Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Page 10
10 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008
Sport DV
N1 DEILD KARLA
Stjarnan-Valur 27-28
Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 7,
Arnór Gunnarsson 6, Kristján Karlsson 3,
Sigurður Eggertsson 3, Ernir Hrafnsson
3, Elvar Friðriksson 2, Ingvar Árnason 2,
Sigfús Sigfússon 1, Fannar Friðgeirsson 1,
Varin skot: Pálmar Pétursson 12
Mörk Stjörnunar: Volodymyr Kysil 6,
Vilhjálmur Halldórsson 5, Ólafur Ólafsson
5, Heimir Árnason 3, Ragnar Helgason
3, Patrekur Jóhannesson 3, Kristján
Kristjánsson 2
Varin skot: Hlynur Morthens 14
Afturelding-HK 23-27
Mörk HK: Ragnar Hjaltested 8, Sergei
Petraytis 5,Tomas Eitutis 4, Augustus
Strazdas 3, Ólafur Ragnarsson 3, Árni
Þórarinsson 2, Sigurgeir Ægisson 2,
Mörk UMFA: Hilmar Stefánsson 8, Daníel
Jónsson 4, Einar Guðmundsson 3, Haukur
Sigurvinsson 3, Magnús Einarsson 2,
Ásgeir Jónsson 1, ÞrándurGlslason 1,
Attila Valaczkai 1
Akureyri-Fram 29-30
Mörk Fram: Halldór Sigfússon 6, Stefán
Stefánsson 5, Jóhann Einarsson 4, Andri
Haraldsson 4, Einar Hrafnsson 3, Haraldur
Þorvarðarson 3, Rúnar Kárason 3, Hjörtur
Hinriksson 1,
Varin skot: Magnús Erlendsson 11
Mörk Akureyrar: Ásbjörn Friðriksson 11,
Magnús Stefánsson 7, Hörður Sigþórsson
4, einar Friðjónsson 3, Heiðar Aðalsteins-
son 2, Þorvaldur Þorvaldsson 1, Nicolaj
Jankovic 1
Varin skot: Arnar Sveinbjörnsson 8
Haukar-fBV 32-28
Mörk Hauka: Kári Kristjánsson 7, Andri
Stefan 5, Jón Karl Björnsson 5/3, Ellas
Már Halldórsson 3, Gísli Jón Þórisson 3,
Sigurbergur Sveinsson 3/1, Gunnar Berg
Viktorsson 2, Arnar Pétursson 2, Freyr
Brynjarsson 2.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 28, Aron
Rafn Eðvarðsson 2.
Mörk (BV: Sigurður Bragason 14, Sergey
Trotsenko 6, Zilvinas Grieze 3, Nokilaj
Kulikov 2, Leifur Jóhannesson 2, Brynjar
Karl Óskarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn Arnarson 17.
Staðan
Lið L U
1. Haukar 16 11
2. Fram 16 11
3. Stjarnan 16 10
4. Valur 16 9
5. HK 16 9
6. Akureyri 16 4
7. UMFA 16 2
8. IBV 16 1
J T M St
3 2 458:403 25
1 4 454:421 23
1 5 470:425 21
3 4 438:397 21
1 6 41:405 19
2 10 432:443 10
3 11 392:422 7
0 15 399:568 2
N1 DEILD KVENNA
Valur-Stjarnan
FH-Haukar
Grótta-Akureyri
Fylkir-HK
22-30
21-32
35-18
25-25
Staðan
Liö L u J T M St
1. Fram 16 13 3 0 407:311 29
2. Stjarnan 16 12 1 3 427:326 25
3. Valur 16 12 0 4 433:336 24
4. Grótta 16 10 1 5 444:364 21
5. Haukar 16 8 2 6 436:391 18
6. Fylkir 16 5 1 10 339:393 11
7.HK 16 3 3 10 398:443 9
8. FH 16 3 1 12 340:464 7
9. Akureyr 16 0 0 16 285:481 0
ICE EXPRESS DEILD KARLA
Grindavík-Tindastóll 108-78
Snæfell-Hamar 98-80
Þór A.-Stjarnan 89-84
Stigahæstir Þórs: Cedric Isom 31, Óðinn
Ásgeirsson 24, Luka Marolt 13, Hrafn
Jóhannesson 7
Stigahæstir Stjörnunar: Dimitar Karad-
zovski 23, Jovan Zdravevski 23, Calvin
Roland 11, Kjartan A. Kjartansson 11
Staðan
Lið L U T Skor St
1. Keflavlk 16 14 2 1479:1316 28
2. KR 16 13 3 1461:1360 26
3.UMFG 16 12 41480:1390 24
4. Skallag 16 10 61342:1309 20
5. UMFN 16 9 7 1416:1292 18
6. Snæfell 16 8 81390:1343 16
7. ÍR 16 6 10 1349:1386 12
8. Þór A. 16 6 10 1377:1533 12
9. Tindastóll 16 6 101390:1474 12
10. Stjarnan 16 5 111316:1388 10
ll.Fjölnir 16 4 121261:1379 8
12. Hamar 16 3 13 1206:1297 6
Haukar þurftu að hafa mikið fyrir Qögurra marka sigri á ÍBV, 32-28, á Ásvöllum í gær.
ÍBV kom mikið á óvart og allt annað er að sjá til liðsins eftir áramót. Sigurður Braga-
son fór á kostum fyrir ÍBV með fjórtán mörk en hjá Haukum var það Gísli Guðmunds-
son markvörður sem bar af með tæp þrjátíu skot varin. Sigurður var mjög ánægður í
leikslok þrátt fyrir tap.
ÍBV kom skemmtilega á óvart í gær
þegar það sótti Hauka heim að Ás-
völlum. Fyrirfram var búist við stór-
sigri Hauka enda ÍBV langneðsta lið-
ið í deildinni og hefur haft það að
vana að tapa stórt í ár. Það var hins
vegar allt annað uppi á teningnum
og þurftu Haukar að bjóða upp á allt
sitt besta til að leggja Eyjamenn, 32-
28, í fínasta leik. Aðeins Gísli Guð-
mundsson, markvörður Hauka, kom
í veg fyrir að ÍBV kæmist nær topp-
liðinu.
Eftir fimm mínútur var ÍBV þrem-
ur mörkum yfir, 4-1, og vanmat-
ið að fara með Haukamenn. Þeg-
ar Haukarnir loks náðu áttum fóru
þeir auðveldlega með að skora fjög-
ur mörk í röð og breyta stöðunni í 5-
4. Haukar hefðu auðveldlega getað
verið komnir mikið fyrr yfir en þeim
var oft á tíðum algjörlega fyrirmun-
að að skora. Kolbeinn Arnarsson átti
ágætis dag í ÍBV-markinu en aðallega
voru það stengurnar sem þvældust
fyrir Haukum. Líklegt er að íslands-
met hafi verið sett í stangarskotum í
fyrri hálfleik.
Skipt um bolta
Eitthvað var boltinn að angra
menn og voru Haukar guðs lifandi
fegnir þegar skipt var um bolta. Þó
boltinn hafi örugglega verið minnsta
ástæða slæmu skotanna virtist þessi
breyting hafa næg áhrif á heima-
menn að þeir fóru að setja allt í net-
ið. Þeir náðu upp almennilegu for-
skoti í fyrsta sinn í leiknum og voru
yfir í hálfleik, 15-10. Haukar héldu
svo áfram þar sem frá var horfið í
seinni hálfleik, skoruðu fjögur mörk
gegn einu á fyrstu mínútum seinni
hálfleiks og breyttu stöðunni í 19-
11. Á þeim tímapunkti sást allt það
slæma sem Eyjamenn hafa sýnt á
tímabilinu, allt frá hrikalegum sókn-
arleik í virkilega hægan og dapran
varnarleik.
Sigurður leiddi ÍBV til baka
Það sem ÍBV hefur gert hingað
til þegar í harðbakkann slær hefur
verið að gefast upp. Það var þó allt
annað uppi á teningnum í þessum
leik og virkilega gaman að sjá Eyja-
menn loks berjast til síðustu mínútu.
Sigurður Bragason skoraði fjórtán
mörk fyrir IBV og reif upp stemning-
una hjá sínum mönnum sem fóru að
saxa á forskot Hauka.
Nýtt fagn Kári Kristjánsson skoraði sjö lagleg mörk f
leiknum fyrir Hauka og bryddaði upp á nýju fagni.
Aron Kristjánsson reyndi hvað
hann gat að leyfa yngri leikmönn-
um sínum að spila en hann hrein-
lega hafði ekki efni á því. ÍBV spilaði
sinn langbesta leik í ár og hefði það
ekki verið fyrir Gísla Guðmundsson í
Haukamarkinu er aldrei að vita hvað
hefði getað gerst. Gísli fór á kostum
og varði 28 skot, mörg hver úr dauða-
færum, og hindraði IBV í því að kom-
ast nær en fjögur mörk. Fjögur mörk
voru svo munurinn þegar leik lauk
og Haukasigur staðreynd, 32-28. ÍBV
getur vel við unað enda bjóst enginn
við þessum úrslitum í leik efsta og
neðsta liðsins.
Ánægður þrátt fyrir tap
Sigurður Bragason fór á kostum
í leiknum og skoraði fjórtán mörk.
Þrátt fyrir tapið var erfitt að finna
ánægðari mann. „Það munaði litlu
en Gísli varði vel og hélt okkur í
þægilegri fjarlægt þannig að þetta
náði ekki að vera nógu spennandi í
restina. Þótt við höfum tapað er ég
mjög ánægður. Við erum með ein-
hver 200 mörk í mínus og höfum ver-
ið að tapa með tíu til fimmtán mörk-
um í hverjum leik.
Svo komum við hingað og mæt-
um hörkuliði í Haukum og töpum
einungis með fjórum.
Það er allt annað að sjá okkur
núna enda hefur alltaf loðað við okk-
ur að vera betri eftir áramót. Það er
ekkert að því að tapa í handbolta en
að tapa alltaf með fimmtán til tut-
tugu mörkum er skammarlegt. Við
getum borið höfuðið hátt í dag.
Ég sjálfur fann mig vel. Þetta var
einn af þessum dögum sem allt gekk
upp. Stundum er þetta bara svona
að allt gengur upp hvort sem það
er í skólanum eða handbolta og þá
er um að gera að negla á markið.
Ég er mjög ánægður og fer ánægð-
ur í Herjólf í kvöld," sagði Sigurður
kampakátur.
Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, var ekki nægilega sáttur við
nýtingu sinna manna. „Við spiluð-
um góða vörn í byrjun og keyrðum
í bakið á þeim en það er ekki allt-
af nóg. Það verður að koma boltan-
um framhjá markverðinum og inn í
markið. Nýtingin gerði það að verk-
um að IBV hélst inni í leiknum. Það
gekk svo sem allt upp sóknarlega og
spilið eins og það átti að vera en við
nýttum ekki færin."
Sveinn Elías Elíasson bætti 36 ára íslandsmet í 400 metra hlaupi:
ISLANDSMET MEÐ HALFRIFINN VOÐVA
Sveinn Elías Elíasson, Fjölni Setti (slandsmet á öðrum fæti.
Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni
setti um helgina íslandsmet í 400
metra hlaupi karla á Meistaramóti fs-
lands í frjálsum íþróttum innan húss
þegar hann hljóp á 48,33 sekúndum.
Eldra metið átti Bjarni Stefánsson,
sett í Gautaborg árið 1972, 48,5 sek.
Sveinn Elías bætti einnig persónu-
legan árangur sinn um 67/100 úr
sekúndu.
Metið er enn merkilega því Sveinn
Elías reif vöðva aftan í læri á Reykja-
vík International fyrir þremur viíoim.
„Ég skil ekkert í þessum tíma. Ég er
70% heill. Ég hef ekkert æft í þrjár
vikur nema skokkað. Sjúkraþjálfar-
inn lét mig vita með tveggja daga fyr-
irvara að ég mætti keppa í 400 metra
hlaupi. Ég undirbjó mig ekkert fyr-
ir mótið og fór seint að sofa alla vik-
una."
Sveinn Elías hafði það ekki á til-
finningunni að hann hefði bætt Is-
landsmet þegar hann kom í mark.
„Ég fór of hægt fyrstu 150 metrana og
þurfti að rykkja til að komast í fyrsta
sætið. Ég fékk næstum krampa við
það og fannst ég skokka seinni hring-
inn."
Lengra er í íslandsmetið utan-
húss. Það setti Oddur Sigurðsson árið
1984 þegar hann hljóp á 45,36 sek-
úndum. „Ég á helling inni. Ég ætti að
geta hlaupið niður á 47 sekúndum."
Sveinn keppir næst í bikarkeppni
Frjálsíþróttasambandsins eftir tvær
vikur. „Ég ætti þá að vera orðinn 95%
heill og keppa í þeim greinum sem
þjálfarinn minn vill."
Aðaláhersla hans í sumar verður á
100 og 200 metra hlaup. „Ég stefni á
að bæta íslandsmetin sem Jón Arnar
Magnússon á í þeim."
Sveit fR setti Islandsmet í 4x400
metra hlaupi karla og kom í mark á
3:22,91 mínútu. Sveitin bætti árs-
gamalt Islandsmet sveitar Ármanns/
Fjölnis um rúma sekúndu. Sveitina
skipuðu Börkur Smári Kristinsson,
Brynjar Gunnarsson, Stefán MárÁg-
ústsson og Einar Daði Lárusson.
GG