Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2008, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2008, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 Sport PV ÚRSLITÍ ENSKA Birmingham-Chelsea 0-1 0-1 C. Pizarro (79) Blackburn-Middlesbro 1-1 0-1 D.Wheater ('13), 1-1 M. Derbyshire (75) Fulham-Arsenal 0-3 0-1 E. Adebayor ('19), 0-2 E. Adebayor (39), 0-3 T. Rosicky ('81) Portsmouth-Derby 3-1 0-1 L. Nyatanga ('4), 1-1 B. Mwaruwari (38), 2-1 B. Mwaruwari ('42), 3-1 B. Mwaruwari ('55) Reading-Man.Utd. 0-2 0-1 W. Rooney (77), 0-2 Cristiano Ronaldo ('93) Tottenham-Sunderland 2-0 1-0 A. Lennon ('2), 2-0 R. Keane ('90) Newcastle-Bolton 0-0 Wigan-Everton 1-2 0-1 Andy Johnson (39), 0-2 Joleon Lescott ('42), 1-2 Phil Jagielka ('53, sjálfsmark) Man.City-West Ham 1-1 0-1 Carlton Cole ('8), 1-1 DariusVas- sell('16) Staðan Lið L U J T M St 1. Man. Utd 23 17 3 3 46:11 54 2. Arsenal 23 16 6 1 46:17 54 3. Chelsea 23 15 5 3 36:16 50 4. Everton 23 13 3 7 40:23 42 5. Liverpool 21 10 9 2 35:14 39 6. A. Villa 22 11 6 5 40:28 39 7. Man. City 22 11 6 5 29:23 39 8. P.mouth 23 10 7 6 34:23 37 9.Blackburn 23 10 7 6 31:30 37 lO.WestH. 21 9 5 7 27:20 32 11.Tott.ham 23 7 6 10 44:40 27 12. N.castle 23 7 6 10 27:39 27 13. M.brou 23 5 7 11 20:37 22 14. Reading 23 6 4 13 30:49 22 15. Bolton 35 6 12 24:34 21 16. Bir.ham 23 5 5 13 23:34 20 17. Wigan 23 5 5 13 23:39 20 18. S.land 23 5 5 13 22:42 20 19. Fulham 23 2 9 12 23:42 15 20. Derby 23 1 4 18 11:50 7 ENSKA 1. DEILDIN Watford Charlton 1-1 Coventry Burnley 1-2 -Jóhannes Karl Guðjónsson spilaði 75. mínútur fyrir Burnley Norwich Leicester 0-0 Plymouth Southampton 1-1 QPR Barnsley 2-0 Scunthorpe Wolves 0-2 Stoke City Preston 3-1 WBA Cardiff 3-3 Cr. Palace Bristol Clty 2-0 Blackpool Ipswich 1-1 Sheff.Wed. Sheff.Utd 2-0 Staðan Lið L u J T M St 1.WBA 28 15 6 7 62:35 51 2. Watford 28 14 6 8 45:36 48 3. Bristol 28 13 9 6 35:34 48 4.Stoke 28 12 11 5 46:35 47 5. Cr. Palace 28 11 11 6 36:27 44 6. Charlton 28 12 8 8 41:33 44 7. Ipswich 28 11 8 9 45:37 41 8. Cardiff 28 10 10 8 37:35 40 17.QPR 28 8 9 11 33:40 33 18. Norwich 28 8 8 12 27:35 32 19. Co.ntry 27 9 5 13 30:44 32 20. Lei.ster 28 6 13 9 27:27 31 21. Sheff. W. 27 9 4 14 30:34 31 22. Preston 28 7 6 15 27:36 27 23. S.thorpe 28 6 9 13 28:43 27 24. Colche. 27 5 11 11 39:46 26 Gríðarleg eftirvænting var í Newcastle þegar liðið tók á móti Bolton á laugardag. Kevin Keegan sneri aftur á St. James Park sem stjóri liðsins eftir 11 ára Qarveru. Ekki var minni eftirvæntingin hér á Fróni yfir leiknum en Grétar Rafn Steinsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið og stóð sig með sóma. Newcastle vildi fá Qölmargar vítaspyrnur en varð ekki að ósk sinni. STEINDAUTT 0G LEIÐINLEGT c; BENEDIKT BOAS HINRIKSSON bladamadur skrifai: benniQdv.is Kevin Keegan sneri aftur á St. Jam- es Park, leikvöllinn þar sem hann er svo dáður, og stýrði Newcastle í fyrsta sinn gegn Bolton. 52 þúsund manns hylltu Keegan í upphafi leiks en þegar 90 mínútur voru búnar hlýtur hann að hafa séð hversu mikið verk er fyrir höndum hjá liðinu. Að sögn breskra blaða vill Keeg- an fá peninga til að styrkja liðið og er Shaun Wright Phillips sagður vera á leiðinni til að lappa upp á þunglama- legan sóknarleikinn og Daniel van Buyten á að koma til að stoppa í hrip- ieka vörnina. Merkilegt nokk hélt lið- ið hreinu sem var í raun það eina já- kvæða hjá heimamönnum. Bolton-liðið varðist einnig vel, hélt hreinu í fyrsta sinn í langan tíma, lagði mikla áherslu á varnarleik- inn og lítið fór fyrir sóknarleik. Enda vantaði liðið framherja, það er nýbú- ið að selja sinn besta mann, Nicolas Anelka, og þá er E1 Hadji Diouf í Aff- íkukeppninni. Leikurinn var í heild sinni bragð- daufari en maturinn á Ameri- can Style. Síðast þegar Keegan var með Newcastle þótti liðið ákaflega skemmtilegt á að horfa en eftir fyrri hálfleikinn, þar sem liðið átti ekki eitt skot á marldð, sást vel hversu mik- ið verk er ffam undan hjá Keegan. Síðari hálfleikur var aðeins skárri af hálfu heimamanna en þeir náðu ekki að brjóta varnarmúrinn sem Bolt- on setti upp. Bolton hefur ekki enn unnið leik á útivelli í vetur, fengið að meðaltali rúm tvö mörk á sig þannig að þeir hljóta að hafa farið heim sáttir við stigið. Duff átti ekki séns í Grétar Grétar Rafn Steinsson lék sinn fyrsta leik fyrir Bolton og komst vel frá sínu. Hann hélt Damian Duff niðri og skilaði boltanum vel ffá sér. Hann hefur greinilega lært eitthvað í hollenska skólanum. Grétar lék all- an leikinn. James Milner, Charles N'Zogbia og Shola Ameobi fengu allir þokkalegustu færi þótt lítið hafi farið fyrir dauðafærunum. Dómar- inn, Alan Wiley, gerði svo afdrífarík mistök þegar brotið var á Ameobi, boltinn barst á Milner sem var einn á auðum sjó en Wiley lét leikinn ekki halda áfram heldur flautaði hátt og snjallt. Það var í raun eina skiptið sem Newcastle tókst að opna vörn Bolton. Kominn aftur Kevin Keegan er aftur tekinn við Newcastle. NEWCASTLE 0:0 57% MEÐ BOLTANN 43% 17 SKOTAÐMARKI 8 Given,Carr,Taylor,Caapa,)ose Enrique,Milner,Rozehnal, 0 SKOTÁMARK 4 N'Zogbia,Duff(LuaLua80), 1 RANGSTÖÐUR 3 0«*n,Am«ibi. 9 HORNSPYRNUR 6 16 AUKASPYRNUR 16 B0LT0N 1 GULSPJÖLD 2 0 RAUÐ SPJÖLD 0 ÁHORFENDUR: 52^50 Jaaskeiainen, Grétar Rafn, A. O'Brien, Michalik, Gardner, J. O'Brien, Nolan (Campo 67), McCann (Cohen 75), Guthrie, Davies, Taylor (Samuel 79). 1 MAÐUR LEIKSINS Grétar Rafn, Bolton Undir lokin hefði svo Bolton getað stolið stigunum þremur þegar Jlloyd Samuel fékk fínt færi eftir hornspyrnu en Shay Given fékk boltann í fæturna og þaðan fór hann út af. Hörður Magnússon lýsti leiknum á Sýn af sinni alkunnu snilld og lokaorðin hans sögðu allt sem segja þurfti um leikinn. „RisastórtO-Ojafntefli." Báðir stjórarnir sáttir við stigið „Ég sagði við leikmenn mína að vera ekki allt of vonsviknir með úrslit- in," sagði Kevin Keegan. „Það vantar fjöldann allan af leikmönnum og séu væntingarnar dregnar ffá eru þetta í raun fín úrslit. Við munum bæta okk- ur héðan í ffá. Vonandi koma fleiri leikmenn inn, við erum með gott lið en við erum með lítið lið." Gary Megson, stjóri Bolton, var sáttur við stigið. „Við unnum vel fyrir stiginu og þetta var góð ffammistaða hjá leikmönnum en það er alltaf hægt að bæta sig. Þegar við leikum eins vel og við gerðum í fyrri hálfleik verðum við að nýta það betur. Við þurftum að gera nokkrar breytingar vegna þreytu leik- manna og það verður að lagast." Átti ekki séns Damien Duffvarívasa Grétars Rafns allan leikinn. TENNIS í VETUR©1 Ennþá eru lausir nokkrir vikulegir tímar! Ql Morgun- og hádegistímar í boði og nokkrir aðrir tímar enn lausir. Qi Byrjendanámskeið fyrir fullorðna eru að hefjast. 10 tíma námskeið kostar 17.900 kr. Aðeins fjórir á hverju námskeiði. Spaðar og boltar á staðnum. Tennis er skemmtileg hreyfing. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 og á www.tennishollin.is í/tennishölun Oalsmárl 13IKópavogi Grétar Rafn Steinsson var sáttur við frumraun sína með Bolton: GOTT OG MIKILVÆGT STIG Grétar Rafn Steinsson lék allan leildnn með Bolton gegn Newcastíe og komst vel frá sínu. Þegar DV náði í skottíð á Grétari var hann með nýju félögunum á flugvelli á leið í viku- æfingarferð til Spánar. Bolton er úr leik í bikarnum og fær því kærkomið frí til að stilla saman strengina. „Þetta gekk ágætíega, ég fékk meira boltann í fyrri hálfleik en í þeim síðari. En maður er aðeins að finna sig, hvar maður á að vera, hvernig maður á að standa og svo framvegis. Það tekur smátíma að læra inn á þetta." Grétar játar það að dagskipun Bolton hafi verið fyrst og fremst að fá ekki á sig mark. „Hjá okkur var aðalatriðið að halda hreinu, þá taparðuekkileiknum. Envið ætluðum að reyna að nýta föstu leikatriðin og þau færi sem við fengum. Við fengum nokkur færi í fyrri hálfleik og Maður leiksins Grétar stóð sig með mikilli prýði á laugardag. svo fengum við náttúrulega algjört dauðafæri undir lokin sem áttí að nýta. En þetta er gott og mikilvægt stig." Eftirvæntíngin var gríðarleg í Newcastle fyrir leiknum þar sem Kevin Keegan var að stýra liðinu í fyrsta sinn eftir ráðningu hans á dögunum. Grétar varð var við eftirvæntinguna hjá stuðningsmönnum Newcastíe. „Þetta var kannski ekki bestí leikurinn til að mæta þeim. Það var mikil eftir- vænting og menn bjuggust við miklu af liðinu. Þetta var dagurinn fyrir Newcastíe að gera eitthvað en sem betur fer vorum við sterkir og ákveðnir í föstum leikatriðum og vorum sterkir í raun úti um allan völl og mér fannst liðið standa sig ágætíega." Grétar segir að sér hafi verið tekið þokkalega af leikmönnum Bolton þó hann hafi farið aðeins á eina æfingu og því lítil reynsla komin á hópinn. „Þetta eru ósköp rólegir menn, ég tók bara þátt í einni æfingu með liðinu og er svo sem ekki búinn að kynnast leikmönnum. Núna er förinni heitið tíl Spánar í viku til að æfa og stilla saman strengina þannig að þá kynnist maður leikmönnum betur," sagði harðjaxlinn Grétar stuttu áður en hann var kallaður í flug. benni@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.