Fréttablaðið - 01.03.2016, Síða 13

Fréttablaðið - 01.03.2016, Síða 13
Nú hefur verið kynnt niður­staða stjórnarskrárnefndar um þrjú ný ákvæði í stjórnar­ skrá Íslands. Stóra spurningin sem við þurfum að spyrja okkur er ekki hvort við hefðum viljað sjá aðrar og fleiri breytingar á stjórnarskrá. Henni getum við líklega flest svarað játandi. Stóra spurningin er frekar hvort þessi þrjú ákvæði sem nú standa til boða, séu til góðs eða til tjóns. Ég tel hafið yfir vafa að þau séu til góðs og marki stærstu skrefin í lýð­ ræðisumbótum í rúmlega 70 ára sögu lýðveldis á Íslandi. Náttúruvernd Það skiptir miklu að fá í stjórnarskrá ákvæði um að ábyrgð á vernd nátt­ úru og um hverf is hvíli sam eig in lega á öll um og sú vernd grund vall ast á var­ úðar­ og lang tíma sjón ar miðum með sjálf bæra þróun að leiðarljósi. Kveðið er á um rétt allra til heil næms um hverf­ is, al manna rétt og upp lýs inga­ og þátt­ töku rétt al menn ings. Á mörg þessi atriði hefur reynt, þegar farið hefur verið af stað með stórkarlaleg atvinnuuppbyggingar­ áform á undanförnum áratugum og náttúruverndarsjónarmið of oft farið halloka vegna þess að áherslan hefur öll verið í hina áttina. Það verða tíma­ mót þegar ágreiningur rís í framtíðinni að geta vísað í að varúðarsjónarmið og rök sjálfbærrar þróunar liggi til grund­ vallar náttúruverndarákvæði í stjórn­ arskrá. Það hefði þótt kraftaverki líkast fyrir fáeinum árum. Þjóðaratkvæðagreiðslur Það skiptir lykilmáli að 15% lands­ manna geti fengið að kalla lög í þjóð­ aratkvæðagreiðslu (og sumar þings­ ályktanir) og fengið þannig úrslitavald um ákvarðanir, án þess að eiga það undir mati forseta á hverjum tíma hvort þjóðin fái að fara með þetta vald. Þetta hlutfall, 15%, er mjög eðlilegt í ljósi nýlegrar reynslu af undirskriftar­ söfnunum. Þá er gert ráð fyrir því að 25% kosningabærra manna þurfi til að snúa við ákvörðun Alþingis. Almennt eru þátttökuþröskuldar af þeim toga ekki góðir og rétt að hafa þá sem lægsta. Í ljósi þess að þingræði er grunnþáttur í stjórnskipaninni er hins vegar hægt að færa ágætis rök fyrir þessum þröskuldi við því að þjóðaratkvæðagreiðsla geti snúið við ákvörðun þjóðkjörins þings, þótt hann mætti sannarlega ekki hærri vera. Þetta ákvæði mun hvetja stjórn­ völd á hverjum tíma til að fara vel með meirihlutavald sitt og leita víðtækari samstöðu um umdeild mál. Það er gott fyrir lýðræðið og tiltrú á stjórnmálin. Þjóðareign á auðlindum Þá verður mikilvægt að fá í stjórnarskrá ákvæði um þjóðareign á auðlindum. Með ákvæðinu verður til þjóðareignar­ réttur sem er ekki undirsettur einka­ eignarrétti, heldur hliðsettur. Vöntun á stjórnarskrárákvæði um þjóðareign hefur staðið umbótum í auðlindanýt­ ingu fyrir þrifum um áratugi. Eigendur fiskveiðikvóta hafa haldið Lifandi stjórnarskrá Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar Það skiptir miklu að fá í stjórnarskrá ákvæði um að ábyrgð á vernd nátt úru og um hverf is hvíli sam eig in lega á öll um og sú vernd grund­ vall ast á varúðar­ og lang­ tíma sjón ar miðum með sjálf­ bæra þróun að leiðarljósi. fram sjónarmiðum um eignarrétt á þeim kvóta sem þeir hafa fengið og þegar gerðar hafa verið tilraunir til breytinga á fiskveiðistjórnarkerfinu hafa þær þurft að taka mið af rétt­ aróvissu um eignarréttarlegt tilkall kvótaeigenda. Ef nýja þjóðareignargreinin verður að veruleika verður þeirri spurningu svarað í eitt skipti fyrir öll: Þjóðin á fiskveiðiauðlindina. Sama mun eiga við um öll önnur takmörkuð gæði, sem ekki eru þegar háð einkaeignar­ rétti, allt frá auðlindum í jörðu til fjar­ skiptatíðni. Kerfisbreytingar, eins og breytingar á fiskveiðistjórnunarkerf­ inu, verða þá þeim mun auðveldari í framtíðinni. Mikilvægar breytingar Þau þrjú nýju ákvæði sem hér hafa verið rakin munu öll fela í sér breyt­ ingar, þótt í þeim felist ekki heild­ stæð endurskoðun stjórnarskrár. Við höfum mörg bundið vonir við slíka endurskoðun og þjóðin hefur sam­ þykkt að frumvarp byggt á tillögum stjórnlagaráðs skuli lagt fyrir Alþingi. Það er verkefni stjórnmálaflokka að skapa trúverðugan ramma um efndir á þeirri samþykkt og mikilvægt að skýr fyrirheit verði gefin um áframhald vinnu við endurskoðun stjórnarskrár í aðdraganda næstu þingkosninga. Það felst engin mótsögn í stuðningi við þessar breytingar og stuðningi við frekari stjórnarskrárumbætur. Þvert á móti mun samþykkt þessara afmörkuðu breytinga varða veginn og senda skýrt þau skilaboð að stjórnar­ skrá landsins er lifandi plagg sem tekur reglulegum breytingum í samræmi við nýjar þarfir. Þess vegna eigum við að nýta þetta sögulega tækifæri sem nú gefst til stjórnarskrárbreytingar. Sköpum ferða þjónustunni frábæra framtíð KPMG léttir undir með stjórnendum meðal annars með því að greina tækifæri til vaxtar, vöruþróunar og aukinnar skilvirkni. Okkar þjónusta miðar að því að skapa meiri verðmæti. Við vinnum með fólki í ferðaþjónustunni að margs konar verkefnum: n Stefnumótun og sviðsmyndir n Greining fjárfestingatækifæra n Bókhald og uppgjör n Virðisaukaskattur n Hagnýting upplýsingatækni n Ferlar og gæðamál n Rekstrarráðgjöf Nánari upplýsingar um þjónustu við fyrirtæki í ferðaþjónustu veitir Benedikt K. Magnússon með tölvupósti bmagnusson@kpmg.is eða í síma 545 6000. kpmg.is www.versdagsins.is Af gnægð hjartans mælir munnur hans... s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 . m A R s 2 0 1 6 0 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 F -8 6 2 4 1 8 9 F -8 4 E 8 1 8 9 F -8 3 A C 1 8 9 F -8 2 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 2 9 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.