Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 185
185
Ritið er ritrýnt tímarit
Ritið birtir greinar á öllum sviðum hugvísinda þrisvar á ári. Hluti hvers
heftis er helgaður ákveðnu þema sem er ákveðið af ritstjórum. Einnig eru
birtar greinar ótengdar þema. Auglýst er eftir efni til birtingar og getur
hver sem er sent inn greinar. Ritið birtir einnig greinar um bækur,
umræðugreinar, þýðingar á erlendum greinum og myndaþætti. Allt efni í
Ritinu er birt á íslensku en þeim fylgir útdráttur og listi yfir lykilorð bæði á
íslensku og ensku.
Handrit að greinum sem óskað er að verði birtar í Ritinu skulu send rit-
stjórum. Allar greinar, nema ritdómar og umræðugreinar, eru ritrýndar.
Greinar sem fara í ritrýni eru sendar nafnlausar til tveggja yfirlesara sem
eru sérfræðingar á fræðasviði greinarinnar. Þeir fá sérstakt eyðublað til
viðmiðunar og skila því útfylltu til ritstjóra, ásamt öðrum athugasemdum,
til dæmis í greinarskjalinu sjálfu. Ritstjórar fara yfir athugasemdir, meta
þær og koma viðeigandi athugasemdum nafnlausum til höfunda. Í sumum
tilfellum geta ritstjórar látið í ljós sitt eigið mat á ritrýninni, svo sem um
það hvaða athugasemdum þeir telja nauðsynlegt að höfundur fylgi. Í rit-
rýni kemur fram hvort grein telst birtingarhæf í Ritinu án breytinga, með
þeim breytingum sem ritrýnir leggur til eða ekki hæf til birtingar í Ritinu.
Með lokagerð handrits er ætlast til þess að fylgi stutt yfirlit yfir helstu
breytingar frá fyrri gerð.
Upplýsingar um Ritið og eldri árganga má finna á: http://www.hugvis.
hi.is/ritid
Ritið is a peer reviewed journal
Ritið (The Work), published three times a year by the University of Iceland
Centre for Research in the Humanities, carries original research articles on a
theme decided by the editors for each edition. It also carries articles in an
open category as well as book reviews, discussion papers, and translations.