsta. Í ljósi þess að þingræði
er grunnþáttur í stjórnskipaninni er
hins vegar hægt að færa ágætis rök
fyrir þessum þröskuldi við því að
þjóðaratkvæðagreiðsla geti snúið
við ákvörðun þjóðkjörins þings, þótt
hann mætti sannarlega ekki hærri
vera. Þetta ákvæði mun hvetja stjórn
völd á hverjum tíma til að fara vel með
meirihlutavald sitt og leita víðtækari
samstöðu um umdeild mál. Það er gott
fyrir lýðræðið og tiltrú á stjórnmálin.
Þjóðareign á auðlindum
Þá verður mikilvægt að fá í stjórnarskrá
ákvæði um þjóðareign á auðlindum.
Með ákvæðinu verður til þjóðareignar
réttur sem er ekki undirsettur einka
eignarrétti, heldur hliðsettur. Vöntun
á stjórnarskrárákvæði um þjóðareign
hefur staðið umbótum í auðlindanýt
ingu fyrir þrifum um áratugi.
Eigendur fiskveiðikvóta hafa haldið
Lifandi stjórnarskrá
Árni Páll Árnason
formaður
Samfylkingarinnar
Það skiptir miklu að fá í
stjórnarskrá ákvæði um að
ábyrgð á vernd nátt úru og
um hverf is hvíli sam eig in lega
á öll um og sú vernd grund
vall ast á varúðar og lang
tíma sjón ar miðum með sjálf
bæra þróun að leiðarljósi.
fram sjónarmiðum um eignarrétt á
þeim kvóta sem þeir hafa fengið og
þegar gerðar hafa verið tilraunir til
breytinga á fiskveiðistjórnarkerfinu
hafa þær þurft að taka mið af rétt
aróvissu um eignarréttarlegt tilkall
kvótaeigenda.
Ef nýja þjóðareignargreinin verður
að veruleika verður þeirri spurningu
svarað í eitt skipti fyrir öll: Þjóðin á
fiskveiðiauðlindina. Sama mun eiga
við um öll önnur takmörkuð gæði,
sem ekki eru þegar háð einkaeignar
rétti, allt frá auðlindum í jörðu til fjar
skiptatíðni. Kerfisbreytingar, eins og
breytingar á fiskveiðistjórnunarkerf
inu, verða þá þeim mun auðveldari í
framtíðinni.
Mikilvægar breytingar
Þau þrjú nýju ákvæði sem hér hafa
verið rakin munu öll fela í sér breyt
ingar, þótt í þeim felist ekki heild
stæð endurskoðun stjórnarskrár. Við
höfum mörg bundið vonir við slíka
endurskoðun og þjóðin hefur sam
þykkt að frumvarp byggt á tillögum
stjórnlagaráðs skuli lagt fyrir Alþingi.
Það er verkefni stjórnmálaflokka að
skapa trúverðugan ramma um efndir
á þeirri samþykkt og mikilvægt að skýr
fyrirheit verði gefin um áframhald
vinnu við endurskoðun stjórnarskrár
í aðdraganda næstu þingkosninga.
Það felst engin mótsögn í stuðningi
við þessar breytingar og stuðningi
við frekari stjórnarskrárumbætur.
Þvert á móti mun samþykkt þessara
afmörkuðu breytinga varða veginn og
senda skýrt þau skilaboð að stjórnar
skrá landsins er lifandi plagg sem tekur
reglulegum breytingum í samræmi við
nýjar þarfir. Þess vegna eigum við að
nýta þetta sögulega tækifæri sem nú
gefst til stjórnarskrárbreytingar.
Sköpum
ferða þjónustunni
frábæra framtíð
KPMG léttir undir með stjórnendum meðal annars með því að
greina tækifæri til vaxtar, vöruþróunar og aukinnar skilvirkni.
Okkar þjónusta miðar að því að skapa meiri verðmæti.
Við vinnum með fólki í ferðaþjónustunni
að margs konar verkefnum:
n Stefnumótun og sviðsmyndir
n Greining fjárfestingatækifæra
n Bókhald og uppgjör
n Virðisaukaskattur
n Hagnýting upplýsingatækni
n Ferlar og gæðamál
n Rekstrarráðgjöf
Nánari upplýsingar um þjónustu
við fyrirtæki í ferðaþjónustu veitir
Benedikt K. Magnússon með
tölvupósti bmagnusson@kpmg.is
eða í síma 545 6000.
kpmg.is
www.versdagsins.is
Af gnægð
hjartans
mælir
munnur
hans...
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 . m A R s 2 0 1 6
0
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
F
-8
6
2
4
1
8
9
F
-8
4
E
8
1
8
9
F
-8
3
A
C
1
8
9
F
-8
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K