Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Side 2
2 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
Hunsa tilmæli
„Þetta er mjög dýrt fyrir björg-
unarsveitina," segir lögreglan á
Selfossi um tillitsleysi ökumanna
síðustu daga.
Þrátt fyrir hvert óveðrið á
fætur öðru og allar viðvarirnar
bæði í útvarpi og sjónvarpi
heldur fólk áfram að keyra yfir
Hellisheiðina að sögn lögregl-
unnar. „Fólk virðist ekki gera sér
neina grein íyrir því að Hellis-
heiðin er fjallvegur en ekki
hraðbraut. Fólk fer hreinlega ekki
eftir fyrirmælum lögreglunnar,
þetta er algjört athugunarleysi."
Lögreglan á Selfossi segir
að þrátt fyrir skilti þess efnis að
heiðin sé lokuð ákveði fólk samt
að keyra yfir. „í verstu tilfellunum
hafa eigendur bíla eins og Toyota
Yaris lagt af stað yfir ófæra
heiðina."
Talinn
hálsbrotinn
Tæplega þrítugur karl-
maður er talinn vera háls-
brotinn eftir að hafa stungið
sér til sunds í grynnri enda
sundlaugarinnar á Flúðum.
Slysið átti sér stað um klukk-
an sjö síðasdiðið laugardags-
kvöld með þeim afleiðingum
að hann slasaðist alvarlega.
Maðurinn var í kjölfarið flutt-
ur með sjúkrabíl á bráða-
móttökuna í Reykjavík með
viðkomu á heilbrigisstoinum
Suðurlands. Ekki er vitað um
Iíðan hans eins og stendur.
Elísabet endur-
greiðir kaskó
„Elísabet endurgreiðir vá-
tryggðum viðskiptavinum sín-
um kaskótryggingu ef bílinn
eyðileggst,"
segir Jón Páll
Leifsson,
rekstrarstjóri
Elísabetar. I
helgarblaði
DV kom fram
aðhjáVerði,
Sjóvá, VÍS og TM, sé reglum
þannig háttað að iðgjaldið fáist
ekki endurgreitt þegar kaskó-
tryggður bfll verður fyrir altjóni.
Tryggingahafi þurfi að greiða
fyrir kaskótrygginguna út árið.
Jón Páll segir sömu reglur gilda
um kaskó- og ábyrgðartrygging-
ar hvað endurgreiðslu varðar hjá
Elísabetu, þær séu endurgreidd-
ar í samræmi við það hve langt er
liðið á árið.
Rannsókn
loks að Ijúka
Tíðinda er að vænta innan
skamms af rannsókn á dauða
fjögurra ára drengs í Keflavík.
Slysið átti sér stað í byrjun
desember en grunur hefur
leikið á um að ekið hafi verið
á drenginn. Karlmaður, sem
var í haldi Iögreglu í nokkrar
vikur eftir atburðinn hefur
undanfarið sætt farbanni.
Eyjólfúr Kristjánsson,
rannsóknarlögreglumaður
á Suðurnesjum, segir
rannsóknina á lokastigi en
leggur áherslu á að hún sé
bæði flókin og erfið vegna
hinna hræðilegu afleiðinga
sem slysið hafði í för með sér.
Bifvélavirkinn Jónas Jónasson frá Egilsstöðum missti sumarhús sitt á Borgarfirði
eystra í íslenskum veðurofsa. Sumarhúsið hans splundraðist og stóð klósettið eitt eftir.
Sjálfur stefnir Jónas á að byggja nýtt sumarhús og lætur ekki veðurofsa stöðva sig.
Sterkt klósett Klósettið
var það eina sem var eftir
af sumarhúsi Jónasar
Jónassonar bifvélavirkja.
Minningar í fjörunni Jónas
segir að mesta eftirsjáin að
sumarhúsinu sé minningar
sem hefðu getað orðið.
Brjálað veður
Sumarbústaður eyðilagðist
í veðurofsa.
KLÓSETT STÓÐST
VEÐURHAM
VALUR GRETTISSON
bladamadur skrifar:
„Það er fyrir mestu að engin slys
urðu á fólki," segir Jónas Jónasson,
bifvélavirki frá Egilsstöðum, eri veð-
urofsi splundraði sumarhúsi hans
við Bakkavör í Borgafirði eystra í
síðustuviku.
Veðrahamurinn var slíkur á
fimmrndaginn að vindurinn feykti
sumarhúsi Jónasar í næstu fjöru.
Það eina sem var heillegt eftir veðr-
ið var eitt klósett. Jónas segir miss-
inn þó nokkum. Aðallega vegna
þess að hann hafði hug á að dvelja
meira í Borgarfirðinum. Hann vill
þó ekki gefast upp, heldur stefriir á
að reisa nýtt sumarhús.
Sjálfúr segist Jónas ekki gráta
missinn enda lítið hægt að gera.
Feykti öllu nema klósetti
Það var í veðurhamnum á
fimmtudaginn sem sumarhús Jón-
asar fauk. Upp úr hádeginu virð-
ist vindurinn hafa komist inn í
húsið. Ein vindhviðan splundraði
húsinu og feykti brakinu ofan í
fjöru þar nálægt. Inni í húsinu
voru persónulegar eigur fjölskyldu
Jónasar sem lágu eins og hráviði.
Mönnum til nokkurrar furðu,
varð klósettið eitt eftir. Svo virðist
sem það hafi verið fest á traustum
grunni. Húsið hafði þá staðið á
sama stað í tæpt ár. Fjölskylda
Jónasar dvaldi þar síðasta sumar og
hafði gaman af, enda fallegt um að
litast í Borgarfirðinum.
Vill byggja aftur
„Ég reikna með að ég byggi
eitthvað í staðinn," segir Jónas sem
segir missinn ff ekar tilfinningalegan
heldur en fjárhagslegan. Hann segir
að fjölskyldan hafi ætlað sér að
dvelja í Borgarfirðinum fleiri sumur.
Hann gerir sjálfur h'tið úr verðmæta-
tapi vegna ofsans, segir engu um
að kenna nema veðrinu, og það sé
nokkuð sem menn verði bara að
sætta sig við búi þeir hér á landi.
„Það var nú samt mikið hlegið
að klósettinu sem eftir stóð,"
segir Jónas sem telur það heldur
spaugilegt að klósettið hafi verið
það eina sem komst heillegt frá
íslenska storminum.
Engin skjólgirðing
„Húsið er búið að standa þama
síðan í fýrravor, ég átti eftír að setja
skjólgirðingu og svoleiðis," segir
Jónas pollrólegur vegna veður-
hamsins. Hann segir eðlilegast að
byrja upp á nýtt. Hann lætur ekki
svona lagað slá sig út af laginu.
Sjálfur er Jónas Héraðsmaður eins
og hann kallar það og er búsettur á
Egilsstöðum. Hann segir ekki mikið
fjármagn í bústaðnum sem var
mjög lítfll eða taldi um 30 fermetra.
„Maður grætur þetta ekki enda
lítíð hægt að gera," segir Jónas sem
stefnir á að byggja nýtt sumarhús í
framtíðinni.
Óveður um allt land
Á fimmtudaginn var óveður útí
um allt land og meðal annars féll
snjóflóð í Súðavík. Ung kona lentí í
snjóflóðinu á bíl sínum en varð ekki
meint af. Björgunarsveit þurfti að
koma og sækja hana. Þá var mikið
um fok á þakplötum auk lausamuna.
Bj örgunarsveitir úti um allt land voru
í viðbragðsstöðu vegna veðurofsans.
Þá var einnig gríðarlegur stormur á
föstudagskvöldinu.
Borgarfulltrúi VG lét Orkuveituna greiða málskostnað sinn:
Svandís lét Orkuveituna borga
„Það var hlutí af sáttinni að
Orkuveitan greiddi málskostnaðinn,"
segir Svandís Svavarsdóttír,
borgarfúlltrúi vinstri-grænna.
Orkuveitan borgaði málskostnað,
alls um 800 þúsund krónur,
vegna málsóknar Svandísar gegn
Orkuveitunni. Málskostnaðurinn
kom til vegna þeirrar kröfu hennar að
eigendafundur Orkuveitunnar, þar
sem ákvörðun var tekin um samruna
REI og Geysis Green Energy yrði
dæmdur ólöglegur.
Svandís segir að það sé alvanalegt
þegar slík sátt sé gerð að samið sé
um greiðslu málskosmaðar. „Dóms-
krafan fól í sér að eigendafundur-
inn hafi verið ólögmæmr og allar
þær ákvarðanir sem þar voru teknar
þar með. Það var því fallist á að þeir
greiddu málskosmað. Það er bara
það sem gerist þegar aðilar komast
að sátt um niðurstöðuna að sá sem
fellst á kröfuna greiðir málskosmað-
inn," segir hún.
Aðspurð hvorthúnhafi vitað af álití
Svandís Svavarsdótt-
ir Borgarfulltrúi vinstri
grænna lét Orkuveituna
borga átta hundruð
þúsund i málskotnað
vegna máls sem hún
höfðaði gegn OR vegna
REI-málsins.
Andra Árnasonar sem
sagði að fundurinn
væri löglegur áður
en hún gerði sáttina
við Orkuveituna segir
Svandís að hún hafi vitað það. „Ég
vissi það á þessum tíma. Ándri var
bara einn þeirra sem gáfu álit og hans
skoðun var sú að fundurinn væri
löglegur. Lára Júlíusdómr taldi hins
vegar að hann væri ólögmætur. Þetta
var bara ein af þeim spurningum
sem honum var falið að svara. í
dómsáttínni er skorið úr um að
fundurinn hafi verið ólögmætur og
þetta var því bara leið tíl að
klára málið." einar&dv.is