Fréttablaðið - 01.03.2016, Page 38

Fréttablaðið - 01.03.2016, Page 38
Hróaskelda 2015 Í fyrra komu fjórar íslenskar hljómsveitir fram á Hróarskeldu. Vök Young Karin Kippi Kanínus The Vintage Caravan SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Tvær íslenskar hljómsveitir koma fram á Hróarskeldu-hátíðinni í sumar, annars vegar raftónlistar- dúettinn Milkywhale og hins vegar stúlknarappsveitin Reykjavíkurdæt- ur. Hátíðin fer fram dagana 25. júní til 2. júlí og hefur í gegnum tíðina verið vinsæl hjá Íslendingum. „Ég er bara fáránlega spennt. Ég er menntuð sem dansari og dans- höfundur, þannig að þetta eru alveg nýjar víddir fyrir mig. Sérstaklega í ljósi þess að Milkywhale er bara verkefni sem byrjaði í maí á síð- asta ári, þannig að við erum komin til- tölulega langt á tiltölu- lega stuttum tíma,“ segir Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, söngkona Milkywhale. Hún skipar sveitina ásamt Árna Rúnari Hlöð- verssyni. Hún hefur sjálf aldrei farið á Hró- arskeldu en hefur þó heyrt margt gott af hátíðinni. „Ég er rosalega lítið fyrir svona tjaldútilegur þann- ig að ég hef ekki látið af því verða. Ég hef samt heyrt marga góða hluti af henni, þetta er náttúrulega ein af stærstu tónlistarhátíðunum í Evr- ópu þannig að þetta verður ótrú- lega skemmtilegt,“ segir Melkorka Sigríður. Þó svo að sveitin sé tiltölulega ný hefur hún komið víða við og spilaði til dæmis á Airwaves og Sónar. „Við ætlum að reyna að gefa út plötu á þessu ári og erum að leggja loka- hönd á lögin,“ bætir Melkorka Sigríður við. Fyrsta rappsveitin frá Íslandi Á bilinu sextán til tuttugu Reykja- víkurdætur koma fram á Hróars- keldu-hátíðinni. „Þetta er fyrsta skiptið hjá mörgum okkar. Það er mikil spenna í loftinu og okkur þykir þessi hátíð æðisleg, þetta er svona pönk/hippahátíð og var uppsett þannig. Svo er eitthvert nektarhlaup þarna og svona,“ segir Vigdís Ósk Howser Harðardóttir, ein af Reykjavíkurdætrum, full til- hlökkunar. „Við erum líka fyrsta rappsveitin frá Íslandi sem spilar á Hróarskeldu,“ bætir Vigdís Ósk við. Margt er fram undan hjá rapp- stúlknasveitinni sem stefnir á að gefa út plötu í vor og þá er til dæmis tónleikaferðalag fyrirhugað í sumar. Vigdís Ósk er hvergi bangin við tónleikaferðina í sumar og segir að mórallinn sé ávallt góður í herbúð- um sveitarinnar. „Við erum með- vitaðar um mörk hver annarrar og það er svo gott. Ef maður ber alltaf virðingu fyrir mörkum annarra þá gengur allt miklu betur, þannig að við þekkjum inn á hver aðra.“ Nú þegar hafa margfræg nöfn á borð við LCD Soundsystem, MØ, New Order, PJ Harvey, Red Hot Chili Peppers, Tame Impala og Tenacious D staðfest komu sína á hátíðina. Fleiri hjómsveitir og lista- menn verða tilkynntir síðar í dag á Vísi. gunnarleo@frettabladid.is Milkywhale og reykjavíkurdætur spila á Hróarskeldu Tvær íslenskar hljómsveitir koma fram á hátíðinni í ár en Reykjavík- urdætur er fyrsta íslenska rappsveitin sem kemur fram á hátíðinni. Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Árni Rúnar Hlöðversson mynda hljómsveitina Milkywhale. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Á bilinu sextán til tuttugu Reykjavíkurdætur eru að fara spila á Hróarskeldu í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR WWW.BÍLALAND.IS GÖNGUM FRÁ FJÁRMÖGNUN Á STAÐNUM Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is NISSAN PULSAR ACENTA Nýskr. 11/14, ekinn 22 þús km. dísil, beinskiptur. TILBOÐSVERÐ! 2.950 þús.Rnr. 143197 FRÁBÆR KAUP ÚRVAL BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI! NOTAÐIR BÍLAR HYUNDAI ix35 COMFORT Nýskr. 05/15, ekinn 33 þús km. dísil, sjálfskiptur Rnr. 320477 VERÐ kr. 5.290 þús. FRÁBÆR KAUP NISSAN ENV200 - RAFBÍLL Nýskr. 10/15, ekinn 2 þús km. rafmagn, sjálfskiptur. Rnr. 152011 VERÐ kr. 4.690 þús. FRÁBÆR KAUP NISSAN PATHFINDER SE Nýskr. 05/14, ekinn 58 þús km. dísil, sjálfskiptur. Rnr. 283259 VERÐ kr. 6.990 þús. FRÁBÆR KAUP HYUNDAI i10 COMFORT Nýskr. 06/15, ekinn 32 þús km. bensín, beinskiptur. Rnr. 192016 VERÐ kr. 1.790 þús. FRÁBÆR KAUP RENAULT CLIO DYNAMIC SP.T Nýskr. 05/14, ekinn 41 þús km. dísil, beinskiptur. Rnr. 283394 VERÐ kr. 2.490 þús. FRÁBÆR KAUP MERCEDES BENZ GLK 220 4mat. Nýskr. 05/15, ekinn 38 þús km. dísil, sjálfskiptur. Rnr. 143251 VERÐ kr. 6.990 þús. FRÁBÆR KAUP 1 . m a r s 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r34 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð 0 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 F -7 C 4 4 1 8 9 F -7 B 0 8 1 8 9 F -7 9 C C 1 8 9 F -7 8 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 9 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.