Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 HelgarblaB PV Snjólaug Sigurbjörnsdóttir segir börnin öðlast aukinn kraft og æðruleysi í veikindum. Starfsfólk á spítalanum Hrönn, Auður, Auður Lín, Stefanía, Gróa og Snjólaug deildarstjóri. LEGGJUM MIKIÐ UPP ÚR JÓLUNUM „Það er eitthvert æðruleysi sem einkennir börnin sem koma hingað til okkar. Það er eins og þau fái ein- hvern aukinn kraft, og foreldramir reyndar líka," segir Snjólaug Sigur- björnsdóttir, deildarstjóri á lyflækn- ingadeild Barnaspítala Hringsins í Reykjavík. „Það er alltaf eitthvað um að börn neyðist til þess að verja jólunum hérna á spítalanum," segir Snjólaug. „Við reynum að lífga upp á umhverfið eins og við getum." Misjafnt er hve mörg börn dvelja yfir jólin á Barnaspítala Hringsins en þau geta verið allt að nokkrir tugir. „Þá höfum við þetta þannig að fjölskyldan þeirra kemur hing- að og allir borða saman. Svo em pakkarnir opnaðir hérna líka," bæt- ir Snjólaug við. Á aðventunni er mikið lagt upp úr því að magna upp jólastemninguna. Á fimmtudag var sérstök aðventustund. Jólasveinar komu í heimsókn og piltarnir í Baggalúti tóku lagið. Margt hefur breyst í bamalækn- ingum á liðnum ámm og áratugum. Það var ekki fyrr en um 1980 sem foreldrar fengu ótakmarkaðan að- gang að börnum sínum sem lágu á spítala. í sumum tilvikum máttu foreldrar alls ekki heimsækja börn og í öðmm tilvikum máttu þeir að- eins hitta börnin í eina klukkustund ádag. „Núna em foreldrar héma eins mikið og þeir geta. Hérna starfa svo þrír leikskólakennarar og þrír gmnnskólakennarar sem reka nokkurs konar útibú ffá Austurbæj- arskólanum," segir Snjólaug. sigtryggur@dv.is seafarer stripe knit 6390kr A Sherpa Slipper lce Is Shirt 6390kr Space dye Beanie 1990kr Ridge Denim 7890kr Space dye Scarf 3190kr Hill Station Skirt Kenora Luxury 6390kr Slipper Sock Benjamín Nökkvi Björnsson, fjögurra ára, greindist meö ungbarnahvítblæði sem tekist hefur að vinna bug á. Þetta er fjórði desembermánuðurinn sem hann ver á Barnaspitala Hringsins. Hann kann vistinni vel og vekur athygli á því að jólasveinninn kemur einnig á spítalann. VILL VARLfl „Jólasveinninn kom og ég fékk fyrst lítinn karl og svo bók," segir Benjamín Nökkvi Björnsson, fjög- urra ára. Þetta er fjórði desember- mánuðurinn á stuttri ævi Benjamíns sem hann eyðir á sjúkrastofnun. Hann var að búa sig til heimferð- ar þegar blaðamann bar að garði á Barnaspítala Hringsins á fimmtu- dag. „Við höfúm reyndar alltaf kom- ist heim yfir hátíðarnar," segir Eygló Guðmundsdóttir, móðir Benjamíns. „Á síðasta ári fórum við heim 22. desember. Börnunum líkar reyndar oft svo vel hérna að þau vilja varla fara aftur heim," bætir Eygló við. Hvítblæði fyrir bí Benjamín greindist með svo- kallað ungbarnahvítblæði þegar „Við höfum reyndar alltafkomist heim yfir hátíðarnar." hann var aðeins tíu vikna gamall. Sjálft krabbameinið er nú fýrir bí en Benjamín hefur þurft að koma regluiega á Barnaspítala Hringsins til þess að leita lækninga við fylgi- kvillum sjúkdómsins og meðferðar- innar. „Hann fór tvisvar í beinmergs- skipti á sínum tíma. Nú er hann að kljást við síðbúnar afleiðingar afþví. Núna er hann aðeins slappur í háls- inum, en þetta lagast allt með tíð og tíma," segir Eygló. „Ég er fjögurra ára," segir Benja- mín. „Það er mikið." Lætur ekkert trufla sig í fyrrakvöld fékk Benjamín bréf frá systur sinni sem gladdi hann mjög. „Það stendur: Til Benjamíns Nökkva frá Hrafnhildi Teklu," segir Benjamín og biður móður sína um

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.