Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Blaðsíða 4
Fréttir DV
4 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008
Breytingará
fæðingarorlofi
Breytinga er að vænta á
reglum um fæðingarorlof á
núverandi þingi samkvæmt
upplýsingum frá félags- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. Mikil
óánægja hefur verið með þær
breytingar sem gerðar hafa verið
á fæðingarorlofinu undanfarin
ár. Þegar fæðingarorlof er reikn-
að út er tekið mið af Jaunum
síðustu tveggja almanaksára.
Þannig fá foreldrar sem eignast
barn fyrir áramótin ekki laun sín
af því ári reiknuð með. Þeir sem
hins vegar eignast barn eftir ára-
mótin fá allt síðasta ár reiknað
inn í orlofið. Þar sem margir for-
eldrar hafa nýlokið námi þegar
þeir eignast sitt fyrsta barn, hefur
verið bent á að kerfið sé óréttlátt.
Málið verður tekið fýrir á yfir-
standandi þingi.
Litlar líkur
á bótum
Nær útilokað er að neyt-
endur fái nokkrar bætur
vegna ólöglegs samráðs olíu-
félaganna meðan þeir geta
ekki farið í hópmálsókn gegn
olíufélögunum, að sögn Gísla
Tryggvasonar, umboðsmanns
neytenda.
Hann bendir þar á að flestir
almennir neytendur eigi engar
kvittanir vegna viðskipta sinna
við olíufélögin. Meðan ekki er
gert ráð fyrir hópmálsókn f ís-
lenskri löggjöf eiga neytendur
því litla möguleika.
Kaupum aðeins
fleiri íbúðir
Heldur fleiri fasteignir gengu
kaupum og sölum á höfuðborgar-
svæðinu í síðustu viku en vikuna
þar á undan, þar munar mest
um að nær tvöfalt fleiri einbýlis-
hús seldust en í vikunni áður. Alls
seldust 82 fasteignir í síðustu viku
fýrir 3,3 milljarða króna, undan-
farna þrjá mánuði hafa hins vegar
selst 111 fasteignir á viku að með-
altali. Mest var um eignir í fjölbýli,
57, en auk þess seldust 20 sérbýli
og 5 annars konar
eignir. Vikunni
áður seldust 55
eignir í fjölbýli, 11
sérbýli og 6 ann-
ars konar eignir
fyrir samanlagt
2,4 milljarða
króna.
Í
í'3
J J
S *
**<> i,.. »1
s r'»
»■1*
KS 18- ll
»• i» * »
U ísiH J1 0 ffl
I' ;*:?!. **
Atvinnuleysi blasir við á haustmánuðum ef ekki verður viðsnúningur í íslensku viðskipta-
lífi. Breskir Qármálaráðgjafar vara spariíjáreigendur við íslenskum bönkum og líkja þeim
Northern Rock. Vilhjálmur Egilsson segir vaxtastefnu Seðlabankans eina af höfuðástæð-
um þess hvernig komið er fyrir íslensku fjármálalífi. Ásgeir Jónsson hjá Kaupþingi segir
stöðuna slæma og telur almenning ekki hafa gert sér grein fyrir hversu alvarleg hún er.
BANKARNIR ERU
HÆTTIRAÐLÁNA
ERLA HLYNSDÓTTIR
blaðamadur skrifar: erlaíádv.is
íslensku bankarnir eru að skrúfa fyr-
ir útlán. Nær vonlaust er að fá íbúða-
lán og þegar hefur dregið verulega
úr bílalánum. Viðmælendur DV telja
er að næst komi að verulegum sam-
drætti yfirdráttarlána. Skerðingar eru
þegar orðnar á lánum til atvinnulíf-
inu og ná byggingaverktakar ekki að
hefja ný verkefni á meðan ekki fæst
fjármagn.
Samkvæmt heimildum DV eiga ís-
iensku bankarnir lausafé tíl 490 daga,
eða fram á árið 2009. Innan þess tíma
þurfa þeir að endurfjármagna sig
sem mun reynast þeim dýrt við nú-
verandi aðstæður. Traust til íslensku
bankanna vantar á alþjóðamarkaði
og skuldaálag á þá er mun hærra en
gengur og gerist. Langtímafjármögn-
un bankanna er í óvissu og sömu-
leiðis atvinna þúsunda íslendinga.
Atvinnuleysi í haust
Vilhjálmur Egilsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins, segir fyrir-
tæki finna grimmt fyrir því hversu
bankarnir hafa dregið úr útlánum til
atvinnulífsins. Byggingariðnaður
verður þar einna verst úti. Eins
og staðan er nú hjá bönkunum
mun smátt og smátt draga úr
atvinnu landsmanna og fjár-
festingum fyrirtækja. „Menn
klára bara þau verkefni sem
þeir eru í. Ef bankarnir lána
ekki út fara engin ný verkefni af
stað. Þetta gæti haft í för með sér að
næsta haust og vetur yrði umtalsvert
atvinnuleysi. Almenningur fer að
flnna fyrir þessu af fullri hörku um
leið og atvinnan minnkar," segir Vil-
hjálmur.
íslensku bönkunum líkt við
Northern Rock
Breskir fjármálaráðgjafar hvetja
þarlenda sparifjáreigendur til að tak-
marka fjárfestingar sínar í íslensk-
um bönkum við 35 þúsund
pund, eða um 4,5 millj-
ónir íslenskra krónur. Þetta kom
fram í The Sunday Times í gær. Ráð-
gjöfln kemur í kjölfar álits alþjóðlega
matsfyrirtækisins Moody's sem í síð-
asta mánuði gaf út að staða íslensku
bankanna væri viðkvæm.
Landsbankinn heldur úti starf-
semi í Bretlandi undir nafninu Ic-
esave og útibú Kaupþings heitír
Kaupthing Edge. Báðir bankarnir
njóta tryggingar íslenskra og breskra
stjórnvalda upp á 35 þúsund punda
inneignir. Meðal inneign í Kaup
þing Edge er þó 38 þúsund pund
og dæmi eru um að fjölskyld-
ur eigi allt að milljón punda í
bankanum.
í grein The Sunday Ti-
mes segir að gríðarlegur
vöxtur bankans á stuttum
tíma hafi leitt til samanburð-
ar við Northern jtock. Eftir að
spár gerðu ráð fyrir að leið bank-
ans væri niður á við mynduðust
biðröðir fyrir
utan útibú
Northern
Rock og
fólk
tók út innistæður sínar með þeim
afleiðingum að bankinn varð gjald-
þrota. Óttast er að breskir sparifjár-
eigendur láti verkin tala á ný eftír að
varað er við íslensku bönkunum.
Ásgeir Jónsson hjá greiningar-
deild Kaupþings segir ekki raunhæft
að líkja þeim við Northern Rock þar
sem starfsemin er gjörólík þó í báð-
um tilfellum sé um banka
að ræða. Starfsemi
Northern Rock hafi
verið sérhæfð á
meðan Kaup-
*:> þing dreifir'
áhættunni,
er með
+ ~j) breiðan
> starfsgrund-
völl í mörg-
um lönd-
um. Einnig er
lausafé Kaup-
þings
Seðlabankastjórinn
Davíð Oddsson lieldur
stýrivöxtunum háum.
Almenningur áttar sig ekki á þessu Ásgeir Jónsson hjá
Kaupþingi telur að almenningur hafi ekki áttað sig á stöðunni
Bitnar á atvinnulífinu Vilhjálmur Egilsson
segir atvinnulífið munu líða fyrir minni útlán
mun meira. Þó segir Ásgeir að erfið-
ir tímar séu fyrir íslenska banka. „Ég
held að almenningur hafi ekki gert
sér grein fyrir stöðunni," segir hann.
Seðlabankinn skaðar íslensku
bankana
Bæði Seðlabankinn og íslenska
ríkisstjórnin hafa hingað til skellt
skollaeyrum við ákalli bankanna um
að koma þeim til hjálpar. „Peninga-
stefna Seðlabankans á þarna stóran
hlut að máli. Vextirnir hafa hækkað
svo mikið að þeir hafa stórskaðað
íslensku bankana," segir Vilhjálmur
Egilsson. Honum finnst mikilvægt
að ríkisstjórnin grípi inní og treysti
ímynd bankanna á erlendri grundu.
Nauðsynlegt er að snúa þróuninni
við.
Vandinn íslensku bankanna end-
urspeglast í háu skuldaálagi þeirra
erlendis sem enn fer vaxandi. Vil-
hjálmur segir áhættuálag bankanna
allt of hátt miðað við styrk þeirra.
Skuldaálag Kauþings er 478
punktar, hjá Glitni er álagið 435
punktar en 251 hjá Lands-
bankanum. Samanborið við
erlenda banka er þetta
gífurlega hátt en
skuldaálag Bank
of Ireland er
113 og Roy-
al Bank of
Scotland
88 punkt-
ar. Ásgeir
segir álag-
ið sýna
hversu
ótraust
íslenskt
fjármála-
kerfi er
í augum
erlendra
banka.
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
Fanginn sem lést á Litla-Hrauni lést af völdum lyfjaeitrunar:
Aðstandendur íhuga kæru
Sigurður Júlíus Hálfdánarson, sem
fannst látínn í klefa sínum á Litla-
Hrauni síðla september í fyrra, lést
af völdum meþadoneitrunar. Eng-
in merki fundust um sjálfsvíg og því
var beðið niðurstöðu krufningar til að
skera úr um dánarorsöldna.
Meþadon er notað á Litla-Hrauni
til að draga úr fráhvörfum þeirra
fanga sem eru langt leiddir í fíkni-
efnaneyslu. Ættingjar Sigurðar skilja
eklci hvers vegna honum hafi ver-
ið gefið lyfið því hann hafi ekki átt í
fíkniefnavanda. Þeir telja fullvíst að
mistök starfsfólks hafi orðið Sigurði
að bana í klefa sínum og ætla að öll-
um líkindum að stefna íslenska rík-
inu.
„Mér er það eðlilega mikið í mun
að þetta verði rannsakað tíl hlítar.
Við töluðum við hann kvöldið áður
en þetta gerðist og þá var hann hress.
Þá voru alls engar vísbendingar um
að eitthvað bjátaði á," segir Hálfdán
Guðröðarson, faðir Sigurðar.
Sigurður var nýlega orðinn 35 ára
er hann lést. Tveimur vikum áður
hafði hann strokið af áfangaheimilinu
Vemd þar sem hann átti innan við
hálft ár eftir af 10 ára fangelsisdómi
fyrir manndráp. Sigurður áttí því stutt
eftir af afplánun sinni er hinn voveifl-
egi atburður áttí sér stað. Fangelsis-
málayfirvöld og heilbrigðisyfirvöld
hafa lofað ítarlegri rannsókn.