Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Síða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2007, Síða 70
70 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER2007 Síðast en ekki slst DV VIKUNNAR Frayja Haraldsdóttir er vel að því komin að fá fullt hús stjarna í þessari viku. Freyja hefur vakið mikla athygli fyrir baráttuþrek og jákvætt hugarfar sem hefur skilað henni ótrúlega langt. Freyja var valin kona ársins af tímaritinu Nýju lífi og var sannarlega vel að þvi komin. Freyja segir einstaka sögu sina á einlægan hátt í bókinni Postulin sem kom út fyrr (haust. ***★ Björgunarsvaitamenn landsins fá þrjár stjörnur i þessari viku frá DV fyrir fórnfúst og ótrúlega óeigingjarnt starf. Óveður hefur geisað í þessari viku og fólk komist í hann krappan vfða. Björgunarsveitarmenn hafa hins vegar verið tilbúnir til aðstoðar, nótt sem dag, og bjargað fólki í ógöngum auk þess sem þeir hafa sinnt mörg hundruð útköllum vegna eignatjóns. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fær tvær stjörnur í þessari viku fyrir að taka vel á framkomu bandarískra landamæra- varða gagnvart Erlu Ósk Arnardóttur Lilliendahl. Erla Ósk var meðhöndluð eins og stórglæpamaður við komuna til NewYorkog hefur Ingibjörg Sólrún lýst því yfir að slík framkoma verði ekki liðin. Hún ætlar að fara fram á formlega afsökunarbeiðni frá Bandarfkjastjórn. Það erjákvæð þróun að íslenskir stjórnmálamenn standi (lappirnar gagnvart Bandaríkjastjórn. Moniqua Martin, körfuknattleiks- kona úr KR, fær stjörnu í þessari viku. Martin skoraði sextíu og fimm stig ( leik gegn Keflavlk á miðvikudags- kvöld. Með því setti hún glæsilegt met, þar sem enginn leikmaður hefur skorað eins mörg stig í leik í efstu deild kvenna. Martin hefur farið fyrir liði KR sem er nýliði í deildinni og situr á toppi deildarinnar ásamt Keflavik. ALGJÖRJÓLASVEINN Björgvin Halldórsson vann enn einn stórsigurinn á söngferli sínum þegar hann fyllti Laugardalshöllina í þrígang á ár- legum jólatónleikum sínum nú fyrir stuttu. Björgvin segir tón- leikana bara eiga eftir að verða betri og betri og að nýir kraftar muni bætist við hópinn á hverju ári. Erlendir sem innlendir. Hver er maðurinn? „Björgvin Halldórsson, tónlistarmað- ur frá Hafnarfirði." Hvað drífur þig áfram? „Lífið, fjölskyldan, vinirnir og tónlist- in." Hver eru þín áhugamál? „Þau eru fjölmörg. Þau helstu eru tón- list, ferðaíög og kvikmyndir og ekki má gleyma hljóðfærasöfnun." Af hverju ert þú stoltastur? „Börnunum mínum og fjöslkyldu." Hefur þú búið erlendis? „Já, ég bjó um tveggja ára skeið í Eng- landi. Það var skemmtilegt." Uppáhaldsstaður? „Erlendis er það ítalía og á íslandi er það hugsanlega þar sem ég er hverju sinni." Besti matur? „Italskur kemur mjög sterkur inn. Annars er ég líka veikur fyrir ind- verskum mat og alls konar „fusion"- mat þar sem áhrif frá mörgum heims- hlutum renna saman." Neyðarlegasta atvikið sem þú hefur lent í á ferlinum? „Ætli það sé ekki þegar ég datt fram af sviðinu á sveitaballi fyrir austan. Við vorum í svaka sveiflu og ég missteig mig og datt um snúruflækju og lenti ofan á borði hjá nærsitjandi gestum. Ég stóð reyndar upp og kláraði lagið á gólfinu." Hvernig var tilfinningin að fylla Laugardalshöllina í þrígang? „Það var ógleymanleg tilfinning. Þar er erfitt að útskýra þá strauma sem streymdu frá áhorfendum upp á svið til okkar flytjendanna. Þessa tilfinn- ingu skilja þeir sem standa á sviði að atvinnu. Við erum öll svo þakklát fyrir þessar frábæru móttökur. Góða skap- ið í gestum mínum var það sem fyllti bikarinn." Verður þú betri með árunum? „Ég er alveg klár á því að maður verð- ur betri með árunum. Núna er maður búinn að læra tökin á þessu en er enn að læra. Maður er alltaf að læra." Megum við búast við jólatón- leikum á hverju ári? „Það er á hreinu. Við gáfum það út á fyrstu auglýsingunum að þessir „JÓLAGESTIR" verða árlegir tónleik- ar. Þeir eiga bara eftir að verða betri og betri og nýir kraftar bætast við hópirin sem og ný lög. Erlend sem innlend. Við eigum líka eftir að brydda upp á ýmsum nýjungum sem eiga eftir að vekja athygli og ánægju." Ert þú mikið jólabarn? „Ég er algjör jólasveinn, ef þú veist hvað ég meina. Jólin eru góð hátíð í skammdeginu." Franz ásamt Gospelkór Reykjavíkur. Þetta er framhald af Jólagestaplö't- unum mínum sem.koma nú út allar þrjár með aukalögum í hátíðarbún- ingi., en þessar plötur hafa ekki verið til lengi. Þar er að finna mörg af uppá- haldsjólalögum landans." Er þig ekkert farið að lengja eftir að börnin þín geri þig að afa? Hvað borðar þú í jólamatinn? „Kalkún, hangiket og búðinga." Hvað er fram undan? „Nú er efst á listanum að kynna nýju jólaplötuna sem heitir Jólagestir 4. Þar koma margir flytjendur fram ásamt mér. Þeir eru meðal annars Garðar Thor Cortes, Svala dóttir min, Edgar Smári, Stefán Hilmars, Sigga Bein- teins, Eyjólfur Kristjánsson, Björgvin „Ég á þrjú börn og er nú þegar orð- inn afi. Elsti sonur minn Sigurður Þór gerði mig að afa á undan Svölu og Krumma. Afastúlkan heitir Þór- unn Lea." Hver er draumurinn? „Vakna hress á morgun við góða heilsu og reyna að gefa betur af mér og verða betri maður." SANDKORN ■ Erpur Eyvindarson fór í gang með nýjan þátt á dögunum, Þrist- inn sem er sýndur á Sirkus. Eins og eflaust margir vita fór Geir Ól- afsson, einn viðmælenda Iirpsíþætt- inum, fram á að hans við- talyrðitekið úrsýningum vegna óvið- eigandi myndbrota, sem voru birt með viðtalinu. Erpur og Geir deildu svo um málið í íslandi í dag og úr varð eitt besta sjón- varpsefni sem sést hefur lengi. Erpur hefiir ávallt verið duglegur við að stuða fólk sem sjónvarps- maður, en margir muna eflaust eftirþvíþegarPállArason reður- gjafi rauk út úr viðtali hjá honum þegar Erpur stjómaði þættinum fslenskri kjötsúpu. Einnig fékk formaður íslenskra þjóðemis- sinna sig fullsaddan á spuming- um rapparans og rauk út, eða fýrst inn í kústaskáp og svo út, með orðunum „Hvar kemst mað- ur út úr þessum andskota?" ■ Birgitta Birgisdóttir, leikkona og eiginkona Örvars í múm, er komin í faðm síns heittelskaða en hún hefur undanfarið verið gra- sekkja á meðan Örvar hefur verið á tónleika- ferðalagi. Hljómsveitin Seabear er hirðhljóm- sveit múm á Evróputúr sveitarinnar og segirsag- an að Birgitta ætli að koma fram með Seabear og syngja með þeim eitt lag. Þetta mun þó ekki vera frumraun Birg- ittu á þessu sviði en hún hefur áður sungið bakraddir með gleði- sveitinni FM Belfast og múm. ■ Jólalagatal útvarpsþáttarins Capone hefur verið í fullum gangi undanfarið. Þar hafa ýmsir tón- listarmenn tekið höndum saman við Áma Plúseinn og gert öðruvísi jólalög sem flutt eru svo á hverj- ummorgni fyrir jól. Lag- ið sem flutt var í morgun gerðiAndri FreyrViðars- son sjálfur ásamtÁma, enAndrivar liðtækur tón- listarmaður áður fyrr og spilaði meðal annars með hljómsveitinni Fídel. Lag Andra fjallaði um vélmenni, fast í jólapakka, en svo þegar pakldnn er opnaður áttar vélmennið sig á því um hvað jólin snúast. Ekki amalegtþað. dori@dv.is Syrpa óveðurslægða „Hun er ekki tíðindalítil aðventan að þessu sinni hvað veðrið varðar," segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. „Fyrir 21 ári var svipað upp á tengingnum á sama tíma, en 10. til 16. desember 1986 gekk yfir landið mikill illviðrabálkur með margháttuðu tjóni víða um land.Veðrið nú er nokkuð sambærilegt." „Á laugardag er gert ráð fyrir SV- steytingi, viða allhvass vindur. Éljagangur um vestanvert landið, en úrkoniulaust eystra. Hiti um eða rétt undir frostmarki víðast hvar á láglendi. Um miðjan dag á sunnudag er siðan líkar á fjórðu lægðinni í þessari hrinu illviðra líkast til þeirri síðustu í bili, því útlit er fyrir rólegra ástandi eftir helgina. Fellur ekki endilea i dúnalogn en eitthvað blíðara verður veðrið. Freniur milt og eindegin hláka sér í lagi austantil á landinu." Eínar Sveinbíörnsson, vedurfrædingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.