Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007
Menning DV
VIÐTAL
Tilrauneldhúsiö verður með sérstakan jólaviðburð:
Jólamess í Hveragerði
„Hugmyndin á bak við þetta er
í raun að gera alternitíva messu,"
segir Kristín Björk Kristjánsdóttir,
einnig þekkt sem Kira Kira. Kristín
og félagar hennar í Tilraunaeldhús-
inu munu halda
eins konar jóla-
gjörning í Lista-
safni Árnesinga á laugardag en við-
burðurinn stendur frá fimm til sex.
• „Kjarni upplifunarinnar er stemn-
ingin sjálf og það sem mætir þér í
stað hinnar hefðbundnu trúarlegu
TÓMLIST
hlið messu," en Kristín segir hópinn
hafa viljað skapa hátíðlega stemn-
ingu án þess að hún væri trúarleg
sem slík. „Aðgöngumiðinn að þess-
um hátíðleika eða heilagleika sem
maður vill upplifa í kringum jólin er
ekkert endilega messa í Hallgríms-
kirkju þótt hann sé það auðvitað
fyrir marga.," segir Kristín en það
verður list af ýmsum toga sem gest-
um Jólamess verður boðið upp á.
„Listin verður í formi myndbanda,
tónlistar, ljósa og fleiri hluta sem
skapa heildræna upplifun."
Hugmyndina að Jólamessinu
fékk Kristín þegar hún gekk fram
hjá Nýlistasafninu á dögunum og
hitti þar Ingu Jónsdóttur, safnstjó-
ra Listasafns Árnesinga. „Við í Til-
raunaeldhúsinu gerðum jólaser-
íu í Nýlistasafninu fyrir tveimur
árum sem situr svo ljúflega i minn-
inu. Þegar ég gekk þar framhjá um
daginn og var að skoða sýningu
Gabríellu langaði mig svo að gera
eitthvað jólalegt. Svo hitti ég Ingu
Spuni
Hrönn Helgadóttir opnar
sína fýrstu einkasýningu í Lista-
sal Mosfellsbæjar á laugardag-
inn kl. 14. Yfirskrift sýningar-
innar er Spuni og eru verkin
þverskurður af því sem hún
hefur verið að vinna að síðast-
liðin tvö ár. Myndir Hrannar
búa yfir leikandi hreyfingu þar
sem litir og form spinna sig um
myndflötinn. Hrönn stund-
ar nú nám við mótunardeild
Myndlistaskólans í Reykjavík.
Hún hóf tónlistarnám ung að
aldri og hefúr lokið kantorsprófi
og burtfararprófi í söng. Sýn-
ingin stendur til 12. janúar.
Slæður og
skartgripir
Litríkar slæður eftir Helgu
Björnsson, tískuhönnuð í Par-
ís, og skart eftir Guðbjörgu
Kr. Ingvarsdóttur í Aurum eru
meðal þess sem nú fæst í Safn-
búð Gerðarsafns í Kópavogi.
Búðin hefur þá sérstöðu að
bjóða upp á listmuni og fatnað'
sem þekktir íslenskir hönn-
uðir hafa gert með hliðsjón af
verkum Gerðar Helgadóttur.
Auk Helgu og Guðbjargar eiga
meðal annarra verk í verslun-
inni þau Ragna Fróða, Ingiríður
Óðinsdóttir, Kristín Sigfríður
Garðarsdóttir og Þorbergur
Iialldórsson.
Verðlaunafe, Super-
man, Helgi tattú,
forsetinn, barneign-
ir og það að detta
niður stiga er á
meðal þess sem bar
á góma þegar
Kristján Hrafn
Guðmundsson
ræddi við rithöf-
undinn Gerði
Kristnýju i vikunni.
Kira Kira Kristín og félagar hennar (
Tilraunaeldhúsinu verða með
jólastemningu á laugardaginn.
Jónsdóttur safnstýru og áður en ég
vissi af vorum við búnar að ná svo
vel saman að við ákváðum að gera
þetta Jólamess," segir Kristín að
lokum og bendir fólki á rútuferðir
BSf sem geta komið fólki fram og til
baka á viðburðinn en ekkert kostar
á hann. asgeir@dv.is
Aðalsteinn
leiðsegir
Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur verður með leiðsögn
um sýningu á verkum Kristjáns
Davíðssonar í eigu Markúsar
ívarssonar (1884-1943) í Lista-
safni íslands á sunnudaginn kl.
14. Verkunum safnaði Markús
á 3. og 4. áratug 20. aldar. f
spjalli sínu mun Aðalsteinn
fjalla um safnið í heild og sér-
stöðu þess sem einkasafns með
hliðsjón af persónu Markúsar
og tíðaranda. Alls hefur Lista-
safn íslands staðið fyrir fjórum
sýningum á úrvali verka úr
safni Markúsar, að meðtalinni
sýningu gjafarinnar við opnun
safnsins árið 1951.
Tómas og President Bongo
f tilefni af útkomu geisladisksins Rommtommtechno bjóða Tómas R.
Einarsson og President Bongo upp á tónleika á Sirkus við Kiapparstíg í
kvöld frá 22 til 24. Ómótstæðileg rommtommtechncosveifla mun berast
úr hátölurunum og skáldið Kristin Svava Tómasdóttir les upp úr
umtalaðri Ijóðabók sinni, Blótgælum. Rommtommtechno verður til sölu
á sérstöku útgáfuhófsverði.
Það kemur berlega í ljós að jóla-
bókavertíðin stendur sem hæst
þegar blaðamaður hittir Gerði
Kristnýju í kaffistofu Norræna
hússins í vikunni. Þegar stutt er
liðið á spjallið töltir nefnilega inn
blaðamaður annars dagblaðs, og
nokkrum mínútum síðar viðmæl-
andi hans, annar rithöfundur.
Annað viðtal er að hefjast þremur
borðum frá okkur. Gerður og hinn
rithöfundurinn höfðu líka hist
fyrr um daginn þar sem þau voru
að lesa upp saman fyrir starfs-
menn Hafrannsóknastofnunar.
Lítill heimur? Lítið land? Lítið bók-
menntasamfélag? Eða er kaffið og
andrúmsloftið í Norræna húsinu
bara svona gott?
„Já, já, hún gerir það," segir
Gerður þegar blaðamaður byrjar
á að spyrja hana hinnar klassísku
spurningar hvort tilnefning til ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
skipti máli. Eins og kunnugt er varð
Gerður þess heiðurs aðnjótandi að
fá eina slíka á dögunum fyrir aðra
af þeim tveimur bókum sem hún
sendi frá sér fyrir þessi jól, ljóða-
bókina Höggstað. Hin er barna-
bókin Ballið á Bessastöðum. „Þetta
er fínt ef það á að kynna bókina í
útlöndum en auðvitað er þetta fyrst
og fremst heiður og vekur meiri at-
hygli á bókinni en ella. Já, já, mér
finnst þetta feikigaman."
Tíu milljónir mikið
Gerður sagði í viðtali í bók-
menntaþættinum Kiljunni í Ríkis-
sjónvarpinu eftir að tilkynnt hafði
verið um tilnefningarnar að hún
myndi vilja sjá sérflolck fyrir barna-
bækur innan Islensku bókmennta-
verðlaunanna. „Sá háttur er hafður
á bæði í Svíþjóð og Noregi. Barna-
bækurnar hafa greinilega ekkert í
fullorðinsbækurnar þegar á að fara
að keppa um einhver verðlaun.
Það er alveg fáránlegt að á tuttugu
árum hafi bara tvær barnabæk-
ur verið tilnefndar. Það þarf eng-
inn að segja mér að það hafi ekki
fleiri góðar barnabækur komið út
allan þennan tíma." Aðspurð hvort
henni finnist ekki nægja að hafa Is-
lensku barnabókaverðlaunin sem
veitt hafa verið í ríflega tuttugu
ár segir Gerður það ekki vera það
sama, enda þurfi höfundar sjálf-
ir að senda óbirt handrit sitt í þá
keppni. „Það er mun eðlilegra að
barnabækur fái sérkategóríu rétt
eins og fræði- og fagurbókmennt-
irnar. Útgefendur sendi bækurnar
inn og þannig verði líka vakin at-
hygli á fimm góðum barnabókum
sem þyki skara fram úr."
f sama Kiljuþætti sagði ann-
ar tilnefndur höfundur að hækka
ætti verðlaunaupphæðina veru-
lega, kannski upp í tíu milljón-
ir króna, en hún er núna 750 þús-
und krónur. „Það má alveg hækka
prísinn en mér finnst tíu milljónir
samt of mikið, nema átt hafi verið
við að fimm milljónir færu í fagur-
bókmenntirnar og fimm í fræði-
bækurnar. Það væri ef til vill eng-
in óþarfa gustuk en samt meira en
höfundar fá þegar þeim er úthlut-
að Norrænu bókmenntaverðlaun-
unum," segir Gerður.
Guð, Gunnar á Hlíðarenda og
Súperman
Guð og trú koma svolítið við
sögu í Höggstað, og það sama má
segja um síðustu ljóðabók Gerð-
ar, Launkofa, sem kom út fyrir sjö
árum. Skáldkonan segist vissulega
vera trúuð. „Annars er skrítið að
hægt skuli vera að stigbreyta orð-
ið „trúuð". Annaðhvort trúir maður
eða ekki. Ég trúi og mér finnst gott
að yrkja um Guð. Þess vegna birtist
hann líka í ljóðunum mínum."
Það er líka tenging við íslend-
ingasögurnar í Höggstað, sem og
Gerður Kristný „Eg lief reynt að
komast inn i þennan stigagang en
hann er alltaf læstur svo það er
engin leið að athuga hvort maður
geti dottið niður tröppurnar af
sama myndarbrag og skáldið."
DV-MYND ASGEIl
PS-;
r
MENNING
EG ÞORIMEIRU