Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hrelnn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elin Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm.
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guömundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SANDKORN
■ Kristján Möilcr félagsmála-
ráðherra er ekki mikið í umræð-
unni þessa dagana og svo virðist
sem hann
hafi þagnað
eftir að hafa
misst fótanna
í umræðunni
um Gríms-
eyjarferjuna
og ábyrgð
Einars Her-
inannssonar
verkfræðings. Ritstjórn Skessu-
horns hefur mikinn áhuga á því
að ná tali af ráðherranum en
það hefur ekki tekist mánuðum
saman með þeim afleiðingum
að ritstjórinn, Magnús Magnús-
son, skrifaði leiðara um týnda
ráðherrann.
■ ögmundur Jónasson alþing-
ismaður brá skjótt við eftir að
sagt var frá því að einungis einn
þingmaður VG, Atli Gíslason,
hefði svarað
fyrirspurn
Guðinund-
ar Jóns Sig-
urðssonar
kosninga-
smala um af-
stöðu þing-
flokksins til
mála Arons
Pálma Ágústssonar. ögmundur
fordæmdi í svari sínu meðferð-
ina á Aroni. Fyrirspurnin var í
ljósi þess að Paul Nikolov vara-
þingmaður hafði talið refsivist
Arons í 10 ár maklega. Þá hefur
varaþingmaðurinn Guðfríður
Lilja Grctarsdóttir einnig svarað
og tók skýra afstöðu með Aroni
Pálma. Paul er því einn um af-
stöðuna enn sem komið er.
■ Össur Skarphéöinsson iðnað-
arráðherra er á miklu flugi þessa
dagana þó næturblogg hans hafi
að undanförnu ekki verið eins
stingandi og þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn varð fyrir brandi
hans á dögunum. Ráðherrann
er hreinskiptinn þegar hann
gerir upp átakatíma í flokknum.
„Stríðsaxir, sem hafnar voru á
loft í átökum okkar Ingibjarg-
ar Sólrúnar, eru löngu grafnar
og öll spenna milli óstýrilátra
stuðningsmanna okkar löngu
orðin að sameinuðu, jákvæðu
afli," segir Össur og undir liggur
að nú séu margar stríðsaxir á
lofti í Sjálfstæðisflokknum.
■ Stórmenni líðandi stundar
hafa verið að eignast barna-
börn og nafna á undanförnum
mánuðum. Þannig eignaðist
Ólafur Ragnar Grínisson, for-
seti íslands, dóttursoninn Ólaf
Ragnar fyrir tilverknað dóttur
sinnar Svan-
hildar Döllu.
Vilhjálm-
urÞ.VU-
hjálmsson,
íýrrverandi
borgarstjóri,
eignaðist
líka nafna
þegarjó-
hanna Vilhjálmsdóttir nefndi
son sinn Vilhjálm Geir. Hermt
er að þegar afinn, sem er húm-
oristi, fékktíðindin um nafnið
hafi hann orðið hugsi stund-
arkorn áður en hann glotti og
skammstafaði nafn dótturson-
arins, VG. -rt
Smán
SIGURJÓN M. EGILSSON RITSTJÓRI SKRIFAR.
Það er fínt fyrir samfélag sem okkar að eiga menn
eins og Jóhannes Jónsson í Bónus. Þeir eru fleiri sem
gefa þurfandi af rausnarskap líkt og hann. Jóhannes
hefur í mörg ár verið fínasta fyrirmynd þegar kem-
ur að þeim sem minnst eiga og mest þjást. ítrekað gerist að
þurfandi fólk þarf að treysta á náð samborgaranna til að geta
haldið jól. Og reyndar einnig til að geta lifað milli jólahátíða.
Rausnarskapur nokkurra og þrotlaus vinna þess fólks sem
annast um að koma gjöfum og nauðþurftum til bágstaddra
er til aðdáunar. Hitt er annað og verra að fátæktin sé slík að
fólk þurfi að þiggja þá hjálp sem þetta fólk veitir.
Fólkið sem leggur starfinu lið segir að öryrkjum í hópi þigg-
jenda hafi fjölgað. „Einnig er mikið af einstæðum karlmönn-
um sem leita til okkar. Þetta eru menn sem eru aleinir og
oft mjög einmana. Þeirra vandi er oft ekki aðeins fjárhags-
legur heldur einnig félagslegur. Það er enginn sem tekur á
þessum stækkandi hópi sem mér finnst gleymdur. Nokkrir
koma alltaf aðra hverja viku. Þeir eru þá að fá börnin til sín
yfir helgina og vantar mat. Ég held að fáir geri sér grein fyrir
stöðu þessara manna." Þetta sagði Aðalheiður Franzdóttir,
framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar, í DV í gær. Neyðin
getur verið mikil og sár.
LEIDARI
Margir þurfandi fti afþeirri gjöf.
„Við höfum það á tilfinningunni að þessi mánuður verði
mjög erfiður," sagði Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður
Fjölskylduhjálpar íslands, í samtali við DV. Til Fjölskyldu-
hjálparinnar hafa þegar leitað 130 fjölskyldur og óskað eftir
mataraðstoð fyrir jólin. Ásgerður býst þó við allt að 700 fjöl-
skyldum. Fjöldi fyrirtækja styrkir Fjölskylduhjálpina hver
jól sem og árið um kring, en helst skortir þar nú tannkrem
og tannbursta. Sem betur fer eiga fátækir einhverja að. Þetta
góða fólk, bæði það sem starfar við úthlutanir og söfnun
og það fólk sem gefur til fátækra, er ómissandi. Þó ríki og
sveitarfélög eigi að gera betur er víst að það kemur aldrei
í stað þess sem nú er. Sú ákvörðun Jóhannesar í Bónus að
gefa rafræn kort með fimm þúsund króna inneign er fín. Það
er meiri reisn fyrir þá sem þiggja að geta borgað með korti í
stað þess að vera með inneignarmiða. Ástæða er til að taka
ofan fyrir þeim sem sýna þeim sem þurfa skilning. Ásgerð-
ur Jóna Flosadóttir sagði frá konu í DV í gær. Sú vill ekki láta
nafns síns getið, en hún gefur matvæli sem kosta eina millj-
ón. Margir þurfandi fá af þeirri gjöf.
Þrátt fyrir allt það góða sem gert er, er það samt smán að rík-
asta þjóð veraldar líði að meðal okkar gangi fólk sem ekkert
á. Ekki einu sinni mat til að borða.
ÞREKHJÓL 0G SÚKKULAÐIJÓL
SVARTHÖFÐI
Þegar Svarthöfði komst á legg
gerði hann sér grein fyrir því
að tilvera jólanna var ekki
eins einföld og barnið
hélt. Allur ann-
ar bragur var á
Grýlu og hyski
hennar en hann
áður taldi. Jólin
hættu að vera
hátíð ljóss og
friðar en urði að
svallveislu ofáts og
græðgi. Sífellt jukust kröfurnar um
þá umgjörð sem þurfti til að skapa
gleðileg jól. Epli voru orðin hvers-
dagsmatur og ekki dugði minna en
suðræn ástaraldin flutt með flugi fá
útlöndum til að ná upp stemningu.
Og jólagjafirnar sem eitt sinn voru
kerti og spil urðu stöðugt dýrari.
Jólagleði æskuáranna breyttist í þá
þjáningu hinna fullorðnu sem urðu
að borga brúsann með þeim afleið-
ingum að þurfa gieðipillur til að
komast á sæmilegt andlegt skrið.
Þannig eru jólin í dag. Peninga-
guðinn Mammon er sá sem öllu
stjórnar og hjörðin hleypur öll í
áttina að auglýsingaskiltunum sem
öll eiga það sameiginlegt að boða
fullnægju og alsælu þeirra sem
kaupa vöruna.
Svarthöfði
hefur
séð öll
tilbrigði þess
að reyna að
öðlast alsælu
með peningum.
Eitt árið voru það fótanuddtækin
sem obbi almennings fékk í jóla-
gjöf. Svarthöfði var einn þeirra og
hann rekur minni til þess að hafa í
tvígang látið vatnsnuddið leika um
iljar sér. Síðan var tækinu komið í
geymslu þar sem það rykféll árum
saman. Annað árið var í tísku að
eignast alhliða þrektæki til að hafa
heima í stofu. Handhafar tækis-
ins voru með loforð upp á það að
verða í senn grannir og stæltir.
Þrektækið sómdi sér skringilega
í stofu Svarthöfða en strax eftir
þrettándann breyttist það í strau-
borð og lauk fýrra hlutverki sínu.
Enn eitt tískufyrirbærið var grill
sem kennt var við hnefaleikarann
George Forman sem sagðist vera
svo stoltur af grillinu að hann hefði
sett nafn sitt á það. Grillið er fyrir
löngu komið upp á háaloft.
Eftir á að hyggja er þetta eitt
það skemmtilegasta við jólin.
Svarthöfði rak
á dögunum aug-
un í auglýsingu
frá sjónvarps-
verslun um
tæki sem við
hita mynd-
ar súkkulaði-
foss sem notalegt
er að dýfa puttunum í og
sleikja. Tækinu er ætlað að vera á
borðstofuborði til skrauts ogynd-
is. Þetta er málið í ár. Og þegar
fjölskylda Svarthöfða verður orðin
akfeit af súkkulaðifossinum verð-
ur tímabært að draga fram gamla
þrektækið til að ná af sér súkkul-
aðifitunni. Þetta verða súkkulaðijól.
DÓMSTÓLL GÖTUNIVAR
HVER ER IÓLAGJÖFIN í ÁR?
„Ég á stórafmæli á jólunum (ár. Ég kem
ekki til meö að gefa neinar stórar
jólagjafir heldur ætla að halda upp á
afmælið."
„Gott faðmlag frá fjölskylduvini eða
öðrum sem manni þykir vænt um."
(ris Dögg Guðnadóttir,
20 ára sölumaður
„Kerti og spil. Og mandarlnur! Ég er
greinilega gamaldags að þessu leyti."
Tómas Þorgeirsson,
29 ára sölumaður
„GPS-staðsetningartæki. Ég sá það
allavega í einhverju blaði nýlega."
Hrannar Traustason,
26 ára rafeindavirki
Magnús Einarsson,
49 ára sölufulltrúi hjá PMT