Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008
Sport DV
Allir jafnir fyrir Capello
David James er ánægður með
stjórnunarstíl Fabio Capello, nýs
landsliðsþjálfara Englands. Capello
setti traust sitt á
James með að
velja hann sem
aðalmarkvörð
fyrir landsleik-
inn gegn Sviss í
seinustu viku.
„Það sem hreif
mig mest var að
komiðvarfram
við alla í
hópnum sem jafningja. Capello sá
ekki um gæludýrin sín og lét aðra
afskipta. Okkur leið eins og við værum
lið. Hann tekur virkan þátt í æfingum
og hann ræðir við leikmennina. Hann
hefur sínar hugmyndir en spyr
leikmennina samt álits."
Capello tilkynnti ekki byrjunarlið sitt
fyrr en fimm mínútum áður en
leikurinn hófst.„Spennan var rosaleg.
Þeir einu sem voru ekki ánægðir með
tímasetninguna voru blaðamennirnir.
Einhverjum fannst að Capello hefði
átt að gera eins og Slaven Bilic sem
tilkynnti króatíska byrjunarliðið
daginn fyrir leik. En hver er tilgangur-
inn að hafa stjórnanda sem gerir bara
það sem aðrirvilja?"
Ensku leikmennirnir ekki nógu
góðir
Franco Baldini, aðstoðarmaður
Fabio Capello, segir að ensku
landsliðsmennirnir séu ekki nógu
góðir með
boltann.Til að
bæta úr því hafi
verið lagt í
aukatækniæf-
ingar hjá
landsliðinu.
„Við verðum að
æfa, æfa, æfa.
Því miður erum
við bara með
leikmönnunum í nokkra daga á
tveggja mánaða fresti og að þessu
sinni náðum við fjórum æfingum. Við
verðum að halda boltanum betur.
Enski leikstíllinn er þannig að eftir
tvær eða þrjár þversendingar heimta
áhorfendur að boltanum sé neglt
fram. Við verðum að spila af meira
sjálfstrausti því það er auðveldara að
spila með boltann á fótunum."
Dagblaðið The Times tiltekur
sérstaklega leikmenn sem hafa sent
eða tekið illa á móti boltanum undir
lítilli pressu. Fremstur þar er Gareth
Barry með sex, síðan Wes Brown
með fjórar. Eini leikmaðurinn sem lék
allan leikinn án slíkra mistaka var
Steven Gerrard.
Vilja Villa
Chelsea og
Tottenham eru
sögð berjast um
David Villa,
framherja
Valencia.
Chelsea gæti
séð á eftir
Didier Drogba
og Spurs á eftir
Dimitar
Berbatov.„Mig dreymir um að spila í
ensku úrvalsdeildinni fari ég frá Spáni.
Mér finnst ánægjulegt að ensk lið sýni
mér áhuga."
Villa, sem ertalinn kosta 25 milljónir
punda, sendi umboðsmann sinn í
seinustu viku til Lundúna til að hitta
áhugasöm lið.
„Við skoðum formleg tilboð sem
berast," staðfesti Miquel Angel Ruiz,
forstöðumaður hjá Valencia.
Alves óttast akki rannsókn
Afonos Alves óttast ekki rannsókn af
hálfu FIFA. Hann er nýgenginn til liðs
við Middlebrough frá Herenveen í
Hollandi en annað lið þar, AZ Alkmaar,
segir Alves hafa
skrifað undir
samning við það
áður en hann fór
til Boro. Ásakanir
hafa einnig
komið fram að
umboðsmenn
sem ekki eru
löggiltir hafi
liðkað fyrir því
að Brasillumaðurinn færi til Englands.
Hann heldurfram sakleysi sínu.„Ég
ræddi við AZ en skrifaði ekki undir
neitt. Mérfinnst leitt að hlusta á
yfirlýsingar AZ en ég hef alltaf vitað
að ég gerði ekkert rangt."
Sunderland vann mikilvægan sigur, 2-0, á Wigan í fallbaráttunni. Steve Bruce, stjóri
Wigan, horfði gáttaður á hvernig liðið tapaði leik þar sem leikmenn þess skutu tvívegis
í tréverkið og fengu fleiri frábær færi.
BARÁTTUHUNDUR DeanWhitehead
stendur af sér atlögu leikmanns Wigan.
Einkenni Roys Keane sem leikmanns
var að hann skildi ekki tap. Hann og
Sunderland-liðið virðast ætla að feta
þá braut. Á laugardag var liðið yflr-
spilað af Wigan á heimavelli en tókst
samt að vinna.
Ekki lifnaði yfir fyrri hálfleik fyrr
en hann var að verða búinn. Þremur
mínútum fyrir leikhlé komst Sund-
erland yfir. Dean Whitehead sneri
aukaspyrnu frá hægri inn á vítateig-
inn. Þar kom Dickson Etuhu aðvíf-
andi og skallaði boltann af afli í netið
og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Sund-
erland.
Leikmenn Wigan fengu fi'n færi og
næst því að skora komst Roy O'Don-
ovan sem skallaði í utanverða stöng-
ina. Paul Scharner, Emilie Heskey og
Wilson Palacions gerðu sig einnig lík-
lega.
Draumamark Daryls
Sjúkraþjálfari Mohammeds Al-
Fayed úrskurðaði að Marlon King
væri ekki í nógu góðu líkamlegu
ástandi til að leika fyrir Fulham.
Varnarmenn Sunderland taka tæp-
lega undir það mat þar sem þeir áttu
fullt í fangi með hann.
Craig Gordon varði frá honum
Etuhu42,Murphy75. 2*0
46% MEÐ BOLTANN 44%
10 SKOTAÐMARKI 24
4 SKOTÁMARK 4
2 RANGSTÖÐUR 0
2 HORNSPYRNUR 8
13 AUKASPYRNUR 7
1 GULSPJÖLD 1
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 43.600
Gordon, Bardsley, Nosworthy,
Evans, Collins, O'Donovan (Prica
26), Etuhu (Leadbitter 84),
Whitehead,Murphy,Jones,
Chopra (Reid 74).
WIGAN
IGrkland, Melchiot (Koumas46),
Boyce,Schamer,IGIbane,
Valencia, Palacios, Brown,Taylor
(Olembe 56), Heskey (Bent 68),
King.
MAÐUR LEIKSINS
Craig Gordon, Sunderland
í tvígang eftir að hann hafði slopp-
ið inn fyrir vömina. Michael Brown
náði frákastinu og ætlaði að skjóta í
autt netið en Whitehead bjargaði á
línu.
Kevin Kilbane, fyrrverandi leik-
maður Sunderland, átti líka skot sem
hrökk út af innanverðri stönginni.
Heskey skallaði í þverslá.
Korteri fyrir leikslok gerði Dar-
yl Murphy út um leikinn. Hann fékk
boltann úti á vinstri kanti í skyndi-
sókn, lék inn á miðjuna og hamraði
boltann af þrjátíu metra færi í þversl-
ána og inn.
Vill leikmenn með karakter
Sunderland hefur seinustu vikur
þokað sér upp úr fallsæti með mikil-
vægum sigrum, fyrst á Birmingham,
nú Wigan. Sunderland er í nágrenni
við nágranna sína, Middlesbrough
og Newcastle, í deildinni en Roy
Keane segir að liðið eigi langt í land
með að tryggja veru sína í deildinni.
„Við verðum öruggir ef við höldum
áfram að vinna. Það er tilgangslaust
að horfa á stöðuna í deildinni og tapa
leikjum."
Keane gerði sér grein fyrir að lið
hans slapp oft naumlega. „Það verð-
ur að hrósa Wigan fyrir leik þess í
dag. Við vorum stundum heppn-
ir en við höfum kannski unnið fyrir
því. Við skoruðum tvö mörk og héld-
um hreinu - við erum ánægðir. Lykil-
menn hafa meiðst en það er hluti af
fótboltanum."
Og Keane ítrekaði hver sé helsti
kostur þeirra leikmanna sem hann
sækist eftir. „Ég horfi fyrst á persónu-
leika þeirra leikmanna sem vilja leika
fyrir Sunderland."
Quinton Fortune, sem var einn
varamanna Keanes hjá Manchester
United, skrifar ekki undir samning
við Sunderland. Hann hefur verið þar
til reynslu seinustu vikur. „Quinton
fór frá okkur í seinustu viku. Okkur
fannst ekki rétt að semja við hann því
miðað við stöðu okkar væri ósann-
gjamt að semja við leikmann sem
ekki hefur spilað í rúmt hálft ár. Við
óskum honum velfarnaðar því hann
er frábær strákur."
Hvað gerðist?
Steve Brace hefur heila viku til
að velta fyrir sér hvað fór úrskeið-
is. Ekki er víst að það sé nógu lang-
ur tími. „Fótboltinn er stundum svo
grimmur. Mér fannst við standa okk-
ur nógu vel til að vinna. Ég sldl ekki af
hvexju dómarinn dæmdi aukaspyrn-
una (sem varð að fyrra markinu) og
seinna markið var ótrúlegt.
í svona leikjum stendur mað-
ur bara og klórar sér í höfðinu. Við
klúðraðum hvetju færinu á eftir
öðra. En við skoraðum ekki og föram
því tómhentir heim. En ef við spilum
jafnvel og við gerðum í dag er ég viss
um að við björgum okkur." GG
Mikil meiösli í herbúöum Arsenal:
ELLEFU LEIKMENN TÆPIR
Arsenal getur náð fimm stiga
forystu í ensku úrvalsdeildinni þegar
liðið tekur á móti Blackburn annað
kvöld. Tölfræðin stendur með Arsenal,
liðið hefur unnið ellefu heimaleiki,
fleiri en Blackburn hefur unnið
samtals í deildinni. Fyrri leik liðanna í
deildinni lauk með 1-1 jafntefli.
Ellefu leikmenn era fjarverandi
eða tæpir hjá Arsenal: Emmanuel
Eboue, Alex Song, Johan Djourou,
Philippe Senderos, Robin van Per-
sie, Abou Diaby, Mathieu Flamini,
Manuel Almunia, Denilson og Tom-
as Rosicky. Slíkt gæti orðið til þess að
Arsene Wenger hendi Kolo Toure í
byrjunarliðið, tveimur sólarhringum
eftir leik með Fílabeinsströndinni í
Affíkukeppninni í Gana.
„Ég sé til hvort hann nái fluginu frá
Accra til Lundúna. Ef Senderos nær
sér ekki verða annaðhvort Gilberto
eða Justin Hoyte í miðverðinum. En
við höfum orðið fyrir miklum skaldca-
föllum að undanförnu."
I liði Blackburn er David Bentl-
ey sem sló í gegn í landsleik Eng-
lendinga og Svisslendinga í seinustu
vilcu. Hann er alinn upp hjá Arsenal
og Wenger segist stoltur af framgangi
hans.
„Ég er mjög ánægður fyrir hans
hönd. Það er oft erfitt að láta leik-
mann fara þegar maður veit að það er
tímaspursmál hvenær hann fari. Það
er ekki hægt að halda mönnum enda-
laust út á það eitt að það geti komið
að þeim."
Ástandið er h'tið skárra hjá Black-
bum. Christopher Samba, David
Dunn og Morten Gamst Pedersen era
allir í leikbanni. Ryan Nelsen, Andre
Ooijer og Steven Reid hafa verið
meiddir en gætu spilað. Aaron Moko-
ena er kominn aftur til Englands eftir
Afríkukeppnina.
Mark Hughes er ákveðinn í að spila
þétta vörn til að tryggja stig á Emirat-
es. „Arsenal er stórkostlegt lið með
einstaklega hæfileikaríka leikmenn.
Það má ergja þá með að loka svæðum
svo þeir geti ekki spilað boltanum á
milli sín. Fái þeir það getur verið erfitt
að hafa taumhald á þeim. Efvið fáum
á okkur mark snemma verður leikur-
inn erfiður." GG