Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.03.2016, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 01.03.2016, Qupperneq 16
Á dögunum var frumsýnd heimildarmyndin Halli sig-urvegari, sem fjallar m.a. um ríkjandi viðhorf til mannrétt- indamála fatlaðs fólks á Íslandi upp úr miðri síðustu öld. Þrátt fyrir að bar- áttunni fyrir fullum mannréttindum fatlaðs fólks sé ekki lokið þá hefur sem betur fer orðið þar bylting í viðhorfum og engum sem dettur í hug lengur að verja opinberlega hugmyndir sem ganga út á það að svipta fatlað fólk grundvallarréttindum sínum. Staðan í málefnum aldraðs fólks á Íslandi í dag er aftur á móti um margt svipuð og hún var í málefnum fatlaðs fólks þegar Halli var barn fyrir rúm- lega hálfri öld. Orsökin er ekki skortur á peningum heldur úrelt viðhorf. Viðhorf sem hafa legið eins og mara yfir málaflokknum og valdið áratuga stöðnun í málefnum eldra fólks. Hugmyndafræði síðustu aldar Flest upphafleg hjúkrunarheimili á Íslandi eru frá miðri síðustu öld. Skipu- lag þeirra einkenndist af menningu sjúkrahúsa þar sem íbúar (á þeim tíma kallaðir vistmenn) þurftu að aðlaga sig siðum, venjum og skipulagi stofnan- anna. Í flestum þessara stofnana var öldruðu fólki gert að deila svefnher- bergi og öðrum vistarverum með ókunnugum og þar með svipt öllum rétti til einkalífs. Þessar stofnanir eru löngu orðin börn síns tíma og hafa þær verið aflagðar fyrir löngu í öllum nágrannalöndum okkar. Þrátt fyrir að árið 2010 hafi verið ráðist í sérstakt átak hér á landi sem miðaði að því að leggja af þessar gömlu stofnanir eru nokkrar þeirra enn í rekstri. Að missa stöðu sína sem einstaklingur Líkt og áður viðgekkst í málefnum fatlaðs fólks tíðkast það enn hér á landi að svipta fólk sem flytur á hjúkrunar- heimili rétti til að stýra daglegum mál- efnum sínum. Þetta er sem betur fer ekki algilt og alls ekki formlega viður- kennt en er engu að síður staðreynd. Það er staðreynd að víða er fólk svipt rétti til að ákvarða um jafn sjálfsagðar og persónulegar athafnir eins og að ákveða hvenær það fer í bað, hvenær það vaknar á morgnana, hvenær það snæðir morgunmat og hvað það borð- ar. Sums staðar er líka enn talað um vistmenn en ekki íbúa. Og þetta skiptir máli. Þessi orð og þessi hugtök gefa tón sem síðan endurspeglast í öllu sem við- kemur málefnum þessa aldurshóps. Sá sem er vistaður einhvers staðar missir sjálfkrafa stöðu sína sem sjálfstæður einstaklingur. One size fits all Það þarf ekki að koma neinum á óvart að kannanir á meðal eldra fólks sýna að nær allir vilji búa heima hjá sér eins lengi og þeir mögulega geta. M.ö.o. það dreymir engan um að flytja á hjúkr- unarheimili. En hvort fólk getur búið heima ræðst oft m.a. af þeirri þjónustu sem stendur til boða og veitt er heim. Heimsendur matur er hluti af þeirri þjónustu. Nýlega sagði Fréttablaðið frá slæmri reynslu íbúa í Hafnarfirði sem fékk vægast sagt ólystugan heimsendan mat. Bæjaryfirvöld kröfðust tafar- lausra úrbóta af hálfu þjónustuaðilans. Það kom hins vegar ekki fram í frétta- flutningi af málinu að sá sem þarf að treysta á þessa þjónustu er um leið sviptur öllum sjálfstæðum rétti til að hafa skoðun á því hvað hann eða hún lætur ofan í sig. Ef það er svikinn héri í matinn þá er svikinn héri í matinn, alveg sama hvað viðkomandi finnst um það. Sá sem er háður slíkri þjón- ustu hefur ekki lengur frelsi til að vera með einhverjar „tiktúrur“ í matar- málum. Í heimsendum mat gildir sú gullna regla fjöldaframleiðslunnar; One size fits all. Fjárhagsvandinn er bara birtingarmynd Í dag erum við föst í umræðu um fjár- mál og átök milli rekstraraðila og ríkis en það fer minna fyrir umræðu um þann undirliggjandi vanda sem við er að glíma. Sá vandi er viðhorfsvandi og fjárskorturinn er ein birtingarmynda hans. Sú bylting sem orðið hefur í mál- efnum fatlaðs fólks hér á landi var hvorki þögul né sjálfkrafa. Ef ætlunin er að koma málefnum aldraðs fólks inn í nútímann þá þarf að byrja á grunn- inum, viðurkenna stöðuna eins og hún er og leggja upp í ferðalagið á grund- velli þess að mannréttindi séu algild og óháð aldri. Að snæða svikinn héra í svefnherbergi með ókunnugum Gunnar Axel Gunnarsson bæjarfulltrúi í Hafnarfirði Í gær fór ég í ónefnda matvörubúð að versla. Ef maður vill sniðganga allar óþarfa umbúðir og sérlega úr plasti þá er maður í vanda. Kjöt og fiskur fæst einungis í plastbökk- um og þá í því magni sem hentar alls ekki einstaklingum. Hvað varð af kjötborðunum þar sem maður gat valið sér eitt kjötstykki og ákveðið auk þess hvort maður vildi fá það „bara“ í litlum plastpoka í staðinn fyrir allar þessar óþörfu umbúðir? Við kassann ofbýður mér í hvert skipti hversu margir kaupa plast- poka til að setja vörurnar í. Burtséð frá því hvað það mætti spara mikinn pening yfir árið með því að sleppa því þá eru Íslendingar að nota fleiri milljónir af plast-innkaupapokum á ári. Og plastið er hundruð ára að eyðast. Það eru til litlir og nettir fjölnotapokar sem fást meira að segja ókeypis á mörgum stöðum, til dæmis í Sorpu. Og ef menn gleyma þeim heima (ég er alltaf með slíkan í töskunni minni) þá er hægt að fá sér pappakassa í búðinni sem fer svo í bláu tunnuna. Einnig getur maður verið með góðan kassa í bílnum sínum til að raða vörunum í. En það sem mér fannst verst í þessari innkaupaferð var að sjá veit- ingastaðinn sem tengist búðinni. Þarna voru margir að fá sér hádegis- mat. Í boði var grillað svínakjöt og lyktin var vægast sagt freistandi þó að ég sé hætt að borða svínakjöt. (Það er efni í aðra grein.) Ódýrara en starfsmaður í upp- vaski Afgreiðslan var þannig að allir við- skiptavinir fengu lokaðan frauð- plastbakka undir þann mat sem þeir keyptu, alveg sama hvort þeir vildu borða matinn á staðnum eða taka hann með sér. Ég ímyndaði mér allt það magn af óendurvinnanlegu rusli – kannski meira en hundrað frauðplastsöskjur á hverjum degi og plasthnífapör og plastmál þar að auki. Hversu margir svartir plast- pokar fara þaðan á hverjum degi í sorpið? (Ég efast um að á svona stöðum sé flokkað það sem hægt væri til endurvinnslunnar.) Tillögur mínar til að draga úr þessu eru þannig: Ekki væri mikið mál að spyrja viðskiptavinina hvort þeir vilji borða á staðnum eða taka matinn með sér. Þeir sem vilja borða á staðnum fengju pappadisk sem er miklu nettari og efnisminni en frauðplastaskja. Þegar lengra er litið þá er spurning hvort margnota diskar og hnífapör gætu komið í staðinn fyrir einnota draslið. Það þýddi að koma upp uppþvottavél og starfsmann sem vinnur við hana – atvinnuskapandi? En á meðan allt þetta einnota drasl er miklu ódýrara í innkaupum en starfsmaður í uppvaski þá kom- umst við ekki lengra í umhverfis- málunum. Þarna stendur hnífurinn í kúnni: Hækka þyrfti verulega verðið á einnota umbúðum í inn- kaupum. Ég þyrfti allavega að vera nálægt því að vera hungurmorða áður en ég myndi kaupa mér mat á svona „ein- nota matsölustöðum“. Umbúðaruglið Úrsúla Jünemann kennari og leið- sögumaður Ef ætlunin er að koma mál- efnum aldraðs fólks inn í nútímann þá þarf að byrja á grunninum, viðurkenna stöðuna eins og hún er og leggja upp í ferðalagið á grundvelli þess að mannrétt- indi séu algild og óháð aldri. En á meðan allt þetta ein- nota drasl er miklu ódýrara í innkaupum en starfsmaður í uppvaski þá komumst við ekki lengra í umhverfismál- unum. Í Fréttablaðinu þann 16. desember 2015 kemur fram að Fluglestin þróunarfélag ehf. vinni að því að ljúka samstarfssamningum við sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga og lóðamála varðandi hraðlest sem ganga á milli Leifsstöðvar og Umferð- armiðstöðvarinnar í Reykjavík. Fram kemur að lestarteinar verði 49 kílómetra langir, þar af 14 kíló- metrar í göngum fyrsta spölinn út úr höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt skýrslunni er ætlað að verkefnið skili jákvæðu tekjustreymi frá fyrsta ári. Yfir hálfrar aldar rekstr- artímabil fái fjárfestar 15,2% árlega ávöxtun. Þá segir að hraðlestin verði ábatasöm sem einkaframkvæmd og þurfi engin bein fjárframlög frá opinberum aðilum, en að gera þurfi fjárfestingarsamninga við ríkið og fá sérstaka löggjöf um skattgreiðslur. Vonandi þó ekki ríkisábyrgð á lánum. Sporin hræða í þeim efnum. Vitnað er í spá Isavia um þróun farþegafjölda, 5,3 milljónir árið 2024, og byggt á að um helmingur þeirra eða 2,7 milljónir noti lestina auk 1,8 milljóna annarra farþega sem ferðast muni milli Reykjaness og höfuðborgarsvæðisins. Áætlað er að heildarkostnaður við verkið nemi 105 milljörðum. Kostnaður tvöfaldaðist Í byrjun júní 2014 var svonefnt „tram“ sem er ofanjarðar léttlest tekin í notkun milli Edinborgar og Edin- borgarflugvallar, 14 km leið. Á þeim 10 árum sem liðin voru frá því að fyrstu fjárhagsáætlanir voru gerðar hefur kostnaður tvöfaldast, leiðar- netið orðið helmingi minna og fram- kvæmdin tekið tvöfalt lengri tíma en ætlað var. Lestarnetið nær nú aðeins frá flugvellinum til miðju Edinborgar en átti samkvæmt upphaflegri áætlun að ná til fleiri staða. Upphafið má rekja til ársins 2003 þegar stjórnvöld í Skotlandi eyrna- merktu 375 MGBP, vísitölutryggt, til framkvæmda við lestina sem átti að tengja miðborg Edinborgar við bæði flugvöllinn og Leith hafnarsvæðið. Væntingar voru um að lestin væri komin í notkun á árinu 2009. Fyrst fimm árum síðar eða 2014 var lestin komin í notkun en aðeins til miðju borgarinnar. Kostnaðurinn er orðinn 776 MGBP auk 200 MGBP vaxtakostnaðar eða um 182 milljarðar íslenskra króna á núverandi gengi (1 GBP =186 IKR). Margir telja að það sé kraftaverk að þessum áfanga hafi þó verið náð eftir allar þær deilur sem upp komu meðan á verkinu stóð. Miklar deilur milli framkvæmdaaðila töfðu verkið svo mánuðum skipti og þegar David Mackay hætti sem stjórnarformaður „Transport Edinburgh Limited“ kall- aði hann verkefnið „hell on wheels“. Til viðbótar þessu voru aðalgötur í miðborg Edinborgar sundurgrafnar að miklu leyti í sjö ár og ollu íbúum borgarinnar, verslunareigendum og fjölmörgum öðrum bæði óþægingum og fjárhagslegu tapi. Þann 19. desember 2015 birtist grein í vikublaðinu Reykjavík um hraðlest milli Reykjavíkur og Kefla- víkurflugvallar, þar kemur fram að árið 2014 fóru 6,8 milljónir farþega með Flytoget milli Gardemoen-flug- vallar og Óslóar, en það er sama vega- lengd og milli Keflavíkurflugvallar og BSÍ. Árið 2014 fóru 24,1 milljónir farþega um Gardemoen. Um Kefla- víkurflugvöll fóru um fimm milljónir farþega í árið 2015. Áætlaður kostnaður við Flytoget var 4,3 milljarðar norskra króna árið 1994. Endanlegur kostnaður nam 7,7 milljörðum norskra við lok framkvæmda 1999. Þessi stofnkostn- aður var afskrifaður af norska ríkinu því reksturinn stendur ekki undir því að greiða hann upp. 7,7 milljarðar norskra króna svara til um 115 millj- arða IKR. Undirrituðum sýnist þetta verk- efni að mörgu leyti áhugavert en þó einkum og sér í lagi fyrir þá sem standa að því svo sem hugmynda- ríka athafnamenn, peningastofn- anir, verkfræðistofur, verktaka og seljendur tækja og búnaðar. Ekki sé ég þó þessa aðila tilbúna til þátttöku nema í skjóli ríkissjóðs/skattborgara í einhverju formi. Mér finnst ævin- týralegt að reikna með að verkefnið skili jákvæðu tekjustreymi frá fyrsta ári og að á 50 ára tímabili fái fjárfestar 15,25% árlega ávöxtun svo eitthvað sé nefnt. Hvernig væri annars að ljúka við tvöföldun Keflavíkurvegarins? Hugleiðingar um hraðlest til Keflavíkurflugvallar Guðmundur Björnsson viðskipta- fræðingur og áhugamaður um meðferð opin- bers fjár Mér finnst ævintýralegt að reikna með að verkefnið skili jákvæðu tekjustreymi frá fyrsta ári og að á 50 ára tímabili fái fjárfestar 15,25% árlega ávöxtun svo eitthvað sé nefnt. Hvernig væri annars að ljúka við tvöföldun Kefla- víkurvegarins? Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is Dauðinn lögfræðilegar skyldur og álitamál Magnús Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður fjallar um lagalegar skyldur sem þarf að uppfylla í kjölfar andláts og álitamál sem geta komið upp í kjölfarið. Fyrirlesturinn fer fram í safnaðarheimili Háteigskirkju miðvikudaginn 2. mars kl. 20. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. 1 . m a r s 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r16 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð 0 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 9 F -9 E D 4 1 8 9 F -9 D 9 8 1 8 9 F -9 C 5 C 1 8 9 F -9 B 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 2 9 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.