Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007
Helgarblað PV
EFTIRRÉTTIR í
DULARGERVI
Hjá mörgum eykst áfengis-
neyslan yfir hátíðarnar, enda
mikið um mannamót. Þótt það
sé vissulega
gaman að fá
sér jólaglöggog
gæða sér á góð-
um jóladrykkj-
um geta þeir
sett sitt mark á
líkamann, þá
helst mittis-
málið.
Arstíða-
bundnir drykk-
ir eins og eggjapúns, jólaglögg
og heitt súkkulaði, eru í raun
eftirréttir í dulargervi. Verstir eru
þeir drykkir sem búnir eru til úr
rjóma, smjöri, mjólk og súkku-
laði með viðbættu áfengi. Ef þú
ákveður að drekka þá, reyndu þá
að hafa tölu á þeim og bættu svo
við öllum eftirréttunum sem þú
innbyrðir yfir hátíðarnar. Fjöld-
inn gæti komið þér á óvart.
ÞRJÚ GÓÐ PARTÍRÁÐ
ISkipuleggðu þig áður en þú
missir þig í freistingarnar -
ákveddu fýrirffam hversu mikið
þú ætlar að drekka.
2Þegar þú ferð í partí skaltu
alltaf byrja á að fá þér óáfeng-
an drykk tíl að svala þorstan-
um. Á meðan á partíinu stend-
ur skaltu svo skipta reglulega úr
áfengum drykkyfir í óáfengan
drykk sem inniheldur fáar kalorí-
ur, eins og sódavatn eða vatn.
3Ef þú veist í hvað stefnir um
kvöldið geturðu verið virki-
lega skipulögð og sparað þér
nokkrar kaloríuryfir daginn. Þú
getur minnkað máltíðir dagsins
örlítið eða sleppt síðdegissnakk-
inu þínu.
4Vertu aðalstuðboltinn á svæð-
inu og dragðu fólk með þér á
dansgólfið. Þú slærð tvær flugur í
einu, skemmtír þér manna mest
og brennir nokkrum kaloríum.
Tóki: bej Guðrún
Erla Gisladóttir fluttist til
Bandaríkjanna meö fjölskyldu
sinni til að hefja fyrirtækjarekstur.
Islenskur bútasaumshönnuður
slær í gegn í Bandaríkjunum.
Guðrún Erla Gísladóttir tók
u-beygju í lífinu fyrir nokkr-
um árum þegar hún fluttist
tíl Minnesota ásamt eig-
inmanni sínum og þrem-
ur börnum og hóf fyrirtækjarekst-
ur. Allt byrjaði þetta þegar Guðrún
stofnaði tvær litlar bútasaumsversl-
anir íslandi, eina á Selfossi og aðra á
Akureyri. í tengslum við verslanirn-
ar fór hún að hanna bútasaumssnið
og skrifaði þau á íslensku til þess að
selja í verslununum sínum. „Þetta
byrjaði nú bara smátt enda var það
markmiðið að hafa það þannig, það
kom einhver inn í búð og spurði um
snið á íslensku og hvort það væri
til svona og svona stykki. Þá fór ég
bara í að hanna það og skrifa eftir
eftirspurn. Þar sem flestallar vörur
til bútasaums, hvort sem það voru
efni, bækur eða snið, voru flutt inn
frá Bandaríkjunum fékk ég oft sölu-
menn þaðan í heimsókn og það var
ein slík heimsókn sem varð kveikj-
an að útbreiðslunni. Sölumaður-
inn spurði mig hvar ég fengi þessi
snið mín og þegar ég sagði að þau
væru bara til á íslensku hvatti hann
mig strax til þess að þýða þau yfir
á ensku, hann skyldi sefia þau fyrir
mig á alþjóðamarkaði. Eg gerði nú
ekkert í þessu í fyrstu, enda hafði ég
í nógu að snúast, en eftir meira suð
frá honum ákvað ég að þýða sjö snið
yfir á ensku og hann fór með þau á
International Quilt Market, heild-
sölusýningu sem er haldin tvisvar á
ári. Ég gerði mér nú ekki grein fyrir
hvað myndi gerast næst, en viðtök-
urnar voru vægast sagt ótrúlegar. Við
vorum flutt út þremur mánuðum
síðar með börn og bú," segir Guðrún
Erla. Eitt þessara fyrstu sjö sniða er
nú búið að vera á topp tíu lista yfir
bestu snið Bandarfkjanna síðastlið-
in þrjú ár og hefur sniðið selst í yfir
fimmtíu þúsund eintökum.
Forréttindi að vinna heima.
Guðrúnu og fjölskyldu líður vel
í Minnesota, eiginmaður hennar,
Þórir Sigmundur Þórisson, leggur
þar stund á meistaranám og börn-
in hafa öll í nógu að snúast enda
stunda þau öll skóla og íþróttir af
kappi. En hvernig ætli gangi að sam-
eina fyrirtækjareksturinn og stór-
fjölskyldulífið?
„Ég vinn heima hjá mér sem eru
þvílík forréttindi því þannig fæ ég
miklu meiri tíma með börnunum
mínum. Það eru að sjálfsögðu kostír
og gallar við að vinna heima, því það
er oft erfiðara að skilja á milli vinn-
unnar og heimilisins," segir Guðrún.
Fjölskyldan byggði sér glæsilegt
framtíðarhús nú fyrir stuttu og þar
hefur Guðrún gott pláss fyrir rekst-
urinn. Guðrún segist reyna að greina
vel á milli vinnu og fjölskyldu. „Auð-
vitað koma tímar þar sem maður
verður að brjóta þær reglur þegar ég
er í undirbúningi fýrir sýningu eða
er komin á tíma með að skila af mér
nýrri efnalínuhönnun. En fjölskyld-
an skilur það og hjálpar oft til við eitt
og annað," segir Guðrún.
íslenskar konur í mekka
bútasaumsins
Guðrún skipulagði saumahelgi
fyrir íslenskar og bandarískar búta-
saumskonur nú á haustdögum og
heppnaðist ferðin afar vel. „Alls
komu tuttugu og sjö frábærar skvís-
ur frá íslandi og nutu helgarinnar á
lúxushóteli, saumuðu, lærðu nýjar
aðferðir, hlógu og skemmtu sér kon-
unglega. Þetta var lengi draumur
hjá mér að gera þetta sem varð loks-
ins að veruleika. Helgin tókst svo vel
að við ætlum að gera þetta að árleg-
um viðburði," segir Guðrún.
Áhugasamar bútasaumskonur á
Islandi geta nálgast snið, bækur og
efni Guðrúnar í versluninni Bót.is
og Quiltbúðinni á Akureyri en báðar
eru þær með netverslanir. Einnig er
Guðrún með allar vörurnar sínar á
heimasíðunni gequiltdesigns.com.
„Ég er líka nýkomin með bloggsíðu,
gudrun.typepad.com, fýrir búta-
saumsbransann þar sem ég gef les-
endum innsýn í hvað ég er að stússa
og vinna að hverju sinni. Þar fá
bútasaumsaðdáendur fréttir af nýj-
um sniðum og efnum áður en þau
koma á markað," segir Guðrún.
Spennandi tímar fram undan
Það er margt spennandi fram
undan hjá Guðrúnu. Hún var að
leggja lokahönd á fimmtu efnalín-
una sína sem hefur bein tengsl til
Islands. „Hún heitir Amma's Gard-
en, eða Garðurinn hennar ömmu,
og er innblásturinn fenginn af villta
valmúanum sem óx um allan garð
hjá ömmu minni sem ég fékk að
tína sem barn, en þetta blóm kall-
ast Icelandic Poppy á ensku. Þessi
lína verður kynnt í vor og kemur í
verslanir í september 2008. Ég kem
til með að ferðast meira við að halda
námskeið og fyrirlestra á komandi
ári en reyni nú samt að bóka mig
ekki of mikið," segir Guðrún. „Við
reynum að njóta lífsins sem fjöl-
skylda á hverjum degi. Það má svo
sannarlega segja að við gerum það,
okkur líður ffábærlega eins og er, ég
get þess vegna farið í vinnuna í nátt-
fötunum og vinn daglega við það
sem mér finnst skemmtilegast að
gera," segir Guðrún jákvæð að lok-
um.
Sloppar - Náttföt
Náttkjólar
NCVÍðPnðl1 Austurveri • Háaleltisbraut 68
“ * Sítnl 553 3305
ÁSTIBLÍÐU 0G STRÍÐU
Hjá Máli og menningu er
komin út bókin Ást í blíðu og
stríðu - sálfræðibók um sam-
bönd. í bókinn er fjallað ýtar-
lega um dýrmæti ástarinnar
sem sögð er sterkasta tilfinning
sem flest okkar upplifa og jafn-
framt sú tilfinning sem ræður
mestu um líf okka og líðan að
sögn Álfheiðar Steinþórsdótt-
ur og Guðfinnu Eydal, höfunda
bókarinnar. Tilgangur bókar-
innar er að hjálpa fólki við að
efla hamingjuna og takast á við
erfiðleikana sem geta fýlgt ást-
inni og ástarsorginni.
1 bókinn erfjallað um að ást-
in sé grundvöllur sambands-
ins en jafnvel þótt sá grunnur
virðist traustur er margt sem
gott er að huga að. Hvernig við
pössum saman. Hvað það er
sem gerir samband okkar gott
og traust. Hvernig við tölum
sama. Af hverju við rífumst og
hvað getum við gert til að koma
í veg fyrir það.
Einnig er fjallað (tarlega um
ÁST
í blíðu og stríðu
Siifraeöibók um sambönd
Álfheiður Sleinþórsdóttir
Guðfinna Eydal
erfið sambönd og sambúðar-
vanda, framhjáhöld og afleiðing-
ar þeirra, skilnaði og vandamála
sem þeim getur fylgt, stjúpfjöl-
skyldur og samskipti við fýrri
maka, en einnig um missi maka
og sálarkreppu sem honum fylg-
ir.
Höfundar bókarinnar, sál-
fræðingarnir Álfheiður Stein-
þórsdóttir og Guðfmna Eydal,
hafa ára langa reynslu af að að-
stoða fólk við að takast á við
vandamál sem upp koma í sam-
skiptum og sambúð og hafa sent
frá sér margar bækur um sálfræði
og margbreytileika lífsins.
Ást í biíðu og striðu Eftir
Álfheiði Steinþórsdóttur og
Guðfinnu Eydal.