Fréttablaðið - 18.03.2016, Page 40

Fréttablaðið - 18.03.2016, Page 40
Aníta Ísey Jónsdóttir gegndi því óvenjulega hlutverki að vera svaramaður móður sinnar, Sigríð- ar Maríu Sigurðardóttur, þegar hún gekk að eiga stjúppabba Anítu, Kjartan Arnfinnsson, síðastliðið haust. Aníta segir þær mæðg- ur eiga sérstaklega gott samband og vera bestu vinkonur. „Mömmu fannst enginn annar en ég vera betur til þess fallinn að gefa hana þar sem við erum mest tengdar. Ást mín til móður minnar er eigin- lega ólýsanleg, við erum svo rosa- lega nánar og án hennar væri ég ekki neitt. Hún stendur við bakið á mér í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur og því fannst mér það mik- ill heiður að fá að gefa hana og fá að taka svona mikinn þátt í athöfn- inni,“ segir Aníta. Hjónin Sigríður María og Kjart- an eru búin að vera saman í ellefu ár og eiga saman eina dóttur sem er að verða fimm ára. Hún tók þátt í athöfninni eins og Aníta og al- systir hennar. „Þessi yngsta var hringaberi og svo gekk unglingur- inn inn gólfið á eftir henni og svo komum við mamma saman. Við gengum inn undir söng Páls Ósk- ars og við grenjuðum báðar alveg jafn mikið alla leiðina,“ segir hún og hlær. Aníta segir athöfnina hafa verið fallega og persónulega. „Gift- ingin var í Fríkirkjunni í Reykja- vík, sr. Sigríður Kristín Helgadótt- ir gaf þau saman og hún var alveg æðisleg. Veislan var svo í Turnin- um þar sem var spilað, sungið og dansað langt fram eftir kvöldi.“ Aníta vildi gefa foreldrum sínum sérstaka brúðargjöf og eitt- hvað frá eigin hjarta og söng því og spilaði lagið All of Me með John Legend í veislunni. „Lagið er uppá- haldslagið þeirra en það sem kom þeim mest óvart með þetta er að ég hef aldrei í mínu blessaða lífi spil- að á píanó. Ég æfði mig einungis í þrjá daga því ég ætlaði aldrei að fá upp úr mömmu hvað væri „þeirra lag“ í öllu brúðkaupsstressinu en þetta heppnaðist ljómandi vel og meira að segja runnu nokkur tár,“ lýsir Aníta. Svaramaðurinn Aníta klæddist hefðbundnum svaramannaklæðn- aði og var í kjólfatajakka við at- höfnina. „Ég vildi ekki vera í kjól heldur vildi ég hafa þetta meira formlegt. Mér finnst svo flott að sjá fólk klæðast svörtu og hvítu þegar það gengur inn gólfið. Við fórum því um allan bæ að leita að kjólfatajakka en hann var hvergi að finna. Þá datt mér í hug eldgam- all jakki sem ég hafði notað ein- hvern tíma á öskudegi, dró hann upp úr kassa og hann passaði svona rosalega vel við. Ég skipti svo yfir í kjól í veislunni til að vera smá puntuð,“ segir hún brosandi. liljabjork@365.is Var svaramaður mömmu sinnar Aníta Ísey Jónsdóttir og móðir hennar, Sigríður María Sigurðardóttir, eru afskaplega nánar. Svo nánar að þegar Sigríður gifti sig bað hún Anítu að gefa sig tilvonandi eiginmanni sínum. Aníta var klædd í kjólföt í athöfninni eins og margra svaramanna er siður. Aníta klæddist kjólfötum að hætti svaramanna. Nýgiftu hjónin ásamt dætrunum. MYND/TAMARA PHOTOGRAPHY Aníta gengur inn kirkjugólfið með móður sinni. MYND/TAMARA PHOTOGRAPHY Mæðgurnar Aníta Ísey og Sigríður María eru mjög nánar og bestu vin- konur. MYND/ANTON BRINK Sumt ætti maður alls ekki að gera daginn fyrir brúðkaupið sitt. Til dæmis að detta í það. Jafnvel þótt þér finnist þú eiga skilið að fá þér einn til að slappa af þá er það röng ákvörðun. Áfengi slær hvorki á kvíða né stress. Að vera þunnur í eigin brúðkaupi er ekki skemmti- legt. Ekki fá þér kampavín með brúðarmeyjum fyrir athöfnina. Það getur gert þig syfjaða. Ekki fara í nudd sama dag og brúðkaupið fer fram. Maður verður slappur eftir nudd og sumir vöðv- ar gætu orðið aumir. Taktu nuddið frekar nokkrum dögum áður. Þú hefur vafalaust litla matar- lyst að morgni brúðkaupsdagsins. Hins vegar er mjög mikilvægt að þú borðir einmitt þennan dag. Dag- urinn krefst góðrar orku. Ekki drekka dökka drykki eftir að þú hefur klætt þig í brúðar- dressið og ekki borða samloku með sinnepi eða tómatsósu. Skór brúðarinnar þurfa að vera þægilegir, ekki er gott að fara í brúðarskóna í fyrsta skipti við at- höfnina. Það er fremur óskemmti- legt að haltra upp að altarinu. Passaðu að hællinn sé ekki hærri en þú ert vön að ganga á. Ekki nota förðunarvörur sem þú hefur ekki notað áður. Enginn vill fá ofnæmi í andlitið á brúðkaups- daginn. Ekki vera með símann þinn. Það er ekkert skemmtilegt að fá símtal í miðju brúðkaupi. Þú getur alveg lifað án netsins á brúðkaupsdag- inn. Láttu aðra um að taka mynd- irnar. Góð ráð fyrir brúðina Brúður ætti ekki að djamma og djúsa daginn fyrir brúðkaupið.ALLT AÐ RAKA AUKNING EFTIR EINA NOTKUN. Varðveitir rakann og gefur aukinn ljóma dag eftir dag. Stöðug rakagjöf í 8 tíma. Útsölustaðir: Hagkaup Kringlunni, Lyfju Smáratorgi, Neskaupsstað og Keflavík, Árbæjarapotek, Garðsapótek, Apotek Siglufjarðar, Stjörnusól, Snyrtistofan Hilma, Snyrtistofan Arona, Snyrtistofan Abaco, Snyrtistofan Fagra, Snyrtistofan Wanita, Snyrtistofan Dekurdís og Hárgreiðslustofan Flikk. BRúðKAuP Kynningarblað 18. mars 201614 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 D 0 -B 8 7 8 1 8 D 0 -B 7 3 C 1 8 D 0 -B 6 0 0 1 8 D 0 -B 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.