Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 Sport DV 4 HEIMSFRÆGMR Liö íslands á snjóbretti hampaði sigri á Jib-battle-snjóbrettamótinu í Ósló sem haldið var um síðustu helgi. Löndin sem kepptu voru Noregur, Sviþjóð, Danmörk, Finnland, Holland, England, Austurríki auk íslands. Eiríkur Helgason var valinn efnilegasti brettakappi mótsins en hann fékk líka verðlaun fyrir flottasta „trikkið“. íslenska liðið hefur tvisvar áður tekið þátt í mótinu. í fyrsta skiptið lentu þeir í þriðja sæti, síðan í öðru og loks núna í fyrsta sæti. í liðinu eru Qórir ungir Akureyringar Guðlaugur Hólm Guðmundsson, Eiríkur Helgason, Viktor Þór Hjartarson og Halldór Helgason sem er aðeins 16 ára: BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON blaðamadur skrifar: benni@dv.is ísland hefur ekki hrósað mörg- um sigrum á erlendri grundu í bolta- íþróttum. Hins vegar gengur fjórum íslendingum allt í haginn í snjóbretta- heiminum og unnu um síðustu helgi Jib-battle snjóbrettamót sem haldið er í Noregi á hverju ári. Þetta var í þriðja sinn sem ísland tekur þátt í þessu móti. I fyrsta skiptið lentu þeir í þriðja sæti, síðan í öðru og núna var mótið tekið með stæl og hampað titlinum. Liðsmennirnir eru allir ff á Akureyri ' og eiga það sameiginlegt að þeir eru allir við nám í brettaframhaldsskóla í Malung í Svíþjóð. Guðlaugur Hólm Guðmundsson, Eiríkur Helgason og Viktor Þór Hjartarson eru allir á síðasta ári í skólanum en hinn 16 ára Halldór Helgason, sem var jafnframt yngsti keppandinn á mótinu, er á sínu fyrsta ári. Allir fá þeir styrki frá stórum brettafyrirtækjum og er Eiríkur Helgason kominn í byrjendalið Rome-fyrirtækisins sem er talið vera lokaskrefið áður en atvinnumannssamningur er undirrit- aður. • Þeir félagar eru brautryðjendur í þeim sldlningi að enginn íslend- ingur hefur komist svona langt í brettaheiminum. Eiríkur er núna á forsíðu eins stærsta snjóbrettablaðs í heimi og hefur skrifað undir marga samninga í kjölfarið. Sama má segja um Guðlaug og Viktor. Halldór hefur einnigfengið mikla athygli þrátt fyrir að hann sé bara nýkominn út til strákanna og er hann kominn með styrk frá DC- brettafyrirtækinu en einnig styrkja þrjú önnur brettafyrirtæki hann. Guðlaugur og Eiríkur verða með klippur í snjóbrettamynd sem sýnir 36 bestu brettamenn í heimi og samið var um að þeir yrðu með fyrstu part- ana sem er mikill heiður. ■ Alls ekki hættuleg íþrótt „Við byrjuðum allir á hjólabretti og svo kom snjóbretti meira og meira inn í. Síðan gekk það eiginlega betur. Við vorum á skíðum í gamla daga en snjóbretti urðu síðan mikil tíska og við bytjuðum að taka snjóbretti af mikilli alvöru," segir Guðlaugur þegar hann rifjar upp af hverju snjóbretti hefði orðið fyrir valinu. Eiríkur er fremsti snjóbrettamaður íslands og sá sem hefur komist lengst. Hann er kominn í byrjendalið Rome-fyrirtækisins sem er talið vera lokaskrefið áður en atvinnumannasamningur er undir- v ritaður. „Snjóbrettí lítur miklu betur út en að vera á skíðum, þá er ég ekki að meina að það sé eitthvað asnalegt * að vera á skíðum. Það límr bara skemmtílegar út að vera á snjóbretti. Ég sá þetta fyrst í sjónvarpinu og lang- aði að prófa. Vinir mínir voru síðan búnir að kaupa bretti þannig að ég mátti ekki vera minni maður." Aðspurðir hvort asnjóbrettí sé persónulega völdu og það er alltaf gott að fá viðurkenningu. Þeir hafa mikið vit á því sem þefr eru að gera og eru mjög innmúraðir í snjóbrettaíþróttina og þetta hleypir egóinu aðeins upp. Það eru stór nöfri á þessum lista en við erum samt á bytjuninni miðað við hin nöfnin," segir Guðlaugur. Eiríkur hefur verið á forsíðum tveggja stórra blaða. Annað var sænskt en hitt er sjálft Snowboard Magazine sem er selt um víða veröld, „Þetta vídeó sem við erum að fara verður eitthvað öðruvísi. Vanalega er hver snjóbrettamaður með einhvem fjögurra mínútna part en núna verður úrval úr öllum heiminum og sýnt smá frá öllum. Sýna allar hliðamar á sportínu. Þannig að ég og Guðlaugur verðum í handriðapartinum. Við er- um mjög ánægðir með að fá að vera með íþessu vídeói." Þeir félagar hafa staðið sig það vel að eftir hefur verið tekið. Guðlaugur er kominn með styrktarsamning við fjölmörg fyrirtæki. Betalian gefur honum bretti, Vans lætur hann fá skó og útifatnað, Dragon snjógleraugu og svo mætti lengi telja. Eiríkur fær snjóbretti frá Rome, hann fær Oakley- gleraugu og -föt, Frontline-föt og Masterpiece-húfur. „Við höfum farið á fjölmörg mót í gegnum tíðina. Við vorum á móti í Stokkhólmi sem var svipað mót nema dýrt. Það er frítt í skólan og við fáum allar bækur frítt. Eina sem við þurfum að borga er húsaleigan þannig að þetta er mjög fínt. Malung er lítill bær rétt hjá skíða- svæðinu, þess vegna er skólinn þar. Okkur Ukar mjög vel hérna, við erum þrír hérna á fjórða ári og síðan er Halldór litli á fyrsta ári þannig að við höfum það gott," segir Guðlaugur. „Við vorum búnir að vera eitt ár í VMA og þegar við sáum að við gátum verið á snjóbretti tvo daga í viku byrjaði boltinn að rúlla. Hér er miklu betri aðstaða en heima á íslandi. Aðstaðan heima er mjög léleg. Það er reyndar aðeins að skána, búið að kaupa nokkur handrið og allt í vinnslu," bætír Eiríkur við. Verða í mynd með 36 bestu í heimi Guðlaugur og Eiríkur verða með klippur í snjóbrettamynd sem sýnir 36 bestu brettamenn í heimi og samið var um að þeir yrðu með fyrstu partana. „Við vorum, ég, Eiríkur og Halldór, í mynd í fyrra sem fór um alla Evrópu," segir Guðlaugur. „Tveir heimsfrægir snjóbrettamenn héðan frá Svíþjóð eru að gera mynd í vetur sem verður gefrn út á netinu og hún mun fá góða kynningu. Þeir völdu mig í þessa mynd sem er mikill heiður. Það eru einhverjir 30 á Ustanum sem þeir Sigurvegarar (slensku strákarnir með bikarinn. Frá vinstri: Eiríkur, Halldór og Guðlaugur. Það vantar Viktór Þór og Ole Scheie á myndina. Þeirfimm skipa lið (slands. ekki hættuleg íþrótt segir Guðlaugur: „Þetta er alltaf eitthvað hættulegt en ef fóUc rennir sér í brekkum er þetta ekki svo mjög hættulegt. Þá er þetta svipað og skíði en ef fóUc bætir við stökkum og handriðum og öðru slílcu inn í verður þetta miklu hættulegra." „Þetta er aUs ekki hættuleg íþrótt. Þetta er eins hættulegt og maður lætur þetta Uta út fyrir að vera," segir Eiríkur. Strákamir báru sigurorð af Noregi eftir jafiia og tvísýna keppni í Jib- battle. Guðlaugur segir að tílfinningin hafl verið mögnuð þegar úrsUtin voru kunngjörð á mótinu. „Þetta er mót sem Norðmenn halda og bjóða inn löndum frá Evrópu. í ár buðu þau 7 löndum en svo voru Norðmenn með tvö Uð. Það eru fimm í liði og síðan er dregið hverjir lenda á móti hverjum. Tvö Uð berjast síðan í 20 mínútur um hverjir eru með flottari tilþrif og svo er valið hvaða Uð stóð sig betur og þeir halda því áffam. Við mættum fyrst Noregi, liði þeirra númer 2, unnum Hollendinga og síðan mættum við aðaUiði Noregs í úrslitum. Tilfiningin var góð þegar úrsUtin voru lesin upp. Við lentum í þriðja sæti fyrsta árið svo annað árið urðum við í öðru sætí þannig að við ætluðum okkur að sigra á þessu mótí." Eiríkur bætir við að þar sem þessi keppni hafi verið keppni á handriðum hafi þeir átt góða möguleika. „Við höfum verið mildð að æfa okkur að renna okkur á handriðum. Þau voru það eina sem við höfðum á íslandi, það voru handrið á Akureyri sem við notuðum mikið. Það voru engir pallar í fjallinu þannig að við fórum þá leiðina. En við erum byrjaðir að stökkva meira en við gerðum eftir að við komum hingað út." Eirflcurvarvalinnbestimaðurmóts- ins og áttí einnig flottustu tilþrifin. Hann fór annars „backside 360 5- 0" þar sem handriðið hallar og hins vegar „frontflip í tailslide 270 out" sem eins og menn geta rétt ímyndað sér er gríðarlega erfitt. Þrír bóklegir og tveir upp í fjöllum Þeir félagar eru í framhaldsskóla sem er í Malung í Svíþjóð. „Það voru tveir íslendingar í þessum skóla fyrir nolckrum árum. Þeir voru stórir gæjar í snjóbrettaíþróttinni þegar við vorum litlir að byrja. Þeir sögðu okkur frá þessum skóla og við bara ákváðum að drífa okkur. Snjóbrettaiðkun á íslandi var ekki svo hátt skrifuð þá en hefur aðeins skánað núna. Þetta eru þrír bóklegir dagar og tveir dagar upp í fjalli með tveimur kennurum og þjálfurum. En svo eru aðrar æfingar, hlaup og lyftingar og styrktaræfingar. Þetta er aÚs ekki svo H

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.