Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007
Helgarblaö PV
Hohoho
eðahahaha
Sjötugur jólasveinn í stór-
markaði í Caims í Ástralíu var
rekinn úr starfi vegna kynferðis-
legrar áreitni gagnvart kvenkyns
viðskiptavinum. Jólasveinn-
inn John Oakes hefur tíu ára
reynslu í jólasveinastarfinu og
kaliaði að jólasveinasið „ho ho
ho". En það var meira en stjórn-
endur stórmarkaðarins gátu
þolað honum, því það er hægt
að túlka það eins og bandarískt
slangur og þá útieggst það „hóra
hóra hóra". Hann átti að hrópa
„ha ha ha" sögðu stjómendum-
ir. Oakes hefur áður verið rekinn
úr starfi, en þá fyrir að syngja
hið þekkta jólalag „Jingle Bells".
„Þau reyna einfaldlega að eyði-
leggja jólastemninguna," sagði
Oakes svekktur.
Bob Berdella var einn af al-
ræmdustu morðingjum Kansas-
borgar í Missouri í Bandaríkjun-
um. Hann átti verslun sem hét
Bob’s Bazarre Baazaar, og versl-
unin sérhæfði sig í munum sem
tengdust sértrúnaði af dökkum
toga. Nágrannar hans kunnu vel
við hann, fannst hann örlítið sér á
parti, eins og stundum er sagt, en
hann tók þátt í og skipulagði ná-
grannavaktir gegn glæpum og virt-
ist í einu og öllu fyrirmyndarborg-
ari. En það átti eftir að breytast og
nágrannarnir áttu eftir að sjá að
ekki er allt sem sýnist. Það sem
gerist á bak við luktar dyr gefur oft
annan vitnisburð en sú ásjóna sem
fólk kýs að sýna opinberlega.
Með hundaól
2. apríl 1988 fann nágranni
Bobs ungan mann á verönd heim-
ilis síns. Ungi maðurinn var nak-
inn með öllu ef undan er skilin
hundaól um hálsinn. Nágranninn
varð felmtri sleginn þegar hann
heyrði frásögn unga mannsins, en
hann var puttalingur og hafði ver-
ið í haldi Bobs í fleiri daga og sagði
hann frá ótrúlegum kynferðisleg-
um pyntingum sem hann hafði
þurft að þola af hendi Bobs. í kjöl-
farið handtók lögreglan Berdella
Bob hélt dagbók og í
hana skráði hann smá-
atriði og áhrifþeirra
pyntinga sem hann
beitti fórnarlömb sín.
voru kennsl á höfðu verið myrtir.
Hinir höfðu tekið þátt í kvalafull-
um órum Bobs af fúsum og frjáls-
um vilja.
Bob Berdella hafði sett sérstak-
ar húsreglur sem fórnarlömum
hans var skylt að fylgja. Frávik frá
reglunum kostuðu refsingu sem
gat verið barsmíðar eða rafmagns-
stuð í viðkvæma líkamshluta.
Bob hélt dagbók og í hana skráði
hann smáatriði og áhrif þeirra
pyntinga sem hann beitti fórnar-
lömb sín. Dagbókin leiðir líkur
að því að í sérstöku uppáhaldi hjá
honum hafi verið að sprauta fórn-
arlömb sín með lyfjum, bleikiefni
eða öðrum ætiefnum í augu fórn-
arlambanna eða háls. Því fylgdi
síðan kynferðisleg misnotkun.
Dauði í fangelsi
Eftir þriggja daga yfirheyrslur
í desember 1988 játaði Bob Berd-
ella sig sekan um sex morð og
Hérerróog
hérerfriður
Hálfsextugur Skoti lenti í
ff ekar vandræðaiegri upplif-
un í vikunni. Flestir geta verið
sammála um að á stundum get-
ur verið gott að njóta friðar og
næðis á náðhúsi. Flestir eru þó
þeirrar skoðunar að ekki sé vert
að dvelja þar lengur en nauðsyn
krefur. Kennarinn David Leggat
lenti í því, í næstum bókstaflegri
merldngu, að veija fjórum sólar-
hringum á dósinni. Ástæðan var
sú að húnninn að innanverðu
datt af og hann komst hvorki
lönd né strönd. Hann drakk vatn
úr krananum og þegar kólnaði
yljaði hann sér á fótunum með
volgu vatni í vaskinum. Bjarg-
vættur hans var ræstingakona
sem uppgötvaði hann á ijórða
degi.
og við leit á heimili hans fundust
hátt í fjögur hundruð ljósmynd-
ir sem sýndu hvernig hann hafði
pyntað fórnarlömb sín.
Aukþess fundust áhöld til pynt-
inga, bókmenntir sem tengdust
sértrúarsöfnuðum, trúarlegir kufl-
ar og í garðinum fundust hauskúp-
ur og mannabein grafin í jörð.
Af frjálsum vilja
og fórnarlömb
Tveimur dögum eftir hand-
tökuna taldi lögreglan sig hafa
nægjanleg sönnunargögn gegn
Berdella. Við nánari athugun á
ljósmyndum þeim sem fund-
ust á heimili hans komst lögregl-
an að því að sex þeirra tuttugu og
þriggja ungu manna sem borin
var dæmdur til lífstíðarfangelsis.
Játningum hans fylgdu lýsingar
á því sem hann hafði gert við
fórnarlömb sín. Fjölmiðlar reyndu
að tengja glæpina við ímynduð
samtök djöfiadýrkenda sem áttu
að teygja anga sína um öll Banda-
ríkin, en þrátt fyrir viðtöl við á
sjötta hundrað manns fundust
engin slík tengsi.
Berdella lést úr hjartaslagi í
fangelsi árið 1992, en skömmu
áður hafði hann í bréfi sakað fang-
elsisyfirvöld um að meina honum
að taka þau hjartalyf sem hann
þurfti. Dauði hans var aldrei rann-
sakaður.
Gamaldags
ogoffeitur
Að mati spænskra barna þarf
jólasveinninn að fara í megr-
un. Það er greinilegt að böm
á Spáni em með á nótunum í
þeirri umræðu um offitu sem
nú tröllríður Evrópu. Affjögur
þúsund bömum á aldrinum
ijögurra til tólf ára töldu fimm-
tíu og þrjú prósent að Sveinki
væri of feitur og þyrfti að fara
í megmn eða fara að æfa í lík-
amsræktarstöð. Börnin hafa líka
ákveðna skoðun á samgöngu-
tækinu sem hann notar til að
koma gjöfum til barna og sögðu
sleðann vera úreltan og mæltust
tii þess að hann fengi sér fjór-
hjóladrifið farartæki eða mót-
orhjól. Flest bamanna vom þó
þeirrar skoðunar að ekki skyldi
breyta búningnum, hann skyldi
áff am vera rauður.
Þúsund þakkirog gleðileg jól. Svona hljóðuðu skilaboðin sem skinkuþjófar
í Sydney í Ástralíu skildu eftir á ránsstað. Þrátt fyrir þessi hátíðlegu skilaboð
er eigandi skinkunnar ekki í hátíðarskapi því þjófarnir höfðu á brott með
sér átján tonn af jólaskinku. Eigandinn hefur lofað þeim verðlaunum sem
leitt geta til handtöku þjófanna, en verðmæti skinkunnar sem stolið var er
tæpar fimm milljónir íslenskra króna.
Bob Berdella var aö mati nágranna fyrirmyndarnáungi þótt hann væri kannski
örlitiö sérvitur. En nágrannarnir vissu ekki aö Bob var ekki allur þar sem hann
var séður. Hann átti sér dökka hlið sem opinberaðist innan veggja heimilis hans.
Jose Luis Calva var aðeins tvo mánuði á bak við lás og slá
Allt bendir til þess að Jose Luis Calva hafi
framið sjálfsmorð í klefa sínum í Mexíkó-borg.
Iiann var ákærður fyrir morð á kærustu sinni
og einnig fyrir að hafa neytt hennar. Að siign
yfirvalda bendir allt til þess að um sjálfsmorð
hafi verið að ræða, en málið verði engu að síður
rannsakað til hlítar. Jose Luis notaði belti sitt
við sjálfsmorðið.
Lögreglan handtók )ose Luis 8. október
vegna gruns um að hann hefði orðið kærustu
sinni, Álejöndru Geleana, að bana. í íbúð hans
fann lögreglan ýmsa líkamshluta Alejöndru
og uppkast að handriti sem bar titilinn „Eðli
mannætu". Lögreglan tengdi )ose Luis við fleiri
morð og eftir að hafa rannsakað íbúð hans og
fundið líkamsleifar Alejöndru rannsakaði hún
tengsl við morðiö ó fyrrverandi kærustu Joses
árið 2004. Eins telur lögreglan að hann tengist
morði á vændiskonu sem fannst í plastpoka fyrr
á árinu.
Áður en iose Luis framdi sjálfsmorð hafði
hann ítrekað neitað að hafa neytt líkamsleifa
kærustu sinnar. Ilann sagði að hann hefði or-
sakaö dauöa hennar í kjölfar heiftarlegs rifrildis
og þau hefðu bæöi verið í annarlegu ástandi
vegna neyslu.
Lögreglan i'ann búk Alejöndru í skáp í íbúð-
inni og einum íótlegg hafði )ose pakkað í plast
og stungið í kæliskápinn. Ýnris bein fundust í
nestisboxi og aðrir líkamshlutar fundust hálf-
steiktir á pönnu í eldhúsinu. Jose Luis Calva
útskýrði það á þann veg að hann hefði úrbeinað
líkamsleifarnar og steikt svo hann gæti fóðrað
hunda með þeim og með þeim hætti losnað við
líkiö.
Jose Luis Calva Lögreglan telur að hann hafi tengst
fleiri morðum.
Jp 11 íf%' t'-4- - . i 'ii Wm
’ 'é;-'-. ■ v'» - " ’ ? Kl
m — t ’ EH íS m tjfit m. ■ . .■■ 11
£ ’ m ; f
:• / p :- ’ • /-:
f' *:'.í ,!
iH w