Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Blaðsíða 21
PV Sport
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008 21
Jamie Carragher var ekki sáttur eftir leik Liverpool og Luton i enska bikarnum. Þegar
nokkrir stuðningsmenn Luton hrópuðu að honum gekk hann upp að þeim og bauð þeim
að ljúka málunum eins og karlmenn.
Svaraði fyrir sig Carragher
svaraði áhorfendum Luton.
Mynd The Sun.
Brosir þrátt fyrir alit Jamie Carragher
lenti í orðaskiptum við áhorfendur Luton.
Jamie Carragher, leikmaður Liver-
pool, var ekki sáttur eftir að leikur
Luton og Liverpool var flautaður
af. Löngu eftir að leik lok og flest-
ir áhorfendur voru farnir heim,
sneri Carragher aftur á völlinn til að
skokka sig niður.
Átta stuðningsmenn Luton, sem
voru klæddir eins og karakterar í
skemmtiþætti Harrys Enfield, með
svartar hárkollur og í gulum bún-
ingi, þar sem gert er grín að Scou-
sers, eins og Liverpool-íbúar eru
kallaðir, kölluðu þá að Carragher
að róa sig aðeins niður. Gerðu þeir
einnig grín að hárlit Johns Arne Ri-
ise, sem er rauðhærður. Svaraði
Carragher þeim í fyrstu en var síðan
nóg boðið, hljóp að girðingunni og
bauð þeim að útkljá málin eins og
karlmönnum sæmir. Öryggisverðir
þurftu að draga Carragher niður og
róa hann.
„Þessi stjarna úr úrvalsdeildinni
hagaði sér eins og ofbeldisseggur
og óþokki," sagði Michael Sapsford,
stuðningsmaður Luton, í viðtali við
The Sun. Píparinn Michael bætti
við: „Hann réð ekki við smá stríðni
sem var sögð í góðu eins og hundruð
knattspyrnumanna ráða við í hverri
viku."
Úlfaldi gerður úr mýflugu
Liverpool hefur hins vegar sagt
að stuðningsmenn Luton hafi skvett
bjór í áttina að honum og einnig
hrækt til hans. „Þegar Jamie var bú-
inn að skokka sig niður fór hann að
gefa eiginhandaráritanir fyrir unga
aðdáendur. Því miður tóku stuðn-
ingsmenn Luton ekki vel á móti
honum og varð hann fyrir móðgun-
um og fékk bjór yfir sig," sagði tals-
maður Liverpool.
Félagið mun ekki refsa varafyr-
irliða sínum og ekki heldur enska
knattspyrnusambandið. Félag-
ið sagði einnig að Carragher hefði
fengið fjölmörg símtöl um að atvik-
ið væri ekki honum að kenna.
„Það sem kom fyrir leikmanninn
á ekki að koma fyrir neinn. Þetta var
algjör óþarfi. Hann var svo góður
að koma að áhorfendum til að gefa
ungum aðdáendum eiginhandarár-
itun en lenti þá í einhverjum ruglu-
döllum. Ég er ekki stuðningsmaður
Liverpool, er borinn og barnsfædd-
ur hér í Luton, en þetta var ekki
ánægjulegt að sjá," sagði Sim Huss-
ain sem sá atvikið.
Ekki sá fyrsti
Carragher er þó ekki fyrsti knatt-
spyrnumaðurinn sem missir stjórn
á skapinu eftir að hafa fengið það
óþvegið frá áhorfendum. Robert
Hadji Diouf hefur verið þrisvar
sinnum dæmdur (bann fyrir
að hrækja á stuðningsmenn.
Pires fékk eitt sinn bolta fast í sig frá
áhorfanda og hótaði að kasta bolt-
anum aftur í áhorfandann. Frægast
er þó þegar Eric Cantona fékk nóg
á móti Crystal Palace og sparkaði
í einn stuðningsmann. Hann fékk
átta mánaða bann.
Meðhöndlun á landsliðsmanninum Alexander Petterson tókst vel:
PETTERSON AÐ BRAGGAST
Landsliðsmaðurinn Alexander
Petterson ætti að geta farið að kom-
ast á ról með íslenska liðinu fljót-
lega. Hann fór í meðhöndlun síð-
astliðinn laugardag vegna meiðsla
sem hann varð fyrir hjá Flensburg
og þarf nokkra daga til að hvfla sig.
Alexander hefur unnið sig inn
í hug og hjarta þjóðarinnar fyrir
frábæra frammistöðu með lands-
liðinu og er fyrir löngu orðinn
lykilmaður í liðinu. Einar Þor-
varðarson, framkvæmdastjóri
Handknattleikssambands Islands
sagði við DV í gærkvöldi að með-
höndlun á Lexa eins og hann er
kallaður hófst á laugardaginn og
hann þurfi 4-5 daga til að jafna sig.
„Þetta eru meiðsli sem hann
verður fyrir hjá Flensburg og kem-
ur því meiddur til okkar. Hann mis-
stígur sig úti og einhver bólga fylgdi
því. Á laugardaginn fór hann í með-
höndlun og fékk sprautur. Hann
þurfti hvíld eftir meðhöndlunina
og hefur því ekkert gert á æfingum
undanfarið. Hann þarf svona 4-5
daga í hvíld.
Fyrst og fremst er þetta spurn-
ing um að koma Alexander í gang
og láta hann byrja að æfa. Við erum
mjög vongóðir um að hann nái
sér og við náum að koma honum í
stand," sagði Einar.
Mikilvægi Alexanders er ótvírætt
fyrir landsliðið. Hann hefur stimpl-
að sig inn sem einn af betri hægri
hornamönnum heims undanfarin
ár og endurspeglaðist það í kaup-
um stórliðs Flensburgar á honum.
Alexander er mikill baráttujálkur
sem gefst aldrei upp fyrr en í fulla
hnefana og má ekki gleyma þegar
hann lék seinni hálfleik gegn Rúss-
um á Evrópumótinu 2006 kjálka-
brotinn.
ÍÞRÓTTAMOLAR
BOUMSONG ORÐAÐUR VIÐ FULHAM
Roy Hodgson, nýráðinn þjálfari
Fulham, hefur ítrekað að hann ætli
ekki að kaupa í janúar til þess eins að
kaupa. Franski
varnarmaðurinn
Jean-Alain
Boumsong sem
lék með
Newcastle fyrir
nokkrum árum
er nú orðaður
við liðið.
Boumsong hefur i''' j
ekki náð að festa
sig í sessi hjá Juventus á Italíu og
Fulham vantar svo sannarlega öfluga
varnarmenn. Frammistaða hans hjá
Newcastle var ekki upp á marga fiska
og hefur Hodgson sagt að hann þurfi
menn sem hann viti að muni skila
þeim árangrl sem þarf til í úrvals-
delldinni.
v
MIFSUD VILL SPILA MEÐAL
ÞEIRRA BESTU
Maltneski framherjinn Michael
Mifsud hjá Coventry hefur nú lýst því
yfir að hann vilji spiia í ensku
úrvalsdeildinni. Mifsud hefurgengið
vel hjá Coventry
og komst í
pressuna þegar
hann skoraði
bæði mörksinna
mannafsigriá
Manchester
United í
deildarbik-
arnum. Hann
kom sér aftur á
forsíðurnar þegar hann skoraði tvö
mörk í stórsigri Coventry á Blackburn
í ensku bikarkeppninni um helgina
og segist nú vilja komast í úrvals-
deildina.„Ég hef alltaf trúað á
hæfileika mfna og veit að ég er nógu
góöur til að spila (úrvalsdeildinni,"
sagði Mifsud.
ASTON VILLA FYLGIST MEÐ MÁL-
UM DEFOES
Þótt Jermaine Defoe hafi fengið þau
köldu skilaboð frá Juande Ramos,
þjálfara Tottenham, aö hann geti
farið hefur hann sagst hvergi annars
staðar vilja vera.
Það þýðir þó
ekki að önnurlið
vilji ekki fá hann
og þessi orð
Ramosar hafa
settMartin
O'Neill (
viðbragðsstöðu
hjá Aston Villa.
O'Neill hefur
löngum verið mikill aðdáandi Defoes
og gert áður tilboð í hann en þá
neitaði leikmaðurinn sjálfuraðfara.
Svo gæti farið að Aston Villa geri
tilboð (Defoe og bæti honum við
leikmannahóplnn hjá sér áður en
janúarglugginn lokast.
RANGERS VILL EKKI SLEPPA HUTTON
Sá varnarmaður sem Tottenham
hefur elt hvað mest (janúar er skoski
landsliðsmaðurinn Alan Hutton hjá
Rangers. Nú þegar hefur Rangers
hafnað tilboði frá Tottenham en
Lundúnaliðið
lætursérekki
segjast og ætlar
nú að bjóða níu
milljónir punda (
Hutton.
Tottenham hefur
verið (
ótrúlegum
vandræðum
með vörnina (ár
sem endurspeglast í því að liðið
hefur skorað hvað mest I deildinni en
er samt enn (neðri hluta
deildarinnar.
FYRSTA BOÐI (ANELKA HAFNAÐ
Ellefu milljóna punda tilboöi Chelsea (
franska landsliðsmanninn Nícolas
Anelka hjá Bolton hefur verið hafnað.
Sögusagnirnar um að Chelsea hefði
áhuga á Anelka
voru loks
staðfestar þegar
tilboðið barst en
Bolton var
snöggt að hafna
því. Það virðist
þó ekki ætla að
stöðva Chelsea
sem ætlarað
hækka tilboð sitt.
Þó Bolton standi illa aö vlgi (ensku
úrvalsdeildinni hefur það ekki hrjáð
Anelka sem hefur skoraö ellefu mörk
átímabilinu.