Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
Fréttir DV
jjk . .
DV 1 %RÉTTIR
• •
. . N * «• *’*f
Þrjár hraða-
hindranír komnar
Þrjár bráðabirgðahraðahindr-
anir eru komnar upp á Vestur-
götu í Reykjanesbæ.
í kjölfar banaslyssins á föstu-
daginn gekk Guðmundur Sím-
onarson, íbúi við Vesturgötu, á
fund Arna Sigfússonar bæjar-
stjóra. Tilefni fundarins var að
ræða umbætur í öryggismálum
við götuna. Þar lofaði Arni að
settar yrðu að minnsta kosti tvær
hraðahindranir á götuna fyrir
helgina. f gær unnu svo starfs-
menn Reykjanesbæjar að því að
koma fyrir hraðahindrunum til
bráðabirgða en alls voru þrjár
slíkar settar upp. Guðmundur
segist vera mjög ánægður með
árangurinn en kveðst ætía að
tala við Arna um að einni hraða-
hindrun í viðbót verði komið
fyrir.
Nemandi gekk
berserksgang
Nemandi í Háskólanum á Bif-
röst lét öllum illum látum með
tilheyrandi skemmdarverkum
á kaffihúsi staðarins í fyrrinótt.
Vikulegur gleðskapur háskól-
ans var haldinn þar og var áfengi
haft um hönd. Maðurinn varð
einhverra hluta vegna mjög fúll,
réðist á hluti í kringum sig og
henti meðal annars stól í gegn-
um rúðu. Lögreglan í Borgarnesi
handtók manninn og gisti hann
fangageymslu um nóttina. Hann
á yfir höfði sér kæru frá skólan-
um og þarf að bæta tjónið sem
hann oili.
Jón Sigurðsson til
Þróunarbankans
Jón Sigurðsson, fyrrverandi
iðnaðarráðherra, situr nú í sér-
stöku þriggja manna ráði sem
falið hefur verið að gera úttekt
á starfsemi Þróunarbanka Evr-
ópuráðsins. Jóni og samstarfs-
mönnum er falið að gera tillögur
að úrbótum á starfsemi Þróunar-
bankans.
Bankaráð Þróunarbankans
valdi einstaklingana f ráðið
vegna reynslu þeirra úr banka-
og fjármálalífi Evrópu. Jón var
um skeið bankastjóri Norræna
fjárfestingabankans og seðla-
bankastjóri þar á undan.
Leiðrétting
Mistök urðu við stjömu-
gjöfina í bókablaði DV í gær.
Bókinni Enginn má sjá mig
gráta eftír lón Trausta Reynis-
son og Aron Pálma Agústsson
var gefin þrjár og hálf stjarna
en í raun átti hún að fá fjórar
stjörnur.
Guðmundi Óla Hraf nkelssyni voru boðnar 2,5 milljónir króna fyrir að giftast víetnamskri
konu. Fyrrverandi ástkona hans ættuð frá Víetnam taldi hann á að giftast frænku hennar
gegn greiðslu. Guðmundur sá fram á að kaupa sér hús með ástkonunni en á hann fóru að
renna tvær grímur þegar hann heyrði að fjölskylda stúlkunnar var ekki að leika þennan
leik í fyrsta skipti. Málamyndahjónaböndum virðist hölga á íslandi.
BOÐNAR
Mll I IÁMID
Brúðkaup Taka átti fjölda mynda i
fyrirhuguðu brúðkaupi GuðmundarÓla
Hrafnkelssonarog víetnömsku konunnar
til að sýna íslenskum yfirvöldum.
(Myndin tengist fréttinni ekki beint.)
nöfnin þeirra," segir hann.
Gísli Garðarsson, lögreglufull-
trúi hjá útíendingadeild lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu, staðfest-
ir að Guðmundur haf! komið á fund
Þórðar Erics Ericson, rannsóknar-
lögreglumanns deildarinnar, og sagt
honum frá reynslu sinni.
Ætlaði að kaupa hús með henni
Fyrir nokkrum vikum kom stúlk-
an grátandi til Guðmundar og sagð-
ist vera í mikilli skuldasúpu. Hún
sagði að eina leiðin til að bjarga fjár-
málunum væri að giftast erlendum
ríkisborgara gegn greiðslu og leit-
aðist eftir því að Guðmundur gerði
slíkt sama. „Hún sagði að við gætum
keypt okkur hús saman fyrir pen-
inginn og gift okkur hvort öðru síð-
ar meir. Eg sá fyrir mér að við yrðum
fjölskylda, að ég myndi ganga syni
hennar í föðurstað," segir hann.
Hildur Dungal segir að í kjölfar
þrengingar á útgáfu atvinnuleyfa fyr-
ir ríkisborgara utan EES árið 2005
hafi Útlendingastofnun orðið vör við
fjölgun mála þar sem grunur leikur
á að um málamyndahjónaband sé
að ræða. „Það er greinilegt að þess-
ar breytingar hafa þau áhrif að meira
reynir á réttmætan tilgang vegna
umsókna um annars konar leyfi eins
og makaleyfin," segir hún.
Óskyldur sonur
Guðmundur segir móðurbróður
stúlkunnar hafi gert allar ráðstafanir
varðandi fyrirhugað brúðkaup. Sjálf-
ur átti hann að giftast systur hans, 34
„Ég sá fyrir mér að við
yrðum fjölskylda, að
ég myndi ganga syni
hennar í föðurstað."
ára konu sem á 8 ára stelpu, en auk
þess átti að skrá 13 ára dreng, henni
alls óskyldan, sem son hennar.
A hann fóru síðan að renna tvær
grímur þegar í ljós kom að hann átti
sjálfur að greiða fyrir ferðina út, ekki
aðeins fyrir þau tvö heldur alls sjö
fjölskyldumeðlimi stúlkunnar. Hann
kannaðist við fyrrverandi kærasta
stúlkunnar frá gamalli tíð og hafði
uppi á honum í gegnum símaskrá.
Sá sagði fjölskylduna áður hafa kom-
ið á málamyndahjónaböndum og að
hann sjálfur hefði gifst konu í Víet-
nam með milligöngu hennar. Mað-
urinn var oft boðaður í yfirheyrslur
hjá Útlendingastofnun og var und-
ir stöðugu eftirliti þegar heim var
komið. Guðmundur segir mann-
inn hafa fengið sömu upplýsing-
ingar frá stúlkunni og hann sjálfur,
að málamyndahjónabandið gengi
vandræðalaust fyrir sig. í ffamhald-
inu ákvað maðurinn að sleppa því að
skila inn nauðsynlegum pappírum
til að hjónabandið gengi í gegn hjá
íslenskum yfirvöldum og giftingin
varð aldrei fúllgild.
Guðmundur sleit sambandinu
við stúlkuna í kjölfar þessara fregna.
%
Guðmundi Óla Hrafnkelssyni, 37
ára, voru boðnir 40 þúsund dollarar,
eða um 2,5 milljónir króna, fyrir að
giftast víemamskri konu í því skyni
að útvega henni dvalarleyfi á íslandi.
Hildur Dungal, forstjóri Útlendinga-
stofnunar, segir málum fjölga þar
sem grunur leikur á að um mála-
myndahjónaband sé að ræða.
Fjárhagsvandræði ástkonu
Guðmundur segir að þáverandi
ástkona sín, ung víetnömsk kona
sem hefur búið hér frá 1991, hafi fyrr
á árinu talið hann á að giftast frænku
hennar gegn greiðslu. A hann runnu
þó tvær grímur þegar hann fór að
gruna að ástkonan væri að spila
með hann. Gruninn fékk hann síðan
staðfestan hjá fyrrverandi ástmanni
stúlkunnar.
Guðmundur kynntist stúlkunni
á skemmtistað í apríl á þessu ári og
varð hann brátt afar ástfanginn af
henni. Þegar á leið fór hún sífellt oft-
ar að taia um að hún væri í fjárhags-
vandræðum og fékk peninga hjá
Guðmundi upp í skuldir.
Óttaðist fjölskylduna
„Ég vil ekki að fleiri lendi í svona
vitíeysu," segir Guðmundur, spurð-
ur um ástæðu þess að hann tjáir sig
við fjölmiöla um málið. „Ef þau ætía
að hefna sín á mér er lögreglan með
ERLA HLYNSDÓTTIR
blaðamaöur skrifar: erlanpdv.is
Grímseyjarferjumálið hefur skaðað Vélsmiðju Orms og Viglundar:
Fegnir að losna við ferjuna
„Þetta ferjumál hefur skaðað
okkur talsvert og er búið að vera
dálítið þreytandi. Það hentar ekki
vel að lenda í miðjunni á neikvæðri
umræðu eins og þeirri sem farið
hefur fram um þessa ferju," seg-
ir Eiríkur Ormur Víglundsson hjá
Vélsmiðju Orms og Víglundar sem
unnið hefur að lagfæringum og
endurbótum á nýrri Grímseyjar-
ferju.
Vélsmiðjan hefur nú lokið sín-
um hluta verksins og var ferjan af-
hent Vegagerðinni í gær. Enn á þó
eftir að setja innganga á ferjuna,
bæði á stjórn- og bakborðssíðum
ásamt öðrum smálegum verkum.
„Það eru einhverjar innansleikjur
eftir sem verða á könnu Vegagerð-
arinnar," segir Eiríkur.
G. Pétur Matthíasson, upp-
lýsingafulltrúi Vegagerðarinnar,
reiknar með að annaðhvort verði
farið í forval eða útboð vegna þeirra
framkvæmda sem eftir eru. Ferjan
fari svo í siglingar fljótlega upp úr
áramótum. Nýja ferjan hefur hlotið
nafnið Sæfari, eins og fýrirrennari
hennar, sem enn er í siglingum.
DV flutti af því fréttir strax í janú-
ar að kostnaður við hina nýju ferju
væri kominn hundruð milljóna
fram úr áætíun og mikil seinkun á
afhendingu blasti við. Þá vildu full-
trúar Vegagerðarinnar meina að um
seinagang hjá Vélsmiðjunni væri að
ræða, ásamt kröfum Grímseyinga
sjálfra. Grímseyingar, með oddvit-
ann Brynjólf Árnason í broddi fylk-
ingar, höfðu þó lýst því yfir að þeir
vildu ekkert með ferjuna hafa. Hún
væri mesti gallagripur.
Upp úr sauð svo á miðju sumri
þegar Sigurður Þórðarson ríkis-
endurskoðandi gaf út skýrslu um
kaup og endurbætur á ferjunni.
í skýrslunni gagnrýndi Sigurður
Árna Mathiesen fjármálaráðherra
fyrir að veita Vegagerðinni heim-
ild til fjárausturs sem ekki væri á
fjárlögum. Skeyti gengu svo á milli
Árna og Sigurðar. Þeir Grétar Mar
Jónsson og Jón Bjarnason kröfð-
ust þess að fram færi rannsókn á
agaleysi í fjárútlátum vegna ferj-
unnar og vildu að Árni Mathiesen
og Sturla Böðvarsson, fyrrverandi
samgönguráðherra, sættu ábyrgð
með því að segja af sér.
sigtryggur@dv.is
Nýr Saefari Vélsmiðja Orms og
Víglundar hefur lokið sinni vinnu við
nýja Grímseyjarferju. Stjórnendur
Vélsmiðjunnar eru fegnir.