Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
Fréttir DV
Sjimpansar stóðu sig með prýði:
HAFAGOTT MINNI
Samkvæmt nýrri rannsókn
hafa sjimpansar framúrskarandi
minni og ef eitthvað er að marka
niðurstöðurnarstandaþeirmann-
fólkinu framar í þeim efnum. Það
voru japanskir vísindamenn sem
stóðu að rannsókninni og í henni
öttu kappi háskólanemar gegn
þremur sjimpansamæðrum og af-
kvæmum þeirra.
Niðurstöðurnar leiða iíkur að
því að við höfum stórlega van-
metið þessa nánustu ættingja
okkar.
Verkefnið fól í sér að muna
tölur frá 1 til 9 og staðsetningu
talnanna á þar til gerðum snerti-
skjá. Þátttakendum voru sýnd-
ar tölurnar á skjánum, en síðan
komu auðir reitir í stað talnanna.
Þátttakendur þurftu þá að muna
hvar hver tala var á skjánum og
snerta viðeigandi reit. Niðurstað-
an var sú að ungu sjimpansarnir
stóðu sig allajafna betur en hvort
tveggja mæður þeirra og fólkið.
Háskólanemarnir sýndu hægari
viðbrögð meiri ónákvæmni en
allir ungu sjimpansarnir og það
Ayumu Einn sjimpansanna sem þátt
tóku í rannsókninni.
sama var uppi á teningnum þegar
birtingartími talnanna á skjánum
var styttur.
Stysti tíminn sem tölurnar
birtust á skjánum var tvö hundr-
uð og tíu millisekúndur og sá tími
veitti þátttakendum ekki nægan
tíma til að kanna skjáinn frá reit
til reits á svipaðan hátt og gert er
við lestur. Sú staðreynd breytti
engu hjá sjimpönsunum og er að
mati vísindamannanna staðfest-
ing þess að sjimpansar búi yfir af-
burða getu til að leggja á minnið
flókna mynd eða mynstur.
Leiðarvísir
\ User Manual
wmmm
't Um þig, manninn,
konuna eða börnin.
í Loksins!
/^-4 /\ \\
Stjörnuspekistöðin
Síðumúli 29
5537075
www.stjornuspeki.is ;
Full búð af glæsilcgum
Jólafatnaði frá Emilc ct Rosc
Falleg
þroskaleikföng,
tilvalin í /
*Jólapakkann v t ív
JVtóðwi^ást
Hamraborg 7 • Kópavogi • Sími 564 1451
www.modurast.is
Einn þeirra striösglæpamanna sem réttvísin hefur ekki komið
höndum yfir er Daninn Soren Kam en hann hefur fengið
þýskan ríkisborgararétt og býr í Bæjaralandi i Þýskalandi.
hXt
» jH : ■''íJtíÁ j
V
“ ’ ' PSJS • | ■ 1J
w *
Á heimili Kams F.v. faðir Sorens,
Rasmus Kam, Gunther Pancke
hershöfðingi og Soren Kam.
BÝRÓHULTUR
í BÆJARALANDI
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
bladamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Soren Kam er númer átta á lista
Efraím Zuroff hjá Wiesenthal-
stofnuninni yfir þá menn sem
hann vill helst koma höndum yfir.
Dönskum yfirvöldum er einnig
mikið í mun að hann svari fýrir
gjörðir sínar, en hann liggur undir
grun um að hafa myrt Carl Henrik
Clemmensen í úthverfi Kaup-
mannahafnar árið 1943. Clemm-
ensen, sem var þá ritstjóri dag-
blaðs, var sóttur á heimili sitt og
skotinn til bana í Lyngby.
Árið 1946 dæmdi danskur dóm-
stóll Flemming Helveg-Larsen,
annan tveggja vitorðsmanna Sor-
ens, til dauða íyrir hans þátt í morð-
inu, en fyrir hafði hann borið vitni
og samkvæmt vitnisburði hans og
þeim sönnunum sem lágu fýrir var
talið fullvíst að Kam hefði átt aðild að
ódæðinu. Clemmensen hafði verið
skotinn mörgum skotum úr þremur
skammbyssum en Jörgen Vaídemar
Bitsch, þriðji tilræðismaðurinn,
hvarf í lok stríðsins. Til ársins 1999
neitaði Soren Kam allri aðild að
morði ritstjórans, en hefur síðan þá
viðurkennt að hafa skotið Clemm-
ensen en eingöngu eftir að hann
var dáinn.
Fleiri glæpir
Dönskýfirvöld vilja aukinheldur
fræðast um þjófiiað á gögnum frá
hagstofunni. En þeim var stolið árið
1943 og seinna notuð til’ að safrta
saman fimm hundruð gyðingum
og senda í útrýmingarbúðir. Þótt
margir danskir gyðingar hafi átt því
láni að fagna að komast til Svíþj óðar
á þessum tíma enduðu margir
ævi sína í Auschwitz eða öðrum
útrýmingarbúðum.
Soren Kam nýtur þess vafasama
heiðurs að vera sá Dani sem
hlotið hefur æðstu orðuna fýrir
afrek sín, en hann var sæmdur
Riddarakrossinum árið 1945 fyrir
að hafa farið fyrir öðrum dönskum
SS-mönnum í aðgerðum gegn
andspymuhreyfingu Dana. Sam-
kvæmt breska dagblaðinu Tele-
graph hefur Soren Kam verið tíður
gestur á samkomum fýrrverandi
Vettvangur glæpsins Lík Carls
Henriks Clemmensen úti við vegakant a
í útjaðri Kaupmannahafnar.
Þótt margir danskir
gyðingar hafi átt .
því láni að fagna að
komast til Svíþjóðar á
þessum tíma enduðu
margir ævi sína í
Auschwitz eða öðrum
útrýmingarbúðum.
SS-manna gegnum tíðina og
einnig talið að hann hafi haft náin
tengsl við Gudrunu Burwitz, dóttur
Heinrichs Himmler og samtök
hennar sem hafa að markmiði að
veita stuðning SS-mönnum sem
hafa verið handteknir eða eru á
flótta undan réttvísinni.
Orðum prýddur
Soren Kam reis til metorða
innan SS-sveitanna og endaði
sem yfirstormsveitarforingi árið
1945. Hann var sæmdur mörgum
orðum á ferli sínum, til dæmis Jám-
krossinum tvisvar, árið 1941 og
1944, enaukþessvarhannsæmdur
orðu fyrir bardaga í návígi; brons
1944 og silfur 1945, og árið 1944
var sæmdur orðu fýrir að særast, og
eins og áður er getið, Riddarakross-
inum árið 1945.
Andstætt því sem margir kynnu
að halda dvaldi Saren Kam ekki í
Danmörku öll styijaldarárin. Hann
þjónaði í 5. SS-skriðdrekasveitinni,
Wiking, en meðlimir hennar voru
erlendir sjálfboðaliðar og sem
slíkur barðist hann á austurvíg-
stöðvunum. Wiking-sveitin hefur
verið tengd við stríðsglæpi sem
framdir voru gegn gyðingum og
öðrum almennum borgurum á
austurvígstöðvunum, en ekki fýrir-
finnast nein opinber skjöl sem
staðfesta þau tengsl, en dagbækur
Finna sem börðust með sveitinni
renna stoðum undir þær ásakanir.
Framsals krafist
Dönsk stjómvöld kröfðust þess
að Þjóðverjar framseldu Soren
Kam til Danmerkur, en í febrúar
var þeirri kröfu hafnað. Dómstóll
í Múnchen komst að þeirri niður-
stöðu að framburður Kams væri
sannleikanum samkvæmur og að
Clemmensen hefði verið drepinn í
sjálfsvöm, þó óvopnaðurværi.
Manndráp eða manndráp af
gáleysi fýmist samkvæmt þýskum
lögum og því getur Soren Kam unað
glaður við sitt. Nágrannar Sorens
í Bæjaralandi virðast vera sömu
skoðunar og þýskir dómstólar og
þeir hafa reist skjaldborg í kringum
hann. Zuroff er þeirrar skoðunar
að Þjóðverjar veiti meintum stríðs-
glæpamönnum nasista hæli. Hann
er ekid einn um þá skoðun. Erik
Hogh Sorensen, danskur blaða-
maður og nasistaveiðar sagði að
dómstólar í Bæjaralandi hefðu sýnt
augljósa hlutdrægni þegar kröfu
danskra stjómvalda var hafnað.