Fréttablaðið - 18.03.2016, Side 70

Fréttablaðið - 18.03.2016, Side 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Ég setti mÉr markmið þegar Ég byrjaði að rappa að Ég ætlaði að spila á solstice 2015 og að spila í eyjum 2016 og það er að ganga upp Herra Hnetusmjör Nokkur af heitustu nöfnum hip hop-senunnar á Íslandi koma fram á Húkkaraballinu í Vest- mannaeyjum í ár en það eru GKR, Herra Hnetusmjör og Sturla Atlas sem koma fram á ballinu. „Þetta leggst mjög vel í mig, það er geggjað að fá að spila á Þjóðhátíð í Eyjum, ég hef aldrei farið þangað áður,“ segir tónlistarmaðurinn og leiklistarneminn Sigurbjartur Sturla Atlason, betur þekktur sem Sturla Atlas. Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, tekur í sama streng: „Ég hef aldr- ei farið á Þjóðhátíð áður og ég hlakka bara til að spila. Ég veit ekki hversu spenntur ég er því ég var bara að fá að vita að ég sé að fara að spila þarna,“ segir rapparinn GKR léttur í lundu. Annar rappari, Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetu- smjör, hefur einnig verið geysilega vinsæll undanfarið ár en hann hefur aldrei farið á Þjóðhátíð. „Mér líst bara megavel á þetta, það er sturlað að vera að fara að spila í Eyjum. Ég setti mér markmið þegar ég byrjaði að rappa að ég ætlaði að spila á Solstice 2015 og að spila í Eyjum 2016 og það er að ganga upp,“ segir Herra Hnetusmjör fullur tilhlökkunar. Í fyrra kom Páll Óskar fram á Húkk- araballinu en ballið markar að nokkru upphaf þeirrar tónlistarveislu sem fram undan er á Þjóðhátíð um versl- unarmannahelgina. Allir listamennirnir sem fram koma á Húkkaraballinu í ár hafa verið mjög vinsælir undanfarið ár. Sturla Atlas sló í gegn þegar hann sendi frá sér lagið Over Here í maí á síðasta ári og í kjölfarið fylgdu lög á borð við San Francisco og Snowin. GKR sendi frá sér lagið Morgunmatur í október á síðasta ári og má segja að lagið hafi skotið honum upp á stjörnuhimin- inn því það  varð mjög vinsælt. Þá hefur Herra Hnetusmjör einnig verið að gera það gott og voru lögin Selfie, Hvítur bolur og Jámarh sem komu út á síðasta ári mjög vinsæl. Þó svo að þetta sé fyrsta Þjóðhátíð- in hjá þeim félögum hafa þeir Sturla Atlas og Herra Hnetusmjör í hyggju að dvelja örlítið lengur á Heimaey eftir Húkkaraballið. „Ég er mjög spenntur og það kemur jafnvel til greina að maður verði í Eyjum yfir helgina, ég væri geggjað til í það. Ég hef aldrei verið í kreðsu sem hefur ákveðið að fara til Eyja um verslunarmanna- helgina og svo hef ég líka svo oft verið í útlöndum á þessum tíma,“ segir Sturla Atlas. „Það er allt krjúið að fara þannig að ef það er eitthvað geðveikt veður þá erum við ekkert að fara taka fyrstu vél heim,“ bætir Herra Hnetusmjör við. GKR er þó á öðru máli er varðar staldur í Eyjum. „Ég held ég verði ekki yfir helgina. Ég held ég spili og fari svo aftur til baka,“ segir GKR léttur í lundu. Allir eru þeir að vinna í nýju efni og má því vænta þess að helstu slagarar verði fluttir á ballinu í bland við nýtt efni. Húkkaraballið fer fram fimmtu- daginn 28. júlí en ekki liggur fyrir hvar ballið fer fram, það hefur ýmist farið fram Höllinni, Fiskiðjusundinu eða Týsheimilinu. Miðasala fer fram á dalurinn.is. gunnarleo@fretta bladid.is Hip hop-senan hertekur Húkkaraballið Listamennirnir GKR, Herra Hnetusmjör og Sturla Atlas leiða saman hesta sína og koma fram á Húkkaraballinu í Vestmannaeyjum í ár. Náði markmiðinu Herra Hnetusmjör hefur verið að gera það gott að undan- förnu. Sturla Atlas GKR FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ 1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r42 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 D 0 -9 5 E 8 1 8 D 0 -9 4 A C 1 8 D 0 -9 3 7 0 1 8 D 0 -9 2 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.