Fréttablaðið - 01.03.2016, Síða 34
Loksins
komið að Leo
Áttugasta og áttunda Óskarsverðlaunahá-
tíðin fór fram á sunnudagskvöldið. Óhætt
er að segja að fjölmargir hafi beðið með
öndina í hálsinum eftir því hvort Leonardo
Dicaprio myndi loks landa Óskarnum.
Það má með sanni segja að
mikið hafi verið um dýrðir í
Dolby-höllinni í Hollywood.
Okkar allra besti Jóhann
Jóhannsson var tilnefndur í
annað skipti til Óskarsverð-
launa, í flokknum besta frum-
samda tónlistin, fyrir tónlist sína í
bandarísku spennumyndinni Sic-
ario. Hann hreppti þó ekki hnossið
og sjálfur var hann fjarri góðu gamni.
Aðrar stórstjörnur sáu hins vegar um
að prýða rauða dregilinn og féllu verð-
laun kvöldsins eftirfarandi í skaut:
Chris Rock tók sér stöðu kynnis
og þótti gera það ágætlega. Hann
opnaði kvöldið með því
að skriðtækla stóra
vandamálið,
sem er auðvitað
sú staðreynd
að Óskarinn
er hátíð hvíta
fólksins í brans-
anum.
Söngkonan SIA var við sama heygarðs-
hornið og lét ekki nokkurn mann sjá á
sér smettið í Vanity Fair partíinu sem
haldið var í framhaldi verðlaunahá-
tíðarinnar. Glæsileg engu að síður.
Gwen Stefani lét sig ekki vanta, en hún
skartaði huggulegum Blake Shelton upp
á arminn. Þau eru nokkuð nýtt par sem
slúðurblöðin fá ekki nóg af að fjalla um.
Jennifer Lopez er reynslubolti á rauðum
dreglum. Hér er hún búin að haka í öll
boxin, glans, svolítil nekt, loðfeldurinn
og pírð augu. Allt eftir bókinni.
Leikkona ársins í aðalhlutverki, Brie Larsson, og
leikkona ársins í aukahlutverki, Alicia Vikander,
voru í virkilega góðum gír. Þó það nú væri.
Leonardo er án nokkurs vafa maður kvöldsins, en hann hefur beðið ansi
lengi eftir að fá styttuna í hendurnar, með sex tilnefningar til Óskars á
bakinu. Hann nýtti sér tækifærið og var rammpólitískur í ræðu sinni og fór
mikinn er hann talaði um loftslagsbreytingar.
Besta mynd
Spotlight- Michael Sugar, Steve
Golin, Nicole Rocklin og Blye Pagon
Faust, framleiðendur.
Besti leikarinn í aðalhlutverki
Leonardo DiCaprio, The Revenant
Besta leikkonan í aðalhlutverki
Brie Larson, Room
Besti leikstjórinn
Alejandro G. Inarritu, The Revenant
Besti leikarinn í aukahlutverki
Mark Rylance, The Bridge of Spies
Besta leikkonan í aukahlutverki
Alicia Vikander, The Danish Girl
Besta heimildarmyndin í fullri lengd
Amy, Asif Kapadia og James Gay-
Rees
Besta stutta heimildarmyndin
A Girl in the River: The Price of For-
giveness, Sharmeen Obaid-Chinoy
Besta klipping
Mad Max: Fury Road, Margaret
Sixel
Besta erlenda kvikmynd
Son of Saul (Ungverjaland)
Besta hár og förðun
Mad Max: Fury Road – Lesley Van-
derwalt, Elka Wardega og Damian
Martin
Besta kvikmyndatónlistin
The Hateful Eight - Ennio
MorriconeSicario
Besta lagið
Writing’s On
The Wall úr
Spectre. Lag
og texti
eftir Jimmy
Napes og
Sam Smith
Besta list-
ræna stjórnun
Mad Max:
Fury Road –
Leikmynd: Colin
Gibson; Leikmunir:
Lisa Thompson
Besta teikni-/brúðumyndin
Inside Out
Besta stutta teiknimyndin
Bear Story – Gabriel Osorio og Pato
Escala
Besta leikna stuttmyndin
Stutterer – Benjamin Cleary og
Serena Armitage
Besta hljóðklipping
Mad Max: Fury Road – Mark
Mangini og David White
Besta hljóðblöndun
Mad Max: Fury Road – Chris Jenk-
ins, Gregg Rudloff og Ben Osmo
Bestu tæknibrellurnar
Ex Machina – Andrew Whitehurst,
Paul Norris, Mark Ardington og
Sara Bennett
Besta handrit byggt
á áður útgefnu efni
The Big Short –
Handrit eftir
Charles Randolph
og Adam
McKayBrooklyn
Besta frumsamda
handrit
Spotlight – Eftir
Josh Singer & Tom
McCarthy
Besta kvik-
myndataka
The Revenant,
Emmanuel
Lubezki
Bestu búningar
Mad Max: Fury
Road – Jenny Beavan
Gigi Hadid lætur
sér ekki gott partí úr
greipum renna. Stórglæsi-
leg sem aldrei fyrr sprellaði
hún í Vanity Fair partíinu.
Lady Gaga fékk hárin til að rísa með laginu Till it hap-
pens to You úr heimildarmyndinni The Hunting Gro-
und. Atriði Gaga lauk svo með því að hópur kvenna
gekk inn á sviðið, en allar eiga þær það sameiginlegt
að hafa verið nauðgað. Ádeilan var því sterk.
1 . m a r s 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r30 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
0
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
F
-9
4
F
4
1
8
9
F
-9
3
B
8
1
8
9
F
-9
2
7
C
1
8
9
F
-9
1
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K