Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Side 15
DV Sport
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 15
Bouma48,Carew51,72,90
víti. *T(
43% MEÐBOLTANN 57%
18 SKOTAÐMARKI 6
7 SKOTÁMARK 3
2 RANGSTÖÐUR 0
7 HORNSPYRNUR 5
11 AUKASPYRNUR 21
2 GULSPJÖLD 1
0 RAUÐ SPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 42.640
Carson, Mellberg (Gardner 46),
Laursen, Davies, Bouma, Petrov
(Harewood 46), Reo-Coker, Barry,
Young (0sboume90), Carew,
Maloney.
Given (Harper 54), Carr, Taylor,
Caapa, Beye, Milner, Barton
(Emre 74), Butt, DufF, Smith,
Owen.
MAÐUR LEIKSINS
* JohnCarew,AstonVilla
GRE YIÐ Tvö mörk í tveimur
leikjum en aöeins eitt stig.
John Carew skoraði þrennu í 4-1 sigri Aston Villa á Newcastle um helgina. Newcastle
var yfir í fyrri hálfleik en veikleikar liðsins sýndu sig á seinni 45 mínútunum. Kevin
Keegan segir að engum töfrasprotum verði veifað til að laga stöðu Newcastle-manna.
Newcastle-stuðningsmenn hafa
líklega ekki brosað jafnmikið í
langan tíma og í hálfleik gegn
Aston Villa. Þetta hrikalega slaka lið
Newcastle var yfir í leiknum eftir að
eini góði leikmaðurinn í hópnum,
Michael Owen, hafði skorað á
fjórðu mínútu leiksins. ÞráttJyrir að
hinn vitgranni Joey Barton hafi átt
að fá á sig víti í fyrri hálfleik yfirsást
dómaranum það og gestirnir yfir
á Villa Park. I seinni hálfleik sýndi
Newcastíe svo allar sínu réttu hliðar
og leyfði Villa-mönnum að rúlla
yflr sig. John Carew skoraði þrjú af
þeim fjórum mörkum sem áttu eftir
að koma í seinni hálfleik í 4-1 sigri
Villa.
er tekið við deigi en ef það er ónýtt
veður það ekki hnoðað, sama hver
bakarinn er.
Carew fór létt með Newcastle
Það var við hæfl að eini maður-
inn sem hefur sýnt einhvern stöð-
ugleika undanfarin ár í Newcastle,
Shay Given, ætti fyrsta orðið. Given
rann þegar hann ætlaði að skutla
sér á laflaust skot varnarmanns-
ins Wilfred Bouma sem vart dreif á
markið. Nægur var krafturinn til að
boltinn rúllaði í netið því Given gat
lítið annað gert en horft á hann leka
í netið og plokka svo grasið undan
skónum.
Ekkert lið hefur skorað jafnmik-
ið úr föstum leikatriðum og Aston
Villa. Því var um að gera fyrir New-
castle að passa hættulegasta mann
Villa í þeim efnum, John Carew,
nægilega vel. Hann þakkaði pent
fyrir sig þegar hann sneiddi knött-
inn eftir hornspyrnu í netið, beint
í hornið sem Damian Duff átti að
passa en hann fann sér annað betra
að gera.
Carew skoraði sitt annað mark
þegar Newcastle varð um of að
hreinsa boltann frá marki. Ast-
on Villa fékk hvert tækifærið á eft-
ir öðru til að koma skoti á mark-
ið eftir hornspyrnu og endaði með
að Carew skallaði hreinsun New-
castle-manna í netið. Carew kór-
ónaði svo frábæran leik sinn með
marki úr vítaspyrnu eftir að Step-
hen Carr hafði handleikið knöttinn
í baráttu við hvern? Að sjálfösögðu
John Carew.
Einfaldlega lélegt lið
Vinsældaráðningin á Kevin
Keegan hefur engan árangur bor-
ið. Eitt stig úr fjórum leikjum í
deildinni og aðeins tvö mörk skor-
uð og úr leik í bikarnum á sannfær-
andi hátt. Hvað átti Kevin Keegan
að gera þegar hann tók við New-
castle-Iiðinu? Ekki hafa yfirmenn
Newcastle horft mikið á það lið sem
Newcastíe hafði í höndunum síð-
ast þegar hann var við stjórnvölinn.
Það er vægast sagt himinn og haf
þar á milli og af sem áður var.
Það er aðeins einn heimsklassa-
leikmaður í Newcastíe og það er
Michael Owen. Ef horft er á restina
eru þetta varamenn annarra félaga
sem komust ekki í liðið en virtust
eiga góðan samastað í Newcastle.
Newcastle langar á toppinn en fer
ekki langt með þennan mannskap
sem það hefur. Það getur hver sem
Engum töfravöndum sveiflað
Kevin Keegan er eldri en tvævet-
ur í bransanum og áttar sig á stöð-
unni. „Við erum brothættir, það
verður einfaldlega að segjast eins
og er. Ég trúi því að við höfum allt til
að bera til að sleppa við fall en við
þurfum allavega að ná 40 stigum
til að byrja með. Það er mikil vinna
fram undan og það er langt frá því
að ég geti bara mætt og veifað ein-
hverjum töfrasprota svo allt komist
í lag," segir Kevin Keegan.
Þó Newcastle hafi verið og sé
lélegt má ekki gleyma hversu öfl-
ugt Aston Villa er orðið. „Það virð-
ist vera sem svo að ég hafi meiri
trú á leikmönnunum en þeir hafa á
sjálfum sér. Sem þjálfari get ég vart
orðið stoltari af seinni hálfleiknum.
Strákarnir sýndu allan þann kraft og
vilja sem ég lagði upp með og þeir
kláruðu leikinn eins og lið sem vill
komast í meistaradeildina," sagði
afar stoltur Martin O’Neill eftir leik.
Tottenham átti ekki í miklum vandræðum með sinn leik:
SANNFÆRANDITAP AÐ HÆTTIDERBY
Hannvarlétturoglöðurmannlegur
sigur Tottenham á Derby síðastíiðinn
laugardag. Síðast þegar liðin mættust
hafði Lundúnarliðið fjögur núll sigur
en þeir sættu sig við þrjú mörk á Pride
Park um helgina. Robbie Keane og
Berbatov komust báðir á blað ásamt
varnarmanninum Youness Kaboul í
3-0 sigri Tottenham á Derby.
Derby er nú tíu stigum á eft-
ir næsta liði í deildinni eftir tap-
ið en þeir voru sprækir við upphaf
leiks. Giles Barnes getur klórað sér
í handabökin fyrir að hafa klúðrað
dauðafæri því ekki leið á löngu fýrr
en Robbie Keane hafði komið gest-
unum yfir. Roy Carrol tókst þá ekki
að koma boltanum frá marki þeg-
ar hann varði skot og lá knötturinn
fyrir framan markið og gat Keane lít-
ið annað gert en skorað tuttugasta
mark sitt á tímabilinu.
0
40% MEÐ BOLTANN 60%
10 SK0TAÐ MARKI 16
SK0TÁMARK
RANGSTÖÐUR
HORNSPYRNUR
AUKASPYRNUR
GULSPJÖLD
RAUÐSPJÖLD
AH0RFENDUR:33.058
Keane68, Kaboul 81, Betbatov
90vrti.
Carroll, Leaœck, Stubbs, Moore
(Todd 11), Edworthy (Jones 78),
Fagan, Savage (Sterjovski 74),
Pearson, Bames, Villa, Miller.
Cemy, Hutton, Dawson (Kaboul
14), Huddlestone, Chimbonda,
Lennon, Jenas, Malbranque,
Boateng (0'Hara 46), Keane, Bent
(Berbatov 58).
MSÐUR LEIKSINS
Robbie Keane, Tottenham
Mark Keane kom ekki fyrr en á
68. mínútu og vel gert hjá Derby að
halda hreinu fram að því. Mörkin
virtust ekki ætía að verða fleiri
og Derby gerðu hvað þeir gátu til
að jafna en það var varnartröllið,
Youness Kaboul, sem batt enda á
vonir Derby í leiknum. Hann gerði
þá vel í að losa sig frá varnarmanni
með góðri snertingu og staðan orðin
2-0. Tottenham fékk svo vítaspyrnu í
uppbótartíma sem stuðningsmenn
Derby voru ekki ánægðir með og
bauluðu á dómara leiksins þegar
hann gekk af velli. Dimitar Berbatov
skoraði auðveldlega úr spyrnunni
og innsiglaði auðveldan sigur
Tottenham.
„Við gerðum allt rétt í klukkutíma.
Við náðum að búa okkur til færi en
það gerði Tottenham einnig enda er
það frábært lið. Strákarnir mínir gáfú
sig allan í leikinn en okkur var refs-
að fyrir byrjendamistök," sagði stjóri
Engin hætta Berbatov skoraði að hætti
Heiðars Helgusonar úr vitaspyrnu sinni.
Derby, Paul Jewell, eftir leik.
Gus Poyet talaði við fjölmiðla
að vanda eftir leik enda öllu betri í
enskunni en Juande Ramos. „Þetta
var meiri prófraun fyrir okkur en fólk
heldur örugglega. Þegar leið á leikinn
vorum við með ferskari fætur og um
það munaði," sagði Poyet eftir leik.
Pearson farinn frá Newcastle
Nigel Pearson hefur yfirgefið
Newcastle. Nigel var aðstoðarmaður
bæði Glenn Roeder og Sam
Allardyce og
tók svo við
liðinu þegar
Big Sam var
rekinn. Það var
undirstjórn
Pearsons sem
Newcastle
tapaði 6-0 fyrir
Manchester
United en vann
svo sigur á Stoke í ensku bikarkeppn-
inni. Sá leikur féll þó algjörlega í
skuggann af endurkomu Kevins
Keegan sem horfði á leikinn. Með
komu Dennis Wise var orðið enn
minna fyrir Person að gera og sá
hann sig neyddan til að víkja.
Dawson frá í þrjár vikur
Miðvörðurinn sterki, Michael
Dawson hjáTottenham, getur orðið
frá í allt að þrjár vikur vegna meiðsla.
SigurTottenham á Derby var
dýrkeyptur fyrir strákinn sem reif
vöðva í leiknum. Það var strax vitað
að meiðslin væru alvarleg því hann
þurfti að haltra af velli eftir aðeins
fjórtán mínútna leik. Inn fyrir hann
kom svo Youness Kaboul sem
skoraði annað markTottenham í
leiknum. Það er þvf Ijóst að Dawson
mun missa af fyrsta leikTottenham í
útsláttarkeppni Evrópukeppni félags-
liða en Lundúnastrákarnir eiga leik
gegn Slavia Prague á fimmtudaginn.
Southgate svarar Woodgate
Gareth Southgate hefur svarað
ummælum Johnathan Woodgate
um að Middlesbrough hafi engan
metnað.
Woodgate
sagði við förina
tilTottenham
að Middles-
brough skorti
allan metnað til
þess að bæta
sig og að hann
færi nú til mun
betri þjálfara,
Juande Ramos.
„Ég er ennþá ungur þjálfari að læra
þess vegna særðu þessi ummæli mig
ekkert. Verra var þó að hann sagði að
við hefðum engan metnað. Það er
alrangt hjá honum," segir Southgate.
Ekki háleit markmið hjá
Derby
Versta lið úrvalsdeildarinnarfrá
upphafi er án efa Sunderland-liðið
frá tfmabilinu
2005-2006. Þvf
liði tókst að fá
aðeins fimmtán
stig í deildinni
en Derby, með
níu stig þegar
tólf leikireru
eftir, á á hættu á
að bæta það
met. Derby
virðist algjörlega vera búið að sætta
sig við fall og skal engan undra. Nýja
markmiðið er að bæta ekki þetta met
Sunderland.„Við vitum að það er ekki
möguleiki á að við verðum áfram í
úrvalsdeildinni. Þvf hlýtur okkar
markmið að vera að setja ekki
svartan blett á sögu félagsins. Þetta
met Sunderland er ótrúlegt og enn
verra er að við eigum þá hættu á að
bæta það ef bæta skal kalla. Ég átta
mig á að þetta hljómar neikvætt en
staðreyndin er sú að við eigum
ekkert erindi f þessa deild eins og er,"
sagði Paul Jewell og hló.