Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2008, Qupperneq 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 21
Watford endurheimti efsta sæti Championship-deildarinnar um helgina á meðan West
Bromwich Albion tapaði. Bristol City og Stoke eru áfram í baráttu þeirra bestu.
Fyrir leikinn hafði Ipswich ekki tap-
að í nítján leikjum í röð á heimavelli.
Tommy Smith og Nathan Ellington
skoruðu mörk Watford en Jon Walt-
ers mark Ipswich, seint í leiknum.
„Við vörðumst lengi og tókst að halda
leikinn út. Við skoruðum á réttum
tíma og það var mikilvægt að við not-
uðum góðu kaflana vel," sagið Aidri-
an Boothroyd, stjóri Watford.
Hann gerir sér grein fyrir að það
er kalt á toppnum. „Við verðum að
skotskífu hinna liðanna og við höfum
ekki þolað það sérstaklega vel. Von-
andi verður það öðruvísi núna."
Ömurlegt hjá West Brom
Tony Mowbray, stjóri West Brom-
wich Albion, var æítír yfir frammi-
stöðu sinna manna sem töpuðu 2-
1 fyrir Barnsley. Daniel Nardiello og
Jon Macken, fyrrverandi unglinga-
liðsmenn Manchester United, skor-
uðu mörk Barnsley. James Morrisson
skoraði fyrir West Brom.
„Níutíu afleitar mínúmr eyði-
lögðu daginn. Þetta var óviðunandi
frammistaða. Trúlega verðskulduð-
um við að tapa. Ég ædast til að leik-
menn mínir standi sig betur á þriðju-
dagskvöldið."
Starfsbróðir hans hjá Barnsley,
Simon Davey, gladdist. Fyrir viku
tapaði lið hans 4-0 fyrir Coventry.
„Vikan var skelfileg. Ég gerði þeim
grein fyrir að frammistaða þeirra þar
hefði verið óviðunandi. Við yfirspil-
uðum West Brom ffá fyrstu mínútu
og vorum óheppnir að vera bara 2-0
yfir í hálfleik."
Bristol berst
Bristol City er enn með í barátt-
unni eftir 2-1 heimasigur á Sheffield
Wednesday. Dele Adebola og Bardley
Orr skoruðu mörk City en Lee Bullen
fyrir Wednesday. „Við fengum nógu
mörg færi tíl að vinna 5-2 en ég er
ánægður með að við skyldum vinna
eftir að hafa tapað um seinustu helgi,"
sagði stjóri City, Gary Johnson.
Hjá Wednesday syrti enn frekar í
álinn en liðið er í þriðja neðsta sæti
deildarinnar. „Þegar sjálfstraustíð er
lítíð er það versta sem þú lendir í að
fá á þig mark snemma," sagði stjór-
inn Brian Laws. „Við eigum nokkra
heimaleiki fram undan sem við verð-
um að nýta. Sem stendur erum við í
gapastokknum og eina leiðin til að
komast úr honum er að vinna leiki."
Mikilvægur sigur Stoke
Stoke vann mikilvægan sigur á
Úlfunum sem eftir tvö töp í röð hef-
ur dregist aftur úr þeim liðum sem
berjast um að komast í umspil um
úrvalsdeildarsæti. Wolves komst yfir
með mörkum Rob Edward og Andy
Keogh eftir að Rory Delap hafði skor-
að fyrsta markið fyrir Stoke. Liam
Lawrance jafnaði áður en Leon Cort
og Richardo Fuller tryggðu Stoke
mikilvægan sigur.
Mick McCarthy, stjóri Wolver-
hampton, var æfur út í dómarann
Andre Marriner fyrir að hafa snuðað
lið hans um tvær vítaspyrnur. Hann
var undrandi á lekri vörn. „Við týnd-
um okkur eftir að hafa komist 2-1
yfir. Við vorum meðal þeirra liða sem
fengið hafa fæst mörk á sig - það er
liðin tíð."
Tony Pulis, stjóri Stoke, segir að
allt geti gerst. „Það eru fimmtán leik-
ir eftir af leiktíðinni. Það er lítið sem
skilur liðin í deildinni að. Ég hlakka
til næsta leiks. Við misstum átta leik-
menn í sumar og þurftum að byggja
upp nýtt lið. Við högnuðumst veru-
lega í sumar. Ég var gagnrýndur af
stuðningsmönnunum fyrir að fjár-
festa ekki í nýjum leikmönnum."
GG
Gary McAllister þarf að bíða eftir sínum fyrsta sigri eftir að liðið gerði jafntefli:
LEEDS GERÐIJAFNTEFLI
Leeds mætti Northampton í
ensku 1. deildinni á laugardag en
Leeds hefur verið á góðu skriði í vet-
ur en liðið byrjaði með fimmtán mín-
usstíg. Gary McAllister tapaði sín-
um fyrsta leik sem stjóri Leeds gegn
Tranmere og gerði hann þrjár breyt-
ingar á liðinu, hann setti þá Casper
Ankergren, Rui Marques og Tresor
Kandol inn í liðið. Leikmenn Leeds
voru sterkari í leiknum og fengu þeir
Jonathan Hayes og Ryan Gilligan góð
færi til að koma þeim yfir í fyrri hálf-
leik en tókst ekki. Jonathan Howson
kom Leeds hins vegar yfir á 38. mín-
útu eftir góða sendingu frá Bradley
Johnson og stóðu leikar þannig í
hálfleik. Adebayo Akinfenwa fékk
gott færi þegar 12 mínútur voru bún-
ar af síðari hálfleiknum en náði ekki
að koma knettinum í netið. Akin-
fenwa gerði hins vegar engin mistök
.#
Áhyggjufullur McAllister Hefur ekki unnið í fyrstu tveimur leikjunum.
þegar hann náði að jafna leikinn fyr- ungur var eftir af leiknum. Jafntefli
ir Northampton þegar stundarfjórð- varð niðurstaðan í þessum leik en
Leeds er i áttunda sæti með 45 stig.
Northampton er fjórum sætum neð-
ar og hefur fimm stigum færra.
Gary McAllister þarf því enn að
bíða eftir sínum fyrsta sigri með liðið
en hann tók við af Dennis Wiise sem
fór úr öskunni í eldinn þegar hann
tók við sem yfirmaður knattspyrnu-
mála hjá Newcastle. „Þetta er fyrsta
stigið sem við fáum eftir að ég tók við
og þetta er fyrsta markið sem skor-
um svo það er jákvætt. Mér fannst
við vera sterkari aðilinn. Framherjar
Northampton voru stórir og stæði-
legir og ollu usla en mér fannst við
ná tökum á þeim þegar líða fór á leik-
inn. Við sóttum hratt á þá en við töp-
uðum tveimur stigum, við náðum
ekki í stig," sagði McAllister en liðið
er sextán stigum á eftir Swansea sem
er í efsta sætinu.
HSJ
Brown hugsar um stuðnings-
mennina
Breski forsætisráðherrann, Gordon
Brown, er meðal þeirra sem fordæmt
hafa áform ensku úrvalsdeildarinnar
um að spila heila
umferð íjanúar
utan Englands.
Talið erað
deildin gæti
hagnast um 100
milljönir punda
með því.
„Stuðnings-
mennirnirverða
að fá forgang.
Það verður að hlusta á viðhorf þeirra
Ef peningarnir sem græðast fara í að
lækka miðaverðið eiga fleiri
áhorfendur möguleika á að mæta
leiki. Það gæti verið nokkuð sem
menn myndu taka með í reikninginn."
Ekki bara græðgi
Richard Scudamore, framkvæmda-
stjóri ensku úrvalsdeildarinnar, segir
tillögur um að leika lelki í ensku
úrvalsdeildinni erlendis vera leið að
skynsömustu niðurstöðunni.
„Heimurinn stendurekki í stað gerum
við ekki eitthvað sem öll liðin tuttugu
eru hluti af. Það eru fjögur eða fimm
lið sem gera þetta hvort sem er. Ég
segi ekki hver
þau eru. Þetta
er leið til að
halda í við
hnattvæðing-
una. Það er
skylda mín að
horfa ekki
framhjá
tækifærinu. Ég
yrði gagnrýnduref ég léti deildina
malla í hægagangi meðan hinar settu
í fluggírinn."
Chelsea eða West Ham?
Hugmyndin hlýtur lítinn hljómgrunn
meðal dálkahöfunda ensku
sunnudagsblaðanna. Hatched Man í
Mail on Sunday segir að forsvarsmenn
úrvalsdeildarinnar hafi þegar gengið
nógu langt með ofurlaunum,
tímasetningum stórleikja sem séu í
þágu sjónvarpsáhorfenda en ekki
stuðningsmanna og háu miðaverði.
Enska úrvalsdeildin sé ekki besta
deild í heimi fýrir stuðningsmann sem
vilji fylgja liðinu sínu.„Græðgisvél
ensku úrvalsdeildarinnarvill bara
meira."
Dálkahöfundurinn bendirá það
óréttlæti að sum liðin þurfi að mæta
sama andstæðingnum þrisvar.
„(myndaðu þér að liðið þitt sé í
fallbaráttu og mæti Chelsea hinum
megin á hnettinum. Á sama tíma
mætir annað lið í fallsæti liði um
miðja deild. Aukaleikur Wigan yrði
gegn Manchester United á meðan
Fulham spilaði gegn West Ham. Hvað
varð um heima og heiman?"
Wenger opinn
Skoðanir framkvæmdastjóra liðanna
eru líka misjafnar. Arsene Wenger
segir rétt að skoða hugmyndirnar
með opnum
hug.„Mérfinnst
ánægjulegtað
einhverskuli
hugsa hvernig
við getum kynnt
deildina og
enskan fótbolta.
En ef þetta er
bara til að
græða nokkrum
milljónum meira er þetta ekki þess
virði. í dag er það svo að 10%
stuðningsmanna okkar komast á leiki
okkar, 90% ekki. Viljum við koma til
móts við þá? Ég tek undir það. En er
þetta besta leiðin til þess?"
Ferguson reiður
Sir Alex Ferguson er ekki hrifinn af
því að hugmyndin hafi verið
opinberuð áður en hún var fullrædd
innan félaganna.„Forstjórinn bað mig
~ v Æ umað,haldf
■ þessu leyndu
■*"" ’■■■"*— þarsemvið
þyrftum að
ræða málið.
Síðan er það
komið í blöðin.
Þeirkunna ekki
að þegja! Fyrst
hefði átt að
ræða við
leikmenn og framkvæmdastjóra. Þar
til ég hef rætt viö David Gill hefég
ekkert meira um málið að segja."