Fréttablaðið - 01.03.2016, Side 24
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sverrir Már Sverrisson
endurskoðandi,
Efstasundi 37,
lést 23. febrúar.
Hann verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. mars kl. 13.00.
Kolfinna Sigurvinsdóttir
Hulda Sverrisdóttir Gauti A. Marinósson
Rannveig Sverrisdóttir Kjartan Þórðarson
Sólrún Sverrisdóttir
Kolfinna, Rebekka, Aþena, Jóhanna Björg, Örn
og Sverrir Már
Móðir okkar,
Ástríður Ingvadóttir
Brúnavegi 9,
áður Ásholti 2, Reykjavík,
lést 22. febrúar á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför hennar fer fram þriðjudaginn
8. mars nk. frá Fossvogskirkju kl. 15.00.
Ingibjörg og Ragnheiður Kristjánsdætur
og fjölskyldur.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Ásgeir Lúðvíksson
Stóragerði 36,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
mánudaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju
föstudaginn 4. mars kl. 13.00.
Gunnar Lúðvíksson Margie Nueva
Rósa Sigríður Lúðvíksdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Örn Jónsson
Sæbóli 38,
Grundarfirði,
lést á heimili sínu að kvöldi
fimmtudagsins 25. febrúar. Útförin fer fram
frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 5. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Von
í Grundarfirði, 0321-13-700101, kt. 650107-0200.
Sigríður Gísladóttir
Jóhann Arnarson Margrét Lukka
Brynjarsdóttir
Sigríður Guðbjörg Arnardóttir Hinrik Konráðsson
Gísli Valur Arnarson Karen Ósk Þórisdóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæra móðir,
Ólafía Elísabet Agnarsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði,
26. febrúar.
Útför fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 5. mars kl. 14.00.
Agnar Ebenesersson Margrét Lilja
Pétursdóttir
Halldór Ebenesersson Ásgerður Kristjánsdóttir
Kristinn Guðni Ebenesersson Margrét Bjarndís
Jensdóttir
Guðrún Sólveig Ebenesersdóttir Þorgeir Guðbjörnsson
Þuríður Ebenesersdóttir Magnús Snorrason
Auður Kristín Ebenesersdóttir
Ósk Ingibjörg Ebenesersdóttir Sigvaldi Karlsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamamma, amma
og langamma,
Anna Sigmundsdóttir
Sléttuvegi 17,
lést að heimili sínu föstudaginn
12. febrúar. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Harðardóttir
Edda Harðardóttir
Málfríður Harðardóttir
Rósa Harðardóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gústav Nilsson
Norðurbrú 3, Garðabæ,
lést á Landspítala Landakoti
þriðjudaginn 23. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 3. mars kl. 13.00.
Þóra Ólafsdóttir
Svava Gústavsdóttir Jón Þór Ólafsson
Gerður Gústavsdóttir Lúðvík Hjalti Jónsson
Nils Gústavsson Guðbjörg Jóna Guðlaugsd.
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Pálína Erna Ólafsdóttir
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn
13. febrúar. Útför mun fara fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Halla Dröfn Þorsteinsdóttir Sigurjón Þ. Guðmundsson
Ásta Ingibjörg Þorsteinsdóttir Róbert Grímur Grímsson
Sigurður Óli Þorsteinsson Monika Radowska
Erna, Grímur, Grettir, Ísak, Nína, Hilmir, Huginn
og systkini hinnar látnu.
„Ég fullyrði að ég fæddist með mynd-
listina sem aðalatriði í lífinu. Var flinkur
að teikna sem barn og skildi liti og form
betur en texta,“ segir Ingibergur Finn-
bogi, kallaður Bogi, sem starfar hjá Sam-
skipum og hefur gert í áratugi. Hann er
62 ára og er að sýna eigin sköpunarverk
í myndlist í fyrsta skipti í Gallerý O hjá
Orange project í Ármúla 4-6, þar deilir
hann sal með Gunnari Gunnarssyni
myndlistarmanni.
Tréskúlptúrarnir hans Boga birta
hinar litskrúðugustu myndir sem hann
marglakkar yfir með glæru lakki svo þeir
líta út eins og glerlistaverk. Fyrst kveðst
hann móta mynstrin í viðarplankana,
bæði með sporjárni og slípirokki, og
nota margs konar liti en þó einkum tré-
liti af bestu gerð. „Þannig næ ég fram
smáatriðunum,“ segir hann og bætir
við: „Það er erfitt að búa til eitthvað nýtt,
bæði í myndlist og tónlist, en ég veit ekki
um neinn sem hefur notað þessa aðferð.
Það er gaman að fylgjast með gestum
sem koma á sýninguna því hinir sterku
litir fanga strax augu þeirra,“ segir Bogi.
Í verkum sínum túlkar hann það sem er
að gerast í samtímanum hverju sinni og
er honum hugleikið þá stundina.
Hann kveðst hafa byrjað í Myndlista-
og handíðaskólanum í kringum 1970
eins og margir aðrir en lífsbaráttan hafi
tekið völdin, líka tónlist og spilerí með
ballhljómsveitum á borð við Ópus.
En hann lítur björtum augum til eftir-
launaáranna þegar hann getur helgað
sig listinni meira. gun@frettabladid.is
Litagleðin ræður ríkjum
Fyrsta myndlistarsýning Ingibergs Finnboga Gunnlaugssonar stendur yfir í Gallerý O í
Ármúla 4 -6. Hann gerir abstraktverk útskorin í tré og þar ræður litagleðin ríkjum.
Finnbogi segir atburði samtímans hverju sinni einatt hafa áhrif á verk hans. Fréttablaðið/Ernir
Það er erfitt að búa til
eitthvað nýtt, bæði í
myndlist og tónlist, en ég veit
ekki um neinn sem hefur notað
þessa aðferð.
1872 Yellowstone-þjóðgarðurinn í Bandaríkjunum verður fyrsti
þjóðgarður heims.
1905 Fyrsta símaskrá á Íslandi er gefin út, Talsímaskrá Reykjavíkur.
1940 Vélbátinn Kristján frá Sandgerði rekur vélarvana að landi í
Skiptivík í Höfnum eftir tólf daga hrakninga.
1947 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn byrjar útlánastarfsemi sína.
1970 Ísland gengur í EFTA, Fríversl-
unarsamtök Evrópu.
1988 Ný umferðarlög gera
notkun ökuljósa allan
sólarhringinn að skyldu
á Íslandi, svo og notkun
öryggisbelta.
1989 Bjór er leyfður á
ný á Íslandi eftir ára-
tuga bann.
1991 Ólafsfjarðargöngin
eru formlega opnuð,
lengstu veggöng á Íslandi,
um 3.400 metrar.
Merkisatburðir
1 . m a r s 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r20 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
0
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
F
-9
E
D
4
1
8
9
F
-9
D
9
8
1
8
9
F
-9
C
5
C
1
8
9
F
-9
B
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K