Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Qupperneq 47
DV Helgarblað FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 45 // Rauðió // Það gilda sömu „reglur" um vín með jólamatnum og meðlæti. Fáðu þér það sem þú vilt og .áRfe. þér finnst passa. Nokkur viðmið þó. Hangi- -- j kjöt fer illa með allt vín. .. & ' Gewurztraminer eða Pinot i Gris frá Alsace er líklega ÆA vænlegast eða þurrt (0 sérrí, Tio Pepe (2.140 M Jgjji kr). Sjálfur mæli ég ;■ :/ / með bjór eða malti JJf fl| og appelsini. Ham- rf/J borgarhryggur er J|i» líka erfiður en þar !SÍ ffi kemur bæði rautt Jxfl og hvitt til greina. jH JmI PÁLMI JÓNASSON vínsérfrædingur DV Sjálfur hef ég notað Shiraz frá Ástralíu eða gott Rioja-vín. Kalkúnn býður einnig upp á ótal möguleika í hvítu og rauðu. I öllum tilfellum er það með- lætið sem skiptir máli. Það er oft bæði súrt og sætt sem gerir víninu lítinn greiða. Þegar kemur að villibráð og öðru úrvalskjöti er komið að því besta í skápnum eða því fínasta sem þú hefur I; efni á. Gæðakjöt kallar á gæða- if; vín. Stóru vínin frá Bordeaux og f Búrgúnd koma fyrst upp í hug- P ann. Sjálfur er ég mikill aðdáandi ítalskra vína en nýjaheimsboltar úr Cabernet og Shiraz koma einnig sterklega til greina. Því betra - því betra! Marchese Antinori Chianti Classico Riserva 2003 Antinori-fjölskyldan hefur búið í Chianti frá 13 öld og Giovanni di Piero Antinori var þar skráður víngerðar- maður 1385. Afkomandi hans og nafni, markgreifinn Piero Antinori, hefur stýrt fyrirtækinu afar farsællega undanfarna áratugi. Fiann er stundum kallaður faðir OfurToskana-vínanna en hann settiTignanelloá markað 1971, án Chianti Classico-merkingar. Antinori er stærsta víngerðarhús italíu í einkaeigu og framleiðir 18 milljónir flaskna árlega. Marchese er úr Sangiovese (90%) og Cabernet Sauvignon (10%). Einstaklega góð angan af súkkulaði, leðri, dökkum berjum, kaffi, plómum og sveskjum. Súkkulaði, sveskjur, döðlur og kirsuber í munni. Bragðgott vín sem lifir lengi í munni. Afbragðs gott vín á afar góðu verði. ???!! 2.090 krónur. Fontodi Chianti Classico 2004 Fontodi kemur úr latínu og merkir gosbrunnur Óðins en á þessum slóðum hefur verið vínrækt allt frá dögum Rómaveldis. Manetti-fjölskyldan framleiðir margvíslegan varning en sonurinn Giovani Manetti sér um vínræktina sem er skemmtileg blanda hefða og nýjustu tækni. Ekrur fjölskyldunnar eru í Gullnu skálinni (Conca d 'Oro) í 400 metra hæð yfir sjávarmáli, suður af bænum Panzano ÍToskaníu. Vínið batnaði við öndun og myndi líklega batna við nokkur misseri í kjallaran- um. Lagað úr Sangiovese-þrúgunni og látið liggja í frönskum eikartunnum í 1 ár. Blómaangan í nefi með lakkrís og bláum Opal. Rúsínur, kirsuber, eik og bóndabær í munni með kröftugu tanníni og eik. Eftirbragðið langt og sætt. Verið er að taka 2005-árganginn í verslanir og hann 9999 fær ekki síðri dónia. Góður Itali á ágætu verði. 1.890 krónur. d Arenberg Footbolt Shiraz 2004 Það eru ekki mörg fjölskyldufyrirtæki í víngerð en þetta er sannarlega eitt þeirra. Bindindismaðurinn Joseph Osborn keypti fyrirækið 1912 en hann var framkvæmdastjóri vínfyrirtækisins Thomas Hardy & Sons. Sonur hans tók við rekstrinum 1943 og sonarsonurinn, Francis d'Arenberg hætti í skóla 16 ára til að hjálpa sjúkum föður sínum. Hann tók við rekstrinum 1957 og innleiddi rauða strikið sem hefur einkénnt flöskurnar æ síðan. Sonur hans, Chester d Arenberg Osborn, varð aðalvíngerðar- maður 1984 og þeir feðgar stýra enn rekstrinum. Vínið heitir Footbolt eftir veðhlaupahestinum sem gerði stofnandanum kleift að kaupa víngerðina. Angan af dökku súkkulaði, dökkum berjum, rúsínum, kryddi og kirsuberjum. Bragð af dökkum berjum, pipar, leðri, tóbaki, mold, rúsínum, kaffi og villtum kryddjurtum. Lokað í upphafi en tók hressilega við sér við öndun. Batnar m mm örugglega enn frekar við geymslu. 1.790 krónur. Jón Rafnsson IVIATGÆÐIIVGURIIVIV Trrfp /14 / / /7/—■ * # / / / ■ t™F7 „Ég ákvað nú að vera ekki með neina eldhússtæla. Það eru allir bún- ir að ákveða hvað þeir ætla að hafa í matinn á næstunni svo ég er með noklcrar salatuppskriftir. Þetta eru salöt sem passa rosalega vel með köldu kjötí og ég geri þau alltaf um jólin, er reyndar mjög oft búinn að búa þetta tíl á Þorláksmessu," segir Jón Rafnsson, matgæðingur vikunn- ar. Aðspurður segir Jón þetta svo sem enga hefð á sínu heimili. „En okkur finnst þetta samt ómissandi svo það má kannski fara að kalla þetta hefð. Þessi salöt passa, eins og ég sagði, sérlega vel með köldu kjötí, til dæmis hamborgarhrygg eða óreyktu svína- kjötí, lambi, kalkún og rjúpum." Rauðrófu-tsatziki • 4-6 sneiðar (eða meira ef vill) rauðrófur (í krukkum), saxaðar. • 100gfetaosturogégnotagjarnan feta í kryddlegi, finnst það gefa gott bragð. • ’A rauðlaukur, fínt saxaður • 2dl hreinjógúrt • Salt og pipar eftir smekk (ég sleppi því oftast) • Allt maukað gróflega saman. Piparrótarsalat • 1/4 hvítkáls- (eða rauðkáls-) haus • 1 blaðlaukur • 1 miðlungsstór krukka rauðrófur (má sleppa) • 1 grænt epli Allt skorið fi'nt niður og blandað saman. • Um það bil 1 dós sýrður rjómi • 2-4 msk. piparrótarmauk í pökkum • 2-3 msk. dijon-sinnep • 1 tsk.Worchestershire-sósa • 1 tsk. HP-sósa • Smá majones • Saltogpipar-égsleppioftsaltiog pipar. Öllu blandað saman og þetta geymist í viku til tíu daga í kæli. Þetta salat er gott með hamborg- arhrygg og öðru reyktu kjötí. Ég mæli með þessu salati með reyktri klaustursbleikju og grófu brauði og það stendur nú bara alveg sem foréttur ef út í það er farið. Læt hér einnig fylgja með síldar- salatuppskrift sem ég sá einhvern tíma í Gestgjafanum og hef gert hana í nokkur ár. Þetta er algjörlega ómiss- andi á milli jóla og nýárs og svo ég tali nú ekki um áramótin. Karrísíld • Um það bil 6 síldarflök eða kryddsíld í bitum (ég nota kryddsíldina meira, finnst hún gefa skemmtilegt bragð) • Um það bil 1 laukur, ekki stór • 3-5 msk. sætt mango chutney • 1 msk. smátt saxaður engifer • 2 msk. (eða meira eftir smekk) milt karrí-paste • Matarolía, ekki mikið, kannski 1 msk. • Efvillsmáchilidufteðasmátt saxaður ferskur chillipipar öllu blandað saman í skál og best þegar það er búið að vera í ísskáp í nokkra tíma. Gott með rúgbrauði og smjöri. „Ég œtla að skora á vin minn, hann Leone Tinga- nelli, söngvara og lagasmið, að koma ncest með einhverja flotta italska uppskrift. Það er, efhann getur gefið sér tíma frá önnum vegna kynning- ar á nýju plötunni sinni sem var að koma út núna um dag- inn. Hann er algjör snillingur í pastaréttum, en látum hann ráða." i. mmanmsiö Humarhúsið • Amtmannstíg 1 • 101 ReykjavíJt • Simi: 561 3303 • humarhusid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.