Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Side 21
DV Umræða
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 21
p— Plúsinn fær Þórunn
-J Sveinbjarnardóttir umhverfis-
ráðherra fyrir metnaðarfulla
áætlun tilþess að draga úrlosun
gróðurhúsalofttegunda. Nú er
bara að láta verkin tala og standa
við stóru orðin.
SPURMNGIN
Á AÐ KÍKJA Á
RÚNTINN í KVÖLD?
„Við förum á rúntinn, ég og konan. Við
fögnum því að bíllinn sé kominn í
leitirnar og fáum okkur jafnvel rjóma
út í kaffið" segir Stefán Ásgrfmsson,
ritstjóri FÍB-blaðsins. Bíl Stefáns var
stolið fyrir nokkru en hann kom í
leitirnarfyrir utan Grand hótel í
fyrradag. Það var mikið búið að róta í
honum og þurfti að fara með hann á
verkstæði. Blllinn er hins vegar orðinn
nokkuð heill núna og tilbúinn til að
fara á götuna.
MYIVDIK
Gaman Hillary CJinton skemmti sér vel á kosningafundi sem hún hélt í Wellesley College í Massachusetts
nýlega. Hillary er nú ásamt öðrum frambjóðendum á ferð um Bandaríkin til þess að kynna sig og sín
stefnumál. DV-MYND GETTY
Ræðum saman málefnalega
„Ég hefskoðað þessiskrif jrSjpMH
og neita því ekki að mér 'i
varð mjög hverft við.
Hótaðerhrottafengnum
nauðgunum og öðrum fjPrT
líkamsmeiðingum
Undanfarna daga hafa birst á
blog-heimum ótrúlegar hótanir í
garð einstaklinga sem hafa tekið þátt
í sjálfsagðri og mjög brýnni umræðu
um kvenfrelsismál. Ég hef skoðað
þessi skrif og neita því ekki að mér
varð mjög hverft við. Hótað er hrotta-
fengnum nauðgunum og öðrum lík-
amsmeiðingum og höfð í frammi
meiðandi og særandi ummæli um
fólk. Þessar hótanir eru settar fram
í nafni einstaklinga en einnig er um
að ræða nafnlaus skrif. f netheimum
geta menn farið huldu höfði en þegar
skrif birtast á nafnkenndum heima-
síðum hljóta eigendurnir að vera
jafnframt ábyrgðarmenn. Enginn á
að komast upp með að þagga niður
lýðræðislega umræðu með ofbeldis-
hótunum. Þær hótanir sem hér um
ræðir hafa einkum beinst gegn okk-
ur, sem skipum raðir Vinstrihreyfing-
arinnar græns framboðs, og munum
við að sjálfsögðu leita allra leiða til að
tryggja öryggi okkar gagnvart þeim
sem hafa í hótunum við okkur. Sjálf-
um finnst mér einboðið að lögreglu
sé jafnan gert viðvart þegar haft er í
hótunum við fólk um alvarlegar lík-
amsmeiðingar. Samfélagið á ekki að
þola að einstaklingur sé beittur of-
beldi með þessum hætti. Þetta snert-
ir samfélagið einnig á annan hátt:
Ef ofbeldismönnum tekst að þagga
niður umræðu um mannréttinda-
mál með hótunum um líkamsmeið-
ingar, er ekki aðeins í húfi hagur þess
einstaklings sem fyrir slíkum hótun-
um verður. Hótunum af þessu tagi
er nefnilega stefnt gegn samfélaginu
öllu; mannréttindabaráttu, frjáls-
um skoðanaskiptum; þeim er stefnt
gegn sjálfú lýðræðinu.
Þegar mál af þessu tagi koma upp
reynir mjög á fjölmiðla því þeir hafa
með fréttafiumingi sínum og sem
vettvangur umræðu mikið vald til
að hafa áhrif á umræðuna og í hvaða
farveg hún beinist. Þessar línur set
ég á blað til þess að hvetja til yfirveg-
aðrar og málefnalegrar umræðu um
inntak þeirra baráttumála sem hót-
anirnar beinast gegn.
Sandkassinn
Ásgeir Jónsson
veltir hlutunum fyrir sér
ÉGERAÐMETfl að 30 Rock séu ein-
hverjir fyndnustu þættir í heimi
um þessar mundir. Það er bara of
mikið af góðum
karakterum í
þessum þáttum.
Tracy Morgan
stelur algjör-
lega senunni
sem hinn kol-
geðveiki Tracy
Jordan. Ég
meina hversu
fyndið er að
Tracy hafi tekið þátt í Nígeríus-
vindli sem gekk upp? Þá er Alec
Baldwin líka óborganlegur sem
og Tina Fey. Sem sagt vel þéttur
pakki.
ANNARS eru góðar fféttir fyrir ís-
lenskt grín og sjónvarp að Erpur
Eyvindarson sé kominn aftur á
skjáinn sem
hinn gjörsam-
legaúrkynj-
aði og ofvirki
sjónvarps-
stjóri Ebbi á
sjónvarpsstöð-
inni Þristinum.
Fólk gleym-
ir því stund-
um hversu
viðbjóðslega fyndinn Erpur var
í hlutverki Johnny Nas á sínum
tíma. eins og þegar hann sendi
helvítis gerpið úr flokki íslenskra
þjóðernissinna inn í kústaskáp-
inn. Það er algjör synd að þessir
þættir hafi aldrei verið gefnir út
áDVD.
SJÓNVARPSSTJÓRINN EBBI á
allavega eitt sameiginlegt með
Johnny Nas. Hann hatar ekki að
spyrja viðmæl-
endur sína
skemmtilega
óþægilegra
spurninga. Eins
og þegar Ebbi
tókviðtal við
Geir Ólafsson
sem var sýnt í
gær. Þar byrj-
aði hann á að
spyrja Geir úti augabrúnirnar
sem voru augljóslega litaðar og
hvort hann væri með meik. Eða
hvort hann væri í einhverjum
„Lordi-fíling" eins og hann orð-
aði það. Ebbi var þá líka óhrædd-
ur við að spyrja Geir út í atvikið
þegar hann átti náin kynni við
uppblásna dúkku í þættinum
Kallarnir.is. Ekkert fyndið. Semí.
hvað er að frétta?