Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON
Richard Dawson Woodhead, útfararstjóri í
Keflavík, er mikill bílaáhugamaður. Einn bíla
hans er glæsilegur Rolls Royce frá árinu 1972:
Richard Dawson Woodhead við Rolls-inn
Hann eignaðist sinn fyrsta bíl fyrir 41 ári.
DV myncl Stefán
Eg eignaðist bílinn árið
2001 en hann var áður í
eigu bróður míns sem var
búsettur í Svíðþjóð. Þeg-
ar hann skildi við konuna
sína fékk hún bílinn. Hún
gat hins vegar ekki átt hann svo ég
keypti bílinn af henni," segir Rich-
ard Dawson Woodhead um tildrög
þess að hann eignaðist Rolls Royce
árgerð '72. Þetta bar nokkuð brátt
að og því hafði hann ekki fjármagn
við höndina til að kaupa bílinn. „Ég
átti húsnæði í Grófmni í Keflavík
sem ég auglýsti til sölu, í von um að
eiga fyrir bílnum. Auglýsingin birt-
ist á fimmtudegi en á mánudegin-
um eftir var ég búinn að fá tilboð
sem ég gat ekki hafnað. Þannig átti
ég fyrir bílnum og keypti hann í
kjölfarið," rifjar Richard upp.
Keyrir Rolls-inn bara á sumrin
Aðspurður hvort hann keyri bíl-
inn mikið svarar hann: „Já, ég keyri
hann töluvert á sumrin. Ég hef bæði
farið á honum til Akraness og svo á
Selfoss en ég held mig hér á Suður-
landinu." Richard keyrir bflinn þó
ekki á veturna. „Saltið fer svo illa
með bíla að ég vil ekki keyra hann
um blautar götur á veturna þeg-
ar búið er að salta. Ég geymi hann
bara á sumardekkjunum inni í
geymslu og því er hann í mjög góðu
ásigkomulagi. Aukþess er hann að-
eins keyrður um 70 þúsund mflur."
Rolls Royce er líklega þekktasti
lúxusbfll heims. Richard segir afar
gott að keyra Rolls Royce. „Þeir eru
að mestu leyti handunnir og því eru
þeir ákaflega vandaðir. Það tekur
tvo daga að pólera grillið á þessum
bflum en það kostar eitt og sér um
eina milljón króna," segir Richard
sem sér að mestu leyti sjálfur um
viðhald á bílnum.
Á sjö bíla
Rolls-inn er hreint ekki eini bfll-
inn sem Richard á. „Ég á tvo gamla
Cadfllac-líkbfla, '72 og '73 módel.
Svo á ég annan Cadillac, '91 árgerð
auk þess sem ég keypti í fyrra nýjan
Volkswagen Transporter. Ég á einn
Chevrolet og loks Daihatsu-bifreið
sem sonur minn hefur til umráða,"
segir Richard en allir þessir bílar
eru á númerum.
Langt er liðið síðan Richard
eignaðist sinn fyrsta bfl, en árið
1966 eignaðist hann Opel Caravan
árgerð 1955. Hann hefur átt ara-
grúa af bílum í gegnum ævina en
ekki stendur á svörum þegar hann
er spurður hver sé draumabíllinn
hans. „Ég gæti alveg hugsað mér
að eiga Chevrolet '57 árgerð. Ég
hef alltaf verið hrifinn af þeim bíl
en eins og staðan er núna skortir
mig húsnæði til að hýsa fleiri bfla.
Ætli ég yrði ekki að selja einn til að
koma Chevrolet-bílnum fyrir," segir
Richard léttur í bragði að lokum.