Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2008, Page 35
DV Bíó
MIÐVIKUDAGUR 9.JANÚAR 2008 35
SPRENGHLÆGILEGT
TILSTAND
■■■ iif
III
BL
■■■
III
■II mf
m
■■■■
■■■
ssss
■III
Hunter S. Thompson Sagði
það hafa verið áhættusamt
að senda vankaðan Reagan
til fundar við Gorbatsjov.
4
iíicmski sveitarr
hafi ekki látið að sér hæða.
■■ ■■
■■ ■■
Leikstjórinn Ridley Scott ætlar sér
að gera kvikmynd um leiðtogafund-
inn í Höfða árið 1986. Höfðafundurinn
hafði áhrif á fleira en endalok kalda
stríðsins. íslenskir atburðaskipuleggj-
endur stukku út í djúpu laugina,
hljómsveitin Strax sendi frá sér lagið
Moscow, Moscow og Gonzo-blaðamað-
urinn Hunter S. Thompson lét
gamminn geisa um málið.
i
Höfði Hæglega hægt að
endurgera Höfða (tölvu.
Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðl-
um að undanförnu ætlar bandaríski
leikstjórinn Ridley Scott að gera kvik-
mynd um leiðtogafund þeirra Reag-
ans og Gorbatsjovs, sem átti sér stað í
Höfða árið 1986. Fundurinn hafði mik-
il áhrif á heimsvísu og er í flestum tilfellum tal-
inn hafa bundið enda á kalda stríðið. Fundurinn
hafði þá Iíka mikil áhrif á íslendinga, sem höfðu
ffam að fundinum ekki tekið þátt í jafnmiklu til-
standi. Stuðmaðurinn jakob Frímann Magnús-
son man vel eftir fundinum en Stuðmenn, undir
nafninu Strax, sendu frá sér lagið Moscow, Mos-
cow á svipuðum tíma og fundurinn var hald-
inn.
Fyrstu skref íslendinga í
stórviðburðaskipulagi
„Það er nú svona eins og með önnur alvöru-
dægurlög, að þegar eitthvað ber á góma og þeg-
ar flugufrétt flýgur af stað á það að vera yrkisefni.
Lagið var gríðarlega mikið spilað á meðan það
lifði en dó síðan dægurflugudauða," segir Jakob
og segir vel hugsanlegt að með réttum lífgunar-
aðferðum gæti lagið gengið í endurnýjun lífdaga
í kringum kvikmyndina. „Þetta var allt saman
sprenghlægilegt tilstand. Hinir íslensku sveita-
menn stigu sín fyrstu skref í stórviðburðaskipu-
lagningu og er það almennt talið hafa lukkast
vel. Sykurmolarnir fóru ekki varhluta af leið-
togafundargróðanum og snöruðu út póstkorti
í tilefni fundarins. Það seldist mikið af plötum,
kortum og auðvitað lopapeysum."
Reagan ekki með réttu ráði
Á sínum tíma höfðu menn skiptar
skoðanir um Höfðafundinn. Rithöfundurinn
Hunter S. Thompson, upphafsmaður Gonzo-
blaðamennskunnar, hafði þetta að segja
um Höfðafundinn í bók sinni Generation of
Swine: Tales of Shame and Degradation frá
árinu 1988. „Enginn með réttu ráði myndi
senda Reagan einan með þessum Rússa
til fslands. Hann er bara ekki í nógu góðu
jafnvægi. Það veit aðeins guð hvað Reagan
gæti misst út ur sér, eða skrifað undir. Hann
hefur engu að tapa og enginn getur stjórnað
honum, hann gæti komið okkur öllum í klípu,"
segir í bók Hunters.
Ólíklegt að myndin verði
tekin upp hér á landi
Framleiðslufyrirtæki Ridleys Scott hefur farið
fram áað íslenskstjórnvöldhækki endurgreiðslu
af framleiðslukostnaði frá 14 prósentum upp í
20, svo grundvöllur sé fyrir því að myndin verði
tekin upp hér á landi. Væri það gleðiefni fyrir alla
kvikmyndagerðarmenn ef endurgreiðslan yrði
svo há. Hins vegar gefur það vísbendingu um að
þáttur lands og borgar sé ekki jafnveigamikill og
gera mætti ráð fyrir. Brellumeistarar Hollywood
gætu hæglega snarað upp Höfða og móttökunni
á Hótel Holti. En nú er að bíða og sjá.
IceCube
sem Mr. T
DV greindi frá því fyrir nokkmm
vikum að leikstjórinn John Singleton
hefði í hyggju að gera kvikmynd eftir
sjónvarpsþáttunum The A-Team. Var
það hinn vígalegi Mr. T sem fór fyrir
A-hópnum á sínum tíma, en er það
nú á allra vörum í Hollywood að
rapparinn lce Cube verði fenginn í
hlutverkið. „Ó, já, sérstaklega ef
Singleton ætlar að leikstýra. Ég
myndi ekki nenna að herma eftir Mr.
T en ég myndi gera þetta á minn
hátt," sagði Ice Cube þegar hann var
spurður hvort honum litist á
hlutverkið.
Drósigúr
hlutverki
Nicole Kidman hefur hætt við
að leika í myndinni The Reader
en tökur á þessu seinni heims-
styrjaldardrama áttu að hefjast
seinna í mánuðinum. Ástæðan
fyrir því að leikkonan getur ekki
leikið í myndinni er sú að hún er
nú ólétt að barni þeirra Keiths Ur-
ban. „Hún varð að draga sig út úr
myndinni í tæka tíð og neyddist
þar með til að segja fólki ástæð-
una og því get ég nú staðfest að
hún er ólétt," sagði fjölmiðlafull-
trúi leikkonunnar.
Wayansí
G.I. Joe
Leikarinn og grínistinn Marion
Wayans hefur verið fenginn ásamt
Joseph Gordon-Levitt til þess að leika
í hasarmyndinni G.I. Joe sem byggist
á samnefndum teiknimyndum og
leikföngum. Wayans mun fara með
Jilutverk Ripcords sem er foringi í liði
G.I. Joe. Myndin gerist árið 2018 og
fjallar um hatramma baráttu
sérsveitarinnar G.I. Joe gegn hinum
illu Cobra-samtökum. Þeir leikarar
sem þegar hafa verið ráðnir í
myndina eru Sienna Miller, Rachel
Nichols og Adewale Aldnnuoye-
Agbaje.
Útlit er fyrir að HD DVD heyri sögunni til innan skamms:
BLU-RAY BÚIÐ AÐ SIGRA
Á árum áður deildu menn um
hvort VHS eða Beta yrði ráðandi
mynbandakerfi á heimilum fólks.
Næstum 30 árum seinna deila
menn um hvort að blu-ray-tæknin
eða HD DVD sé betri, á meðan
flestir sætta sig ennþá við DVD og
enn aðrir una sáttir með VHS. Blu-
ray og HD DVD eru næstu kynslóðar
mynddiskar sem bjóða upp á að
geyma á þeim gífurlegt magn af
gögnum, þannig eru kvikmyndir
á blu-ray og HD DVD í mun meiri
gæðum en við hin þekkjum. Hart
hefur verið barist en er nú útlit
fyrir að blu-ray hafi vinninginn.
Af sex stærstu kvikmyndaverum í
Bandaríkjunum hafa fjögur þeirra
ákveðið að gefa sitt efni út á blu-
ray og einnig hefur klámbransinn
valið það kerfi. Warner Bros ákvað
á dögunum að styðja blu-ray og
er það spá manna að Paramount
og Universal-fyrirtækin, sem áður
höfðu samið við HD DVD, muni
fylgja í kjölfarið. Paramount hefur
þó undirritað samning við HD
DVD en er það hald manna að í
samningnum leynist klausa sem
gerir þeim kleift að losna undan
honum, muni Warner Bros velja
annað en HD DVD. Blu-ray-spilarar
hafa þá náð mikill fótfestu í Evrópu
og hafa selst vel þar, á meðan HD
DVD og blu-ray seljast svipað í
Bandaríkjunum. Þekktasti blu-
ray-spilarinn er líklega Playstation
3-tölvan, en einnig fást stakir blu-
ray-spilarar.
Playstation 3 Þekktasti blu-ray-
spilarinn.
m aÉjjfrv |SjjJÉiy| Itl
1 IJ