Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Page 7
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 7
Asískt barnaklám Á
vefnum mátti finna hlekk á
asiska barnaklámsíðu. Hann
hefur nú verið tekinn út.
A
segir heimsóknir á síðuna vera á
bilinu eitt til tvö þúsund. Hann
segist ekki halda skrá yfir þá
notendur sem fara inn á síðuna
né viti hann á hvaða aldri not-
endur séu. Það eina sem hann
gerir er að taka út ólöglegt efni
þegar hann verður var við það,
annars rekur síðan sig sjálf.
Aðspurður hvort hann telji
sig ekki ábyrgan fyrir því efni
sem inn á síðuna fer þar sem
allir notendur eru nafnlausir,
segir Baldur: „Ef það væri til-
fellið myndi ég halda að mogga-
bloggið væri á ábyrgð Morgun-
blaðsins."
Svo öllu sé haldið til haga
er Morgunblaðið ábyrgt fyrir
bloggunum.
Óeðlilegt að hóta
„Það er ekki eðlilegt að hóta
blaðamönnunum," segir Bald-
ur um þær líflátshótanir sem
blaðamenn DV hafa fengið
undanfarið. Hann ber fyrir sig
sömu rök og áður, hann geti
ekki verið ábyrgur fyrir því sem
gerist á síðunni. Núna er Bald-
ur búinn að taka út hótanir auk
þess sem hann kippti út mynd-
inni af Tinnu Rut Bjarnadóttur
en óprúttinn aðili setti nektar-
mynd af henni á netið eftir að
ræðulið Borgarholtsskóla sýndi
myndina af henni í ræðukeppni
gegn Fjölbraut í Breiðholti.
Aðspurður hvort það komi
til greina að loka síðunni segir
Baldur: „Það hefur aldrei kom-
ið til tals að leggja síðuna niður.
Hún var sett upp sem tilrauna-
starfsemi."
Lögreglan er með sfðuna til
skoðunar vegna barnakláms
sem þar hefur mátt finna.
Átökin í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins:
GEIR HAARDE
STYÐURVILHJ
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leið-
togi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
hyggst sitja áfram þrátt fyrir þrýsting
um að segja af sér. Hann hefur not-
að helgina til að funda með nánustu
stuðningsmönnumsínum.Vilhjálmur
sagði ósatt í Kastljósi um það að borg-
arlögmaður hefði gefið honum það
álit að hann hefði fúllt umboð á eig-
endafundi Orkuveitunnar. Vilhjálmur
mun, samkvæmtheimildumDV, meta
stöðu sína þannig að mikill meirihluti
borgarstjórnarflokksins styðji hann til
áframhaídandi formennsku, þeirra
á meðal Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi. Þá mun það vera skoð-
un hans að fjölmiölar
standi fyrir
aðför að
sér eft-
ir að
hann fór rangt með í Kastljósi. Stuðn-
ingsmenn Vilhjálms telja að andstæð-
ingar hans innan 14 manna borg-
arstjómarflokks séu aðeins Hanna
Bima Kristjánsdóttir, Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir og varaborgarfulltrúinn
Áslaug Friðriksdóttir. Þá telur hann
sig njóta fulls stuðnings Geirs H.
Haarde, formanns Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann er því alls ekki á þeim bux-
unum að hætta sem borgarfulltrúi en
mun væntanlega krefjast stuðningsyf-
irlýsingar af borgarstjómarflokknum.
Það kann þó að verða þrautin þyngri
ef marka má að fæstir borgarfúlltrúa
Sjálfstæðisflokksins hafa treyst sér
tU að lýsa opinberlega yfir stuðningi
við Vilhjálm. Enginn þeirra fékst til
að mæta í Silfur Egils í gær til að
ræða þessi mál.
Mikill ágreiningur er
um Vilhjálm innan flokks-
ins. Hópur sem kennd-
ur er við Geir og Guðlaug
Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra styður hann
til áframhaldandi setu en
aðrir sem tengjast Bimi
Bjamasyni, Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur
og Davíð Oddssyni, fyrr-
verandi formanni, vilja
að Hanna Bima Krist-
jánsdóttir, forseti
borgar-
stjómar, taki við leiðtogaembætt-
inu af Vilhjálmi strax. Til þess
mega stuðningsmenn Vilhjálms
ekki hpgsa enda sé Hanna
Bima í liði andstæðinganna.
í umræðunum undanfama
daga hefur á meðal þeirra bor-
ið á góma að fá utanaðkom-
andi borgarstjóraefni fremur T
en að sitja uppi með andstæð-
ing. Þar hefur borið á góma nafn
Guðfinnu Bjamadóttur alþingis-
manns. Vandinn sem upp kæmi
með afsögn Vilhjálms er sá að þar
með er óvissa um Ólaf F. Magnússon
borgarstjóra. Stuðningsmenn
Vilhjálms telja að samstarf-
ið við Ólaf byggist á Vil-
hjálmi einum og ekki
verði hægt að treysta
því að samstarfið
haldi áfram þeg-
ar að því kemur
að Sjálfstæðis-
flokkurinn fái
borgarstjóra-
stólinn.
Hanna Birna Margir vilja fá
hana sem borgarstjóraefni en
hun mætir harðri mótspyrnu.
Geir Haarde Aðhefst ekkert
og er talinn styðja Vilhjálm.
Betri heyrp
Baett iífsg^ði
Tímapantanir í síma
568 6880
Heyrmrtœkm
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | sími: 568 6880 | www.heyrnartaekni.is
Viltu heyra betur?
Bjóðum upp á mikið úrval heyrnartækja
með einstökum tæknibúnaði:
• Þráðlaus tækni og gervigreind
• Tenging við farsíma og aðra hljóðgjafa
• Fullkominn ýlfurvarnarbúnaður
• Innbyggt minni og lærdómskerfi
• Stefnuvirkur hávaðadempari